Prentarinn - 06.04.1992, Side 17

Prentarinn - 06.04.1992, Side 17
Matarhlé - svið og samlokur síðan haldinn 4. september og þar var eftirfarandi kröfugerð samþykkt. 1. Að launataxtinn verði gerður virkari með sérstakri hækkun. I sam- ræmi við kjarakönnun í jan. 1990, að viðbættum umsömdum %-hækkunum síðan, verði lægstu laun: á viku á mán. 1. Iðnsveinar/texta- innritarar .....kr. 22.600 97.858 2. Aðstoðarfólk .... kr. 16.300 70.579 Þeir sem hafa fyrir samning hærri laun en að ofan greinir skulu hækka um sömu krónutölu og grunntaxtinn hækkar. 2. Starfsaldurshækkanir. Starfsald- urshækkanir verði með svofelldum hætti: Eftir 1 ár hækki laun viðkomandi um 6% Eftir 3 ár hækki laun viðkomandi um 7% Eftir 5 ár hækki laun viðkomandi um 8% Eftir 7 ár hækki laun viðkomandi um 10% Eftir 5 ár hjá sama fyrirtæki hækki laun viðkomandi um 16% Eftir 7 ár hjá sama fyrirtæki hækki laun viðkomandi um 20% 3. Aukavinnukaup: Starfsmaður skal fá alla aukavinnu greidda með 100% álagi á heildardagvinnulaun sín, sem miðast við 40 klst. vinnuviku (deilitala 40). 4. Vaktaálag: Vaktaálag hækki og verði svo: Meðalálag 20% á tvískiptar vaktir. Vaktavinna við dagblöð, tví- skiptar vaktir 26%. Vaktavinnukaup, unnin kvöldvakt 32%. 5. Júlíuppbót. Þann 1. júlí og eigi síðar en 15. júlí ár hvert skal fastráðnu starfsfólki, sem unnið hefur í 1 ár, greidd júlíuppbót er nemi einum viku- launum viðkomandi. 6. Desemberuppbót. Þann 1. des- ember og eigi síðar en 15. desember ár hvert skal fastráðnu starfsfólki, sem unnið hefur 1 ár, greidd desember- uppbót kr. 12.000. 7. Veikindi í orlofi. 8.6. „Veikist launþegi hér innanlands það alvar- lega, ... “ Breytist og hljóði svo: Veik- ist launþegi það alvarlega ... “ .8. Veikindi barna. 6.3. „Foreldri er heimilt að verja samtals 7 vinnudög- um ... “ Breytist og hljóði svo: For- eldri er heimilt að verja samtals 15 vinnudögum ... 9. Sumar- og vetrarorlof. 8.2. „Óski bókagerðarmaður með 9 ára starfsreynslu ... “ Breytist og hljóði svo: Óski bókagerðarmaður með 6 ára starfsreynslu ... 10. Taka fæðingarorlofs, innan marka laga um fæðingarorlof, skerðir ekki orlofslaunagreiðslu. 11. Laun félagsmanna sem sótt hafa námskeið á vegum Prenttæknistofn- unar hækki um 10-20% eftir umfangi námskeiðs. Stjórn Prenttæknistofnun- ar metur námskeiðin og skal vera samstaða um úrskurð í stjórninni. 12. Vinnuvikan skal vera 35 dag- vinnustundir. 13. Samið verði um kaupmáttar- tryggingu svo kaupmáttur umsaminna launa rýrni ekki á samningstímanum. Þegar að félagsfundi loknum var óskað eftir samningafundi með at- vinnurekendum. Fyrsti samningafund- urinn var síðan haldinn 17. september s.l. Þar var kröfugerðin lögð fram og kynnt atvinnurekendum. Á þessum fundi fengust því miður engar efnis- legar umræður um kröfur okkar. Andspænis okkur sátu atvinnurekend- ur, með sinn varðhund, og sögðu: Við ykkur verður ekki rætt fyrr en í ljós kemur hver framvinda samningamál- anna verður almennt. Svo sem komið hefur fram á trúnaðarráðs- og félags- fundum síðan, höfum við ekki viljað mæta þessari afstöðu með sérstökum hætti. í lok þessa fyrsta samninga- fundar óskaði stjórn FBM mjög ein- dregið eftir því við atvinnurekendur, að annar fundur yrði haldinn sem allra fyrst. Atvinnumálin Á liðnu starfsári hefur verið viðvar- andi atvinnuleysi hjá félagsfólki okk- ar. Á undanförnum vikum og mánuð- um hafa atvinnuhorfur versnað. Er svo komið að 27 félagar, eða um 3,1% félagsmanna, eru á atvinnuleysisskrá þegar þetta er skrifað. Eftir störfum skiptist atvinnuleysið þannig: Fimm setjarar, sex textainnritarar, þrír í ljós- myndun og skeytingu, tveir of- fsetprentarar, tveir hæðarprentarar, þrír starfsþjálfunarnemar í prentsmíð og sex úr aðstoðarstörfum. Sem sagt 12 iðnlærðir, 3 í starfsþjálfunarnámi og 12 ófaglærðir félagsmenn. Atvinnuleysisbótatíminn er nú að hámarki 52 vikur af hverjum 68 og há- marksupphæðin er kr. 10.524 á viku, auk kr. 421 með hverju barni undir 18 ára aldri. Starfsmenn félagsins hafa lagt sig mjög fram um að útvega atvinnulaus- um félögum störf. Margoft hafa kjara- samningsákvæðin um ráðningu starfs- fólks verið ítrekuð, bæði við einstaka atvinnurekendur sem og samtök þeirra. Nokkur árangur hefur náðst með því - en engan veginn fullnægj- andi. Því verður að sjálfsögðu áfram haldið að krefjast ráðningar atvinnu- lausra félaga í laus störf. Sé litið til þeirrar þróunar er átt hefur sér stað innan prentiðnaðarins að undanförnu, bendir því miður ákaflega lítið til þess að atvinnuhorfur muni batna á næstunni. Á þessari stundu virðist, því miður, fleira benda til jafn slæmrar stöðu, ef ekki verri, a.m.k. næstu mánuði. Vinnustaðafundir Á liðnu starfsári voru að venju haldnir vinnustaðafundir. Samningsákvæði okkar um þessa fundi veita okkur rétt til að halda tvo slíka á ári hjá hverju fyrirtæki. Til þeirra má verja einni klst. af dagvinnutíma í hvort sinn. PRENTARINN 1.12. '92 17

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.