Prentarinn - 06.04.1992, Side 16

Prentarinn - 06.04.1992, Side 16
Unnið að gróður- setningu á útivistarsvæðinu Þá hefur verið lagt til að yfirstjórn námsins verði í höndum sérstakrar nefndar sem í sitji fulltrúar atvinnulífs og skóla og séu fulltrúar atvinnulífs í meirihluta. Verkefni slíkrar nefndar yrðu m.a. að ákveða innihald náms- ins, sjá um stöðuga endurskoðun þess, ákveða hvaða fyrirtæki megi taka nema, hafa eftirlit með kennslugæð- um í skóla og fyrirtækjum, meta þörf fyrir nýja menntun og hafa yfirumsjón með sveinsprófum. Pá hefur Prenttæknistofnun lagt fram grófa hugmynd um innihald námsgreinanna með tilliti til framtíð- arþarfa iðnaðarins. Mestu breyting- arnar verða, samkvæmt þeim, á prentsmíðinni, en þar má segja að byggð verði upp ný iðngrein, en prentun og bókband frekar lagaðar að þörfum atvinnulífsins. Markmið prentsmíðanámsins er að veita nemendum grundvallarþekkingu og færni í grafískri texta- og mynd- vinnslu með tölvutækni með sérstakri áherslu á hönnun. Markmið prent- námsins er að veita nemendum þekk- ingu á prentferlinu og færni í meðferð og notkun prentvéla og efna. Mögu- leikar til sérhæfingar þurfa að vera innbyggðir í prentnámið, bæði hvað varðar prentaðferðir og afurðir. Markmið náms í bókbandi er að veita grundvallarþekkingu og færni í alhliða frágangi prentgripa eftir að prentun er lokið. í öllum greinum verði lögð áhersla á gæðastýringar og að menn skilji prentferlið allt og þau vandamál sem þar er að fást við. Hópvinnufyrirkomulag, sem eykst stöðugt að vægi í prentiðnaði, leggur öllum sem vinna að framleiðslu prent- gripa meiri ábyrgð á herðar, en venja er til í hefðbundnu vinnsluferli. Það er mikilvægt að nemendur verði látnir skynja þessa ábyrgð, bæði í skóla og fyrirtæki. Stefnan varðandi kennslu- aðferðir byggist á því að fag gangi fyr- ir tækni - tækniþekking sé byggð of- aná fagþekkingu, þannig að breyting- ar á tækni kollvarpi ekki náminu. í stórum dráttum má fullyrða að fyrirliggjandi tillögur geri meiri kröfur til skóla, fyrirtækja og nemenda. Síðstu árin hefur prentiðnaður átt undir högg að sækja gagnvart öðrum iðngreinum og námsmöguleikum. Okkur vantar fleira ungt og hæfileika- ríkt fólk til starfa, sérstaklega á þetta við um prentun og bókband. Til þess að prentiðnaður sé áhugaverður kost- ur fyrir unglinga, sem eru að velja sér lífsstarf, þurfum við að bjóða þeim upp á atvinnu sem er þeim samboðin; sem gerir kröfur til þeirra og leyfir þeim að njóta hæfileika sinna, en ekki síður verður að tryggja góða eftir- menntunarmöguleika, skemmtilegt starfsumhverfi, atvinnuöryggi og góð laun. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því, að á hæfileikum iðnnemanna veltur framtíð atvinnugreinarinnar. I hverju einasta fyrirtæki þarf að leggja meiri rækt við þessi mál, skilgreina þarfirnar og stýra eftir því. Sókn eftir þekkingu og færni þarf að vera hluti af móralnum. Látnir félagar Frá síðasta aðalfundi hafa fimm fé- lagsmenn látist: Hans Elías Þórodds- son, Gunnar Sigurmundsson, Jóhanna Einarsdóttir, Þórhallur Már Sig- mundsson og Haukur Einarsson. Félagaskrá Breytingar á félagaskrá frá síðasta að- alfundi hafa orðið sem hér segir: Sam- þykktar inntökubeiðnir samtals 67. Núna er skráður 991 félagsmaður í FBM, þar af eru 60 ellilífeyrisþegar, sem hættir eru störfum. Skiptingin er að öðru leyti þannig: Iðnlærðir félagar eru 588, starfsþjálfunarnemar eru 52, ófaglærðir félagar (innskrift, aðstoð- arfólk í bókbandi og prentun) eru 291. Útgáfumálin - Prentarinn Á síðasta ári voru gefin út tvö tölu- blöð af Prentaranum. Ritstjóri blaðs- ins ber hér að sjálfsögðu mesta ábyrgð á og skal á engan hátt undan því vik- ist. Viðbrögð félagsmanna við efni blaðsins hafa undantekningarlítið ver- ið jákvæð. Óskir hafa komið fram um að auka útgáfutíðni Prentarans. Rit- stjóri blaðsins hefur jafnan tekið heils- hugar undir þær óskir en einnig bent á þá staðreynd að til þess að svo geti orðið verði félagsmenn að vera iðnari við að skrifa greinar í blaðið og/eða að ráðinn verði starfsmaður til að sinna útgáfumálum félagsins. Á aðalfundinum í fyrra kom fram svohljóðandi tillaga: „Leggjum til að Georg Páll Skúlason og Helgi Hólm verði kjörnir í ritnefnd til að starfa með ritstjóra að útgáfu Prentarans.“ Tillaga þessi var samþykkt. Engu að síður skulu þau tilmæli til félagsmanna ítrekuð að skrifa greinar í Prentarann um hvað sem er, en þó helst málefni er snerta fagið og félagsmálin. Útgáf- an eykst ekki af sjálfu sér. Því er mik- ilvægt að félagarnir sinni þessum ósk- um og sendi blaðinu greinar. Kjaramálin Kjarasamningur félagsins frá 1. mars 1990 rann út hinn 15. september 1991. Þegar í byrjun ágústmánaðar á liðnu ári hóf stjórn félagsins umfjöllun um væntanlega kröfugerð í komandi samningum og eðlilega fór síðan frek- ari umræða og undirbúningur fram í trúnaðarmannaráði. Síðan var samhljóða samþykkt til- laga til félagsfundar um kröfugerðina á fundi stjórnar og trúnaðarmanna- ráðs 29. ágúst s.l. Félagsfundur var 16 PRENTARINN 1.12/92

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.