Prentarinn - 01.01.1986, Qupperneq 17

Prentarinn - 01.01.1986, Qupperneq 17
Magnús Einar Sigurðsson „Hljótum jafnframt og ekki síður að gera kröfur... Ráðstefna sem þessi er búin að vera fyrirhuguð lengi, en einhverra hluta vegna hefur ekki orðið af framkvæmd fyrr. Það sem gerði hana núna raunverulega er sú um- ræða sem átt hefur sér stað að und- anförnu um sameiningu iðngreina og óskir félagsmanna um að fá tæki- færi til umræðna um þessi mál á breiðum grundvelli. Fleiri mál koma hér við sögu en iðnfræðslu- málin og sameining iðngreina, mál- ið snýst að sjálfsögðu jafnframt um tæknibreytingar og tækniþróun, fag legar og félagslegar afleiðingar þeirra og eftilvill er það kjarni málsins. Hér verður ugglaust fjallað ítar- lega um hina tæknilegu hlið þessara mála, ég mun því reyna að fjalla frekar um félagslega þáttinn og það sem snýr beint að verkalýðs- hreyfingunni og lífi og afkomu fé- lagsmanna hennar í umróti tækni- breytinga, breyttra starfshátta og menntunar. Tæknibreytingar og viðbrögð verkalyös- hreyfingar og atvinnu- rekenda við þeim Það hefur verið sagt um verka- lýðshreyfinguna að hún sé íhalds- söm í eðli sínu. Hvað sem um það má segja er ljóst að hún áttaði sig seint, illa og alls ekki sameiginlega á þeim undrum, umróti og kúvend- ingu sem eru samhliða tölvuvæð- ingu og sannast sagna virðist hún alls ekki vera búin að átta sig enn nema að takmörkuðu leyti. Með þessu á ég ekki við að fólk hafi ekki tileinkað sér þessa tækni, því það hafa félagsmenn verkalýðshreyfing- arinnar svo sannarlega gert. Spurn- ingin er hins vegar sú: íþágu hverra og á hvaða forsendum? í ljósi þeirra umskipta sem tæknin veldur í öllum starfsgreinum á öllum svið- um þjóðlífsins. Verkalýðshreyf- ingin, félagsmennirnir, hafa skilið sjálfa tæknina og tileinkað sér hana í starfi og leik, þeir hafa jafnframt unnið að því að aðlaga menntun sína til samræmis við breytta tækni, rétt eins og við erum að gera hér í dag og verkalýðshreyfingin hefur meira að segja haft hér ákveðið frumkvæði. Hinum félagslega þætti hefur hún hins vegar gleymt, eða a. m. k. stórlega vanrækt. Engar tæknibreytingar í saman- lagðri mannkynssögunni hafa og munu hafa jafn víðtæk áhrif á líf fólks og tölvuvæðingin segja marg- ir. Hvað sem um það er þá verða áhrifin mikil og afleiðingarnar hörmulegar ef verkalýðshreyfingin nær ekki jafnréttisstöðu fyrir sitt fólk við innleiðingu þessarar tœkni. Andstætt verkalýðshreyfingunni hafa atvinnurekendur áttað sig til fulls á því sem að þeim snýr varð- andi tölvuvæðinguna. Þeir vita hví- líka arðsaukningu þessi tækni getur haft í för með sér og þar af leiðandi krefjast þeir enn aukins frelsis til að ráða yfir framleiðslutækjunum og innleiðingu þeirra og óskoraðs frelsis til uppsagna og mannaráðn- inga. Þau fáu verkalýðsfélög sem hafa gert sér grein fyrir því mikil- vægi að gera samninga um hina nýju tækni og afleiðingar hennar, góðar og slæmar, en bókagerðar- menn eru í hópi þeirra, hafa fundið fyrir því hvað atvinnurekendum eru hagnaðarmöguleikar þessarar tækni ljósir enda er árangur tækni- samninga í fullu samræmi við það og sljóleika verkaiýðshreyfingar- innar sem heildar á þessum mála- flokki. Allt er notað í þessu sam- bandi, þeir sem vilja hér réttlæti og jöfnuð eru jafnvel kallaðir andstæð- ingar tækniframfara og svo fram- vegis. Staðreyndin er hins vegar sú að afleiðingar þessarar tækni eru þeg- ar ljósar og farnar að bitna á fólki um víða veröld vegna þess að ekki hafa verið gerðir samningar um rétt- láta skiptingu arðsins sem af henni leiðir. Atvinnuleysisvofan er hvar- vetna á ferð um hinn vestræna heim, atvinnuleysi eykst dag frá degi, þrátt fyrir aukna framleiðni. Island, enn sem komið er, er und- antekningin sem sannar regluna. Allt þetta verðum við að hafa í huga þegar við setjumst niður og leitum leiða til að bæta menntun okkar og starfskunnáttu. Við höf- um hér vissulega skyldur sem við viljum ekki víkjast undan, en við eigum hér jafnframt rétt, sem eins og mál standa í dag er fyrir borð borinn. Þennan rétt skulum við sækja til hagsbóta fyrir alla, líka atvinnurekendur, ef við lítum til framtíðar. Ég er nefnilega svo grænn að vilja ekki trúa því að nokkur vilji hér upplifa þjóðfélag atvinnuleysis og aukins ójafnaðar, eða hvað? Hópstarf, hér er þaö setning, skeyting og Ijósmyndun. PRENTARINN 1.6.'86

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.