Prentarinn - 27.09.1992, Blaðsíða 3
Ríkisstjórn aukins
atvinnuleysis
- Nú skal ráðist gegn prentiðnaðinum
Fjármálaráöherra hefur lagt fyrir ríkisstjórnina
tillögu um afnám endurgreiðslu virðisaukaskatts
af aðföngum til bóka-, blaða- og tímaritagerðar.
Ríkisstjórnin mun hafa tekið tillögu þessari
fagnandi og á þessari stundu er ekki útlit fyrir
annað en að hún verði samþykkt.
Hvað FBM varðar þá höfum við vissulega
mestar áhyggjur af atvinnuþætti þessa máls,
þótt menningarlegi þátturinn vegi hér vissulega
einnig mjög mikið.
Það er svo að til margra ára hafa íslenskar
prentsmiðjur verið í harðvítugri samkeppni við
erlend prentfyrirtæki, hér á innanlandsmarkaði.
Staðreynd er að sífellt fleiri verkefni eru prentuð
erlendis.
Ef nú þessi tillaga nær fram að ganga má
telja fullvíst að:
- bókaútgáfufyrirtæki munu í enn ríkari mæli
láta vinna bækurnar erlendis
- bókaklúbbar fara mjög sennilega allir með út-
gáfu sína erlendis (nú þegar er allur kilju-
klúbbur M og M prentaður í Skotlandi) og láta
senda bækurnar þaðan beint til kaupenda
- tímaritaútgáfan mun að talsverðu leyti fara
sömu leið og bókaklúbbarnir.
Reiknimeistarar ríkisstjórnarinnar áætla að
ríkissjóður fái 150 millj. kr. í auknar tekjur við
þessa aðgerð. Þá er miðað við hvað endurgreitt
var af þessum sökum á s.l. ári. Reiknimeistar-
arnir gefa sér það að samþykkt tillögunnar hafi
engin áhrif, þ.e. gera ráð fyrir jafnmikilli fram-
leiðslu og sölu hér innanlands á næsta ári og
var árið 1991. Þetta eru vitaskuld forsendur sem
alls ekki standast. Það er alveg Ijóst að sam-
þykkt tillögunnar mun hafa í för með sér veru-
legan samdrátt í prentiðnaðinum og auk þess
mun minna verða keypt af bókum. Það þýðir þá
líka lægri skattgreiðslur einstaklinga og fyrir-
tækja - og aukin útgjöld til Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs. Krafa er gerð um að dæmið verði
rétt reiknað og til enda. Þá mun koma í Ijós að
„tekjuauki" ríkissjóðs verður mjög óverulegur.
Ef ríkisstjórnin er þá tilbúin til að taka jafn af-
drifaríka áhættu, atvinnu- og menningarlega, þá
er hún ógæfusamari en við eigum skilið og líð-
andi er.
Atvinnuleysi hefur verið viðvarandi í okkar
röðum frá árinu 1988. Það hefur aldrei orðið
eins mikið og á þessu ári, var um 4,7% á vor-
mánuðum en er núna, þegar „vertíðin" er komin
í gang, 3,8% eða 32 félagar. Við áætlum - og
teljum það alls ekki ofmetið - að samþykkt til-
lögunnar myndi hafa það í för með sér að at-
vinnuleysið færi í 10-12%, eða 85-100 manns.
Þá er ekki gert ráð fyrir því að nokkurt fyrirtæki
fari á hausinn af þessum sökum, sem er trúlega
alltof mikil bjartsýni. Þetta er sú alvarlega mynd
sem við okkur blasir og við verðum að koma í
veg fyrir að verði að veruleika. Félagar. Við
verðum allir að leggjast á eitt til að freista þess
að hrinda þessari atiögu.
27. sept. 1992. Þ. G.
PRENTARINN - málgagn Félags bókagerðarmanna • Útgefandi FBM
Flverfisgötu 21 P.O. Box 349 121 Reykjavík • Ritstjóri: Þórir Guðjóns-
son. Ritnefnd: Elín Sigurðardóttir, Georg Páll Skúlason, Þorsteinn Vet-
urliðason • Prentsmíð, prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. •
Letur: Times og Helvetica •
PRENTARINN 3.12. '92
3