Prentarinn - 01.01.1986, Blaðsíða 16

Prentarinn - 01.01.1986, Blaðsíða 16
Iðnfræðslumál - Sameining iðngreina Tækniþróun mætt með markvissara námi !Á ráðstefnu félagsins um iðnfræðslu og sameiningu iðn- greina voru flutt fimm inngangserindi og þykir Prentaran- um við hæfi að birta þau og fara þau hér á eftir. í framhaldi af þessum erindum starfaði ráðstefnan í þremur hópum og var þeim skipt eftir framleiðsluferlinum; Prentformagerðin, prentunin og frágangurinn. í stórum dráttum má segja að niðurstöður hópa hafi verið á sama veg. Pannig kom fram hjá þeim öllum að vinna bæri að sameiningu iðngreina, þ. e. hæðaprentunar og offsetprent- unar annars vegar og setningar, skeytingar og offset- Ijósmyndunar hins vegar. Pá voru hóparnir sammála um að ganga þyrfti frá námsskrárgerð sem allra fyrst. Huga þyrfti að réttindaveitingum til þeirra fagmanna sem fyrir væru í þeim iðngreinum sem sameina œtti. Samhliða sameiningu yrði að skipuleggja og bjóða uppá raunhœf endurmenntunarnámskeið. Hlú þyrfti að bókagerðarskólanum og skapa kennurum hans raunhœf tœkifæri til að fylgjast með á sínu sviði. Tengja þyrfti skólann betur atvinnufyrirtækjunum m. a. á þann veg að hægt væri að nýta einstök fyrirtæki til beinnar hópkennslu á afmörkuðum sviðum. Fjölmörg önnur atriði komu fram í starfshópunum, þó þetta séu þau sem þyngst vega. Að öðru leyti má segja það um þessa ráðstefnu að hún var hin gagnlegasta og kom þar fram að mikill áhugi er fyrir því að iðnfræðslan sé í góðu lagi og að vel sé fylgst með nýjungum og að reynt sé að láta námið svara kröfum tímans hverju sinni og á það jafnt við um sjálft grunnnámið sem og þá endurmenntun, sem menn eru sammála að byggja upp m. a. í tengslum við „öldunga- deild“ í bókagerðarskólanum. Guðrún Guðnadóttir, bókbindari að störfum. Edda Jónasdóttir, skeytingamaður, við Ijósaborðið. 16 PRENTARINN 1.6.'86

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.