Prentarinn - 01.01.1986, Qupperneq 10
„Flexó“prentun
- Ný ögrun
Nú ryður hin nýja flexóprentun sér
til rúms. Flexóprentunin, sem er hætt
við einfaldar netmyndir og getur nú
fengist við flóknar netmyndir í háum
gæðaflokki. Þetta er tæknin sem off-
set- og djúpprentsfólk hristi hausinn
yfir fyrir hálfum áratug: Annars
flokks prentun. í dag líta prentiðnað-
armenn á flexóprentunina sem spenn-
andi og byltingakennda framför, sem
krefst fagkunnáttu. Djúpprentarar
horfa tvístígandi á þennan nýja áskor-
anda. Svíþjóð er þó þróunarland á
þessu sviði og okkur skortir menntun.
Það liggur í loftinu. Það eykst. Eng-
inn vill eiginlega nefna það, en það
gerist samt. Og það gerist hratt núna í
flexóprentinu, þeirri prenttækni sem
að margra áliti er tækni níunda og
tíunda áratugarins, einkum í umbúða-
prentinu. Einn viðmælandi okkar telur
meira að segja líklegt, að Nord-Em-
ballage og svipuð tímarit verði innan
tíu ára prentuð með flexóaðferðinni í
stað offset. Hvað er þá að gerast í
flexóprentinu og hvað veldur þeirri út-
breiddu skoðun, að flexóprentunin
geti bráðlega keppt bæði við offset og
djúpprentun á vissum sviðum? Þróun
flexóprentunarinnar komst verulega á
skrið við tilkomu fyrstu ljósfjölliða-
plötunnar árið 1973. Þá fyrst var hægt
að hætta einföldu strikavinnunni, sem
áður einkenndi flexóprentið, og hefja
flókna netmyndavinnu. í dag er hægt
með flexóprentun að vinna flókna
fjórlitaprentun. Gæðin eru sambærileg
við djúpprentun og kostnaður mun
minni. Vissulega er ekki hægt að ná
alveg jafn fínni netþéttni og í djúp-
prentun, en fyrir mun lægra verð fást
samt sem áður fullnægjandi prentgæði
fyrir flestar umbúðir.
Lítil upplög
N-E hafði samband við Allan Eje-
blad, verksmiðjustjóra Teno hf. í
Norrköping og Allan Nilsson, sem er
yfirmaður flexóþróunarinnar hjá því
fyrirtæki.
— Flexóprentunin er fjarri því að
vera nokkur ný tækni, fremur er um
að ræða fágun hugmynda Gutenbergs,
sem byggja á hæðaprenti. Sá er þó
munurinn, að flexóprentið er svo
miklu sveigjanlegra, segir Allan Nils-
son. Einn stærsti kostur flexóprent-
unarinnar er einmitt sveigjanleiki
hennar, í víðtækustu merkingu. Þar
liggja hins vegar aðal tækniörðug-
leikarnir, sem þarf að yfirvinna og ná
valdi á. Nefnilega punktastækkunin.
A flexóvalsi er einfalt og ódýrt að
breyta og bæta við. Það er bara skorið
burtu og bætt við án nokkurra
sérstakra erfiðleika. Á gröfnum, rist-
um djúpprentsvalsi er þetta næstum
ómögulegt eða hefur alla vega í för
með sér ærinn kostnað og erfiði. Með
aðstoð djúpprentunar má gera mjög
góðar eftirprentanir mynda, en kostn-
aður við aðferðina og vélakaupin er
mikill, og hentar því eiginlega best
fyrir mjög stór upplög. Þegar fengist
er við lítil upplög, sem er hið algenga á
markaði eins og í Svíþjóð, verður
flexóprentið miklum mun ódýrara, ef
gæðin eru fullnægjandi. Yfirleitt eru
þau það, þó flexóprentunin sé enn
ekki farin að skila alveg sama árangri
og offset eða djúpprentun. Þeir sem
vinna að þróun flexóprents leitast auð-
vitað við að ná sömu gæðum með
minni tilkostnaði. Svo má ekki gleyma
því, að gæði eru háð mati einstakl-
ingsins.
Heillandi tækni
Það er heillandi að vinna við nýju
flexótæknina, aðallega vegna þess, að
hún krefst fagkunnáttu og góðrar sam-
vinnu. Allir hlekkir í keðjunni eru jafn
mikilvægir, segir Allan Nilsson.
— Þar sem þróunin er skammt á veg
komin er þessi tækni ekki orðin jafn
stöðluð og aðrar prentaðferðir. Þetta
veldur því, að flexóprentið er enn sem
komið er háð því, að þeir sem við það
vinna hafi tilfinningu fyrir verkinu.
Prentarinn verður að framkvæma lita-
skiptinguna á þann hátt, sem ætlast
er til í litgreiningunni. Það skiptir
sköpum, að allir í keðjunni leiki sama
lag í sama takti. Um leið og tækjabún-
aði fleygir fram í flexóprentun kemur
Netavalsinn flytur hinn þunnfljótandi lit yfir á prentmótið og áfram þaðan á
efnið.
10
PRENTARINN 1.6.86