Prentarinn - 01.01.1986, Side 29

Prentarinn - 01.01.1986, Side 29
— Hún verður að treysta innviði sína, opna augu fólks fyrir þeim hættum sem að steðja. — í því sambandi skiptir höfuð máli að lögð verði rækt við að vekja unga fólkið til meðvitundar. — Hefja verður markvisst áróðurs- stríð. — Verkalýðshreyfingin verður sam- einuð að vinna að þessu máli, ef hún stillir ekki strengi sína innávið og á milli landa er hætt við að stríð- ið tapist. — NGU ætti að beita hér öllum sínum kröftum og ekki linna látum fyrr en viðunandi árangur hefur náðst. Staðreyndin er sú að þessi tækni býður uppá fækkun atvinnutækifæra og atvinnuöryggi verkafólks mun eng- in verja nema það sjálft í krafti sam- taka sinna. Verkafólk hefur aldrei staðið frammi fyrir jafn stórum breytingum tæknilega séð og nú, allt sem hefur á undan komið er hreinn barnaleikur á við örtölvutæknina. Á meðan verka- lýðshreyfingin hefur ekki meiri áhrif á innleiðingu örtölvutækninnar í at- vinnulífinu en raun ber vitni, er voð- inn vís. Án samstöðu í baráttunni fyrir réttindum verkafólks verður maðurinn einn og þá vinnast engir sigrar. Miljarðir marka Að lokum viljum við geta þriggja erinda sem flutt voru á ráðstefnunni. í fyrsta lagi erindis Simo Karthinen frá þróunarrannsóknastofu í grafisk- um iðnaði. Staðhæfði hann í erindi sínu að eftir 10-15 ár yrði nánast eng- in innskrift á beinum texta, eins og við þekkjum hana í dag, til lengur. Af þeirri grein yrði einungis eftir setning aulýsingatexta og því um líkt. í öðru lagi tveggja erinda um sama málaflokk þ. e. húsnæðismál og fé- lagslegt öryggi ungs fólks í Finnlandi. Þessi erindi voru annars vegar flutt af þingmanni og hins vegar af ritara Al- þýðusamtakanna. í máli þeirra beggja kom fram að húsnæðisskortur, sér- staklega í Suður-Finnlandi, væri al- varlegasta vandamálið sem ungt fólk þyrfti að glíma við. Síðan atvinnumál- in, þrátt fyrir þá staðreynd að í Finn- landi séu um 150-200.000 manns und- ir þrítugu atvinnulausir. Þegar þau töluðuð um húsnæðismálin fannst okk- ur sem sú lýsing ætti fullt eins vel við um ísland. Nema að því leyti að finnska þingið er búið að ákveða að verja miljörðum marka til að bæta hér úr en ekki minntumst við neinnar slíkrar ákvörðunar okkar löggjafar- þings. Heldur þvert á móti. Hjá okkur stefna stjórnvöld að því að setja eignir ungs fólks á uppboð og gera því ókleift að koma sér upp húsnæði. Mjög góð skipulagning var á allri ráðstefnunni og unnið mjög vel þá daga sem hún stóð, bæði í hópstarfi og á fundunum þar sem m. a. niðurstöð- ur hópstarfsins var tekið fyrir. Finnst okkur að fundir sem þessi hafi mikla þýðingu, bæði hvað varðar aukið félagslegt víðsýni og einnig per- sónuleg kynni félaganna. BJ, EJ og ÞG Æskan á fundi. ' t ! | JMMÉk ^ f .:f ... -4 r «S|

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.