Prentarinn - 01.01.1986, Síða 3

Prentarinn - 01.01.1986, Síða 3
fyrir- tíma, Undirritaðir hafa verið nýir kjarasamningar, sem sjálfkrafa renna út um næstu áramót. Nafngiftir þess- ara samninga hafa verið margar svo sem stéttasam- vinnusamningar, tímamótasamningar, svikasamn- ingar o. s. frv. Það athyglisverðasta í þessum samn- ingum er þó ugglaust það að þess er enn freistað að treysta yfirlýsingum og bréfum stjórnvalda auk þess sem töluvert traust er lagt á framleiðslufyrirtæki um að þau hækki ekki vöru sína. Þetta trúnaðartraust er athyglisvert í Ijósi reynslunnar. Allir samningar hafa meira eða minna verið háðir því hvernig stjórnvöld brigðust við á hverjum tíma og raunin hefur und- antekningalaust eða lítið verið sú að þau hafa brugð- ist verkafólki, hlaupið erinda atvinnurekenda og hinna ríku. Nú hafa stjórnvöld verið dregin inní samn- ingsgerðina og standi þau við sinn hlut má nokkurs vænta af þessum kjarasamningum. Ailar forsendur eru fyrir því að stjórnvöld geti staðið við sinn hlut á þann veg sem samningarnir gera ráð fyrir. Ef þau bregðast, og með því verður væntanlega náið fylgst, eiga þau enga afsökun og ber þá að víkja. Þessir samningar fela ekki í sér verulegar kauphækkanir, en þeir gera ráð fyrir nokkurri kaupmáttaraukningu á samningstímanum. Þeir gera jafnframt ráð fyrir að unnið veröi að leiðréttingu á kauptöxtum og að yfirborganir verði teknar inní þá í næstu samningum, eða fyrr ef um semst. Að þessu máli verður svo sannarlega að vinna, enda það að taka yfirgreiðslur inní kauptaxta ugglaust raunhæf- asta leiðréttingin fyrir þá lægst launuðu, auk þess sem það er trygging öllum ef harðnar á dalnum og atvinnuleysisvofan gerir sig heimakomna. Eigum viö svo að fá okkur bíl fyrir afganginn? Sorgarsaga þessara samninga er þó óneitanlega sú staðreynd að eftir sem áður er verkafólki boðið uppá laun sem ekki eru mannsæmandi og nægja engan veginn til lífsframfærslu. Fólk verður því eftir sem áður að leggja nótt við dag og þeir sem eiga þess ekki kost verða að lifa eins og þurfalingar þrátt fyrir fullan vinnudag. Þessi staðreynd blasir hvað harðast við konum á vinnumarkaðnum. Verkalýðshreyfingin er veik og búin að vera það lengi. í komandi samningum verður hún að rétta úr kútnum og standa að fullu við það fyrirheit að yfir- greiðslur séu teknar inní kauptaxta, - að laun fyrir dagvinnu verði lífvænleg. - mes Samningarnir heit um betri ef, ef, ef prentnrinn I MÁLGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA PRENTARINN - málgagn Félags bókageröarmanna • Útgefandi FBM, Hverfisgötu 21 • Ritstjóri: Magnús Einar Sigurösson • Setning, filmu- vinnsla, prentun og bókband: Prentsmiðjan ODDI hf. • Letur: Times og Helvetica • Hönnuður blaöhauss: Þórleifur Valgaröur Friðriksson. 1.6.86 3

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.