Prentarinn - 01.01.1986, Qupperneq 6

Prentarinn - 01.01.1986, Qupperneq 6
Frá sjónarhóli leikmanns Ég hef verið beðinn um að skrifa nokkur orð um útlit bóka frá sjónarhóli lesandans. Þar er af mörgu að taka, en ég ætla að takmarka þessi orð við skreytingar í bókum. Bókagerðarmenn hafa frá aldaöðli skreytt bækur sínar á ýmsan hátt. Bæði hefur það verið gert með skrautlegum upphafsstöfum, skreyttri titil- síðu eða einstökum myndum. Þeir sem kunnugir eru sögu prentlistarinnar hér á landi vita að svo var þetta einnig hér á landi, þrátt fyrir fátæklegan búnað prentsmiðjanna. All- mörg myndamót eru enn til á Þjóðminjasafninu, flest þeirra sjálfsagt af erlendum uppruna. Nýlega hefur Ríkharður Jó- hannsson (Valtingojer) hreins- að þau vandlega eins og nýlega var greint frá í tímaritinu Bóka- orminum og gefið þau út sér- prentuð í nokkrum eintökum. Halldór Hermannsson ritaði grein sem hann nefndi Book Illustration in Iceland og birtist í XXIX. hefti Islandicu. í grein þessari er að finna nokkurn fróðleik um myndskreytingar í íslenskum bókum til 1941. Einnig var nýlega fjallað um þetta efni á vegum Norræna hússins, en það fór að mestu fram hjá mér, svo það sem á eftir verður sagt er byggt á fá- kunnáttu, eins og til mun vera ætlast. Ég verð í upphafi að láta í ljós þá skoðun mína, að skreytingum listamanna hafi fækkað á kostnað prentaðra ljósmynda og það séu ekki að öllu leyti góð skipti. Einkum vegna þess, að prentaðar ljós- myndir skortir oftast þá dýpt og hugmyndaflug sem góðar myndskreytingar hafa. Meðal listamanna, sem áttu mjög góð- ar myndir og skreytingar má nefna Jóhann Briem, Barböru Árnason og Halldór Pétursson. Nú munu útgefendur e. t. v. telja sig geta bent á bókakápur sem oft eru litprentaðar, en því er til að svara, að á seinni árum eru þær oftast unnar af auglýs- ingateiknurum, sem sjaldnast standa lærðum listmálurum á sporði í listrænu tilliti. Einkum tel ég að vatnslitamyndir sómi sér vel á bókakápum. Þá má einnig festa myndina inn í bók- ina fyrir framan titilblað og þar geymist hún sem forsíðumynd. Vel heppnuð bókarkápa hefur töluvert sölugildi fyrir bókina og er athyglisvert til sam- anburðar að sjá hvað plötuút- gefendur vanda mjög til plötu- hulstranna í seinni tíð. Þó að skreyttu upphafsstaf- irnir hafi minna listrænt gildi, tel ég nokkra eftirsjá að þeim, en þeir eru nær alveg horfnir úr sögunni, nema úr útgáfubók- um Hins íslenska bókmennta- félags. Slíkir upphafsstafir eiga sér líka langa hefð í íslenskri bókmenntasögu, því mörg handritanna eru skreytt veg- legum upphafsstöfum. Ég verð þó að viðurkenna, að mér finnst að slíkir upphafsstafir eigi ekki alls staðar við og einna helst í stórum og vönduð- um bókum. Um myndskreytingar við texta mætti ýmislegt segia. Þar höfum við íslendingar verið eftirbátar annarra, nema á einu sviði: myndskreytingu þjóð- sagna. Ég held að við höfum átt mjög góða þjóðsagnateikn- ara og þarf raunar ekki að nefna þau kunnu nöfn hér. Er gaman að geta þess hér að einn ungur teiknari, Haukur Hall- dórsson hefur gert mjög góðar þjóðsagnamyndir. Yngsta kyn- slóð myndlistarmanna hefur einnig sýnt þessari listgrein áhuga og má nefna Helga Þor- gils Friðjónsson, Ólaf Lárus- son, Gylfa Gíslason og marga grafíkera. En þeir hafa ekki fengið nein verkefni að ráði og er það skömm og skaði. Mér finnst að nýstofnuð samtök um bókaútgáfu ættu að gefa þessu gaum og efna til ár- legra sýninga á bestu bókun- um. Þá ætti að verðlauna bestu kápurnar og skreytingarnar og veita höfðingleg verðlaun fyrir bestu skreytingar í texta til þess að hefja þá listgrein til sam- bærilegs vegs og hún nýtur í öðrum siðmenntuðum löndum. Páll Skúlason 6 PRENTARINN 1.6.'86

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.