Prentarinn - 01.01.1986, Side 22

Prentarinn - 01.01.1986, Side 22
nemandi vinnur sjálfstætt að sínum námsverkefnum óháð öllum bekkj- um eða hópum. Námsferillinn hefst þar sem getan leyfir og náms- hraðinn fer einnig eftir getu hvers og eins. Hluti af vinnu kennara fer þá í að búa til kennsluverkefni í samræmi við nýja áfangalýsingu og hinn hluti kennarastarfsins fer í einstaklingsbundna leiðbeiningu, verkstýringu kennsluverkefna og símat á námsárangri nemenda. Hópvinna nemenda þarf einnig að koma til þar sem blandað er saman nemendum af mismunandi stigum og þeir í sameiningu látnir leysa verkefni eða finna lausn á vandamáli. Nemendur á mismun- andi stað í námi geta verið á sama vinnusvæði en verkefnin mismun- andi erfið. Endurmenntun getur því farið fram samtímis, reyndar mjög æskilegt því þannig berst þekking milli fyrirtækja og skóla og nýliðar komast í kynni við fólk með starfsreynslu. Skólinn í Minnesota sem vitnað er til er með um 2000 nemendur á daginn og mun meiri fjölda á kvöld- in. Doktor Bill Warner einn af frumkvöðlum þessa fyrirkomulags hvað reynsluna það góða eftir 12 ár að hann vildi alls ekki hverfa aftur til þess fyrirkomulags sem áður var og þekkjum úr okkar skólakerfi. Stýring grafiskrar menntunar Eðlilegt má teljast að hvert svið atvinnulífsins myndi ákveðna at- vinnumálastefnu. Á grundvelli henn- ar á síðan verkmenntastefnan að byggjast. Yfirstjórn grafiska at- vinnulífsgeirans, félagasamtök bóka- gerðarnema, bókagerðarmanna og Félag íslenska prentiðnaðarins eiga síðan sameiginlega með skóla- mönnum að móta verkmennta- stefnuna og leggja niðurstöðurnar inn á borð hjá þeim menntamála- ráðherra, sem er við stjórnvöllinn hverju sinni. Hið opinbera á síðan að láta vinna áfangalýsingar, námsgögn eða velja erlend námsgögn til að nýta til endurmenntunar og til endurnýjunar á grafíska náms- gagnabankanum. Opinberi aðilinn á að hafa ó- bundnar hendur varðandi fram- kvæmd verksins. Prófunin og eftirlitið með því að þjónar þegnanna hafi leyst sitt starf rétt af hendi á síðan að vera í hönd- um sömu aðila og mótuðu stefnuna í upphafi. Þannig fær hinn opinberi aðili eðlilegt aðhald og kerfið ætti að geta orðið virkara en núverandi blanda af opinberum fulltrúum og fulltrúum atvinnulífsins. Til þess að tengja skólann og þá sem hann þjónar þarf að koma á fundum, einum á önn milli verk- stjóra sem taka við skólanemum til starfsþjálfunar og starfsfólki bóka- gerðardeildarinnar. Sömu aðilar ættu einnig að stunda vistaskipti á víxl þannig myndi gagnkvæmur skilningur aukast og sleggjudómum fækka. 22 PRENTARINN 1.6.86

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.