Prentarinn - 01.01.1986, Qupperneq 13

Prentarinn - 01.01.1986, Qupperneq 13
Grotta- söngur Kvörninni snúum, Kreist viö höfum fast Möndul unz bak okkar brast. Nótt og dag Grotta við gnúum - Mölum nú, mölum nú hast Blóðið undan nöglunum, beinin út úr hnúum! Hárbeittar hendingar hvast Höggvi í bardaga-ljóði! Vakirðu, vakirðu, Fróði? Þessar hendur hafa unnið Heimsins þunga mannlífs-starf. Hvað að launum? Hvar er runnið Kjara-happ til vor í arf Okkar feðrum frá? sem þreyttir, Frelsi ræntir, blóði sveittir Unnið höfðu í örbirgð kaldri Æfiverk á hálfum aldri - Hlutu loka-launin ríf: Leiði týnt um slitið líf. Munu ei vor og vorra barna Verða sömu launin rétt? Sérðu grilla í garðinn þarna? Gröf við gröf þar raðast þétt - Feður okkar orpnir moldu, Ætt vor hvílir þar í foldu. Þeim bauðst ein um alla heima Eden sú, að deyja og gleyma, Hefir fundist fegri enn Fyrir ótal, ótal menn? Oss hefir brostið vit og vilja Verka-laun að heimta djarft. Við höfum fælst að skynja og skilja Skaða vorn og hlutfall þarft, Trúað á að okkar færi Ekkert nema stritið væri, Þræl-skyldugir aðra að ala, Aðeins hæfir til að mala Drotnum vorum yndi og auð. Okkur naumast daglegt brauð. Upp, mót kúgun eymd og spilling, Öld þó byltist likt og haf. Látum alla lyga-gylling Leirnum mannlífs skolast af. Hræðumst ei þó hrynji og falli Heimsku-goð af vanans stalli. Fyrst vor trú á þau er þrotin Þau mega gjarnan liggja brotin! Trú, sem brast er brást í nauð Björg sem væntum hjálpar-snauð. Stephan G. Stephansson. 1891 2 grotti, -a, -ar k 1 grotta 1.2 Ásatrú sérn. Grotti kvörn scm ambáttir Fróöa konungs mólu gull í (skv. cddukvæðinu Grottasöng). „Mjólkurfélag heilagra“ Þau Hallbjörn Halldórsson og Kristín Guömundardóttir kona hans voru miklir vinir Erlendar Guðmundssonar í Unuhúsi. Voru kynni þeirra náin um langt skeið eða þar til Erlendur lést. Vinátta þeirra var bundin sameiginlegum áhugamálum á fjölmörgum sviðum; um félagsleg efni, bókmenntir og reyndar flest það, sem þótti þess virði að leggja eyru við og ræða. Þá var líka oft brugðið á létt gaman, t. d. í „Mjólkurfé- lagi heilagra", en í því samfélgi komu fleiri við sögu. Þá munu þau Erlendur, Hallbjörn og Kristín hafa notið góðra stunda á skemmri ferðalögum, ýmist á tveim jafnfljót- um eða öðrum þeim farartækjum, sem kostur var á. Sú mynd, sem hér birtist í Prentaranum, sýnir þó nýja hlið á ferðamáta þeirra Erlendar og Hallbjarnar þótt hvorugur þeirra væri orðaður við sjósókn. Þarna hafa þeir brugðið á það ráð að ýta báti úr vör. Ekki verður annað séð en báðir hafi kunnað áralagið. I*lutSŒIMJnrfundnr vrrðtir hahlinn t MjálkurftHngi hr.ilntira .innnutlnt/inn iit. mal klukkan Itálf-lúlf ftjrir hádetji á llvrrfistjöln ?/. I' uiultii rjni. „g l annvritj. Hriinsallur /isknr nirtJ siilllniisu kjöli. liflirinaliir, rf gittl lofar. Iiaffivalii. Illill.íu; ÖNI) | f Meistari Hallbjörn og Erlendur í Unuhúsi undir árum. PRENTARINN 1.6.86 13

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.