Prentarinn - 06.04.1992, Page 19
í byggingu
Á liðnu ári kom fram sérstök ósk
frá norrænum félögum okkar, þess
efnis að höfuðborgaráðstefnan yrði
haldin í Reykjavík árið 1991. Ráð-
stefnur þessar hafa verið haldnar í
áratugi, annað hvert ár, til skiptis í
höfuðborgum fjögurra Norðurland-
anna. Þar höfum við jafnan átt einn
fulltrúa. Að þessu sinni óskuðu sem
sagt norrænu félagarnir eftir því að
ráðstefnan yrði haldin hér á landi dag-
ana 24.-26. október. Hlutverk okkar
var fyrst og fremst að sjá um undir-
búning, skipulag og framkvæmd.
Stjórn félagsins ákvað að taka þetta
verkefni að sér og eftir á er hægt að
fullyrða að það hafi verið rétt ákvörð-
un og framkvæmdin tókst í alla staði
mjög vel.
Dagskrá þessarar ráðstefnu var
mjög ströng, enda stórmál til umfjöll-
unar: um EB og EES; atvinnuleysis-
mál bókagerðarmanna í norrænu höf-
uðborgunum og hvað geta félögin gert
til aðstoðar atvinnulausum; endur-
menntun í okkar faggreinum. Sérstak-
ir framsögumenn voru um hvern dag-
skrárlið og síðan almennar umræður
og fyrirspurnir á eftir.
Þrjátíu og tveir norrænir félagar
tóku þátt í ráðstefnu þessari, þar á
meðal allir stjórnarmenn okkar. For-
maður FBM flutti setningarávarp ráð-
stefnunnar og stjórnaði henni. Eini
kostnaðurinn sem félagið bar af ráð-
stefnunni var vegna móttöku í félags-
heimilinu og eins kvöldverðar fyrir
alla þátttakendur.
Öryggisnefnd
Öryggisnefnd prentiðnaðarins er skip-
uð eftirtöldum mönnum: Svani Jó-
hannessyni og Þóri Guðjónssyni frá
Félagi bókagerðarmanna, en frá Fé-
lagi ísl. préntiðnaðarins eru þeir Örn
Jóhannsson og Steindór Hálfdánarson
í nefndinni.
Nokkurt hlé varð í störfum nefndar-
innar fyrri hluta ársins, en menn voru
samt ekki aðgerðarlausir, því unnið
var að könnun á tíðum slysum í prent-
smiðjunum. Á fundi í desember 1991
skýrði formaður nefndarinnar frá því
að á skömmum tíma hefðu orðið 5
slys í iðninni. Þessi slys hefðu aðalega
orðið þegar verið var að þvo prentvél-
arnar og menn hefðu farið í valsana.
Haft var samband við Vinnueftirlit
ríkisins og óskað eftir að þeir gæfu
okkur skýrslur um þessi slys sem orð-
ið hafa á sl. 2 árum.
Ákveðið var að gefa út veggspjald
og dreifa í prentsmiðjurnar í áróðurs-
skyni til varnar þessari slysaöldu.
I skýrslum Vinnueftirlitsins sem ná
yfir tímabilið frá júní 1989 og til júlí
1991 kemur fram að af 13 slysum er í 7
tilfellum um nema og ófaglærða að
ræða. Þá kemur fram að af þessum
slysum eru 9 valsaslys og vél í gangi
meðan verið er að hreinsa valsana.
Öryggisnefndin hefur fjallað um
niðurstöður þessarar könnunar og
verður bent á þessi atriði á vegg-
spjaldinu sem dreift verður nú í apríl.
Á síðasta fundi nefndarinnar í mars
s.l. var sagt frá fundi sem Vinnueftir-
litið hélt nýlega og var þar sagt frá því
að nú væri að hefjast Vinnuverndarár
Evrópu og verður átak nefndarinnar
gegn slysum einn þátturinn í því starfi
sem framundan er.
Sjúkrasjóðurinn
Sjúkrasjóðurinn okkar hefur sem fyrr
reynst traustur bakhjarl þeim félögum
sem til hans hafa þurft að leita.
Á síðasta ári voru sjúkradagpening-
ar greiddir úr sjóðnum til 21 félags-
manns. Að sjálfsögðu er það algerlega
einstaklingsbundið hversu lengi hver
félagi þarf á sjúkradagpeningum að
halda. Fer það eftir því hversu lengi
hann er frá störfum eftir að samnings-
bundum greiðslum atvinnurekenda
lýkur. Þannig vara sjúkradagpeninga-
greiðslur frá nokkrum dögum og allt
að heilu ári.
Víst er að sjóðurinn veitir þeim, er
fyrir langvarandi veikindum verða,
mikið fjárhagslegt öryggi, enda er það
hans aðalhlutverk. Þá veitti sjóðurinn,
eins og reglugerð hans kveður á um,
útfararstyrki vegna þeirra félaga er
létust á árinu.
I samræmi við annan aðaltilgang
sjóðsins, þ.e. að stuðla að fyrirbyggj-
andi heilsuvernd, þá voru námskeið
hjá Mætti verulega niðurgreidd. Einn-
ig hafa hliðstæð námskeið verið niður-
greidd hjá líkamsræktarstöðvum á
Akureyri, fyrir félagsmenn þar bú-
setta. Ánægjulegt er til þess að vita að
margir félagsmenn hafa nýtt sér þessa
fyrirgreiðslu. Þá hafa nokkrir félagar,
er gengist hafa undir hjartaaðgerðir,
fengið styrk til að standa straum af
kostnaði vegna endurhæfingar. Einnig
hefur sjóðurinn greitt 50% af hlut fé-
lagsmanns í sjúkranuddi, enda sé í
það farið að tilvísun læknis.
Alls fengu 46 félagar styrk af þess-
um toga á liðnu starfsári.
Fræðslusjóður bókagerðar-
manna
Á liðnu ári markaðist starf fræðslu-
sjóðsins einkum af tvennu. I fyrsta
lagi styrkveitingum til náms, lengri og
skemmri utanferða og í öðru lagi að-
stoð og styrkveitingu til Prenttækni-
stofnunar.
Hvað varðar styrkveitingu til náms
erlendis, skiptust þær svo: 24 félagar
fóru á námskeið hjá Heidelberg, 6 á
námskeið hjá Anitec, 2 félagar fóru til
Dainippon Screen. Öll þessi námskeið
stóðu fóra til fimm daga. Þá veitti
sjóðurinn 7 styrki til félagsmanna
vegna lengra náms.
í fyrra veitti fræðslusjóðurinn styrk
PRENTARINN 1.12. '92
19