Prentarinn - 01.04.2003, Blaðsíða 11

Prentarinn - 01.04.2003, Blaðsíða 11
ÁRITUN ENDURSKOÐENDA Við höfum endurskoðað ársreikning Félags bókagerðarmanna og sjóði í vörslu þess fyrir árið 2002. Arsreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikninga, efnahagsreikninga og sjóðstreymi ásamt skýringum og sundurliðunum nr. 1—31. Endurskoðað var í samræmi við góða endurskoðunarvenju. Samkvæmt því ber okkur að skipuleggja og haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg vissa fáist um að ársreikningurinn sé í aðalatriðum án annmarka. Endurskoðunin felur í sér athuganir á gögnum með úrtakskönnunum til að sannreyna fjárhæðir og upplýsingar sem koma fram í ársreikningnum. Endurskoðunin felur einnig í sér athugun á þeim reikningsskilaaðferðum og matsreglum sem notaðar eru við gerð ársreikningsins og mat á framsetningu hans í heild. Við teljum að endurskoðunin sé nægjanlega traustur grunnur til að byggja álit okkar á. Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstri félagsins og sjóða þess á árinu 2002, efnahag 31. desember 2002 og breytingu á handbæru fé á árinu 2002 í samræmi við lög félagsins og góða reikningsskilavenju. Reykjavík, 25. mars 2003. DFK Endurskoðun Gunnar M. Erlir^gssan, löggiltur endurskoðandi. ÁRITUN FÉLAGSKJÖRINNA SKOÐUNARMANNA Við undirritaðir, félagskjörnir skoðunarmenn Félags bókagerðarmanna, höfum yfirfarið ársreikning félagsins fyrir árið 2002 og leggjum til að hann verði samþykktur. Reykjavík, 25. mars 2003. dóttir og Sigurður Valgeirsson. Formaður er Sæmundur Amason. Frá síðasta aðalfúndi hefúr stjórnin haldið 22 stjómarfúndi þar sem tekin hafa verið íyrir fjölmörg mál og málaflokkar. Eins og nærri má geta er hér um að ræða mál sem þarfnast mis- mikillar umfjöllunar, allt frá því að vera einfold afgreiðslumál til stærri og viðameiri mála, sem þá gjarnan em tekin fyrir á fleiri en einum fúndi sem er æskilegt og nauðsynlegt þegar um mikilvæg og vandmeðfarin mál er að ræða. A starfsárinu varð sú breyting á stjóm að Vigdís Ósk Sigurjóns- dóttir lét af störfum og Stefán Ólafsson tók sæti í aðalstjóm. Stefán Karl Haraldsson í Odda. Erling Ólafsson í Odda. Formaður FGT, Kalman le Sage de Fontenay hefur einnig setið stjórnarfundi FBM. TRÚNAÐARRÁÐ Framboðsfrestur til trúnaðar- ráðs rann út 8. október 2002. Einn listi barst og var því sjálf- kjörið. Trúnaðarráð FBM frá 1. nóvember 2002 til 31. október 2004 er því skipað eftirtöldum fé- lagsmönnum. Aðalmenn: Anna Helgadóttir, Elín Sigurðardóttir, Hallgrímur Helgason, Helgi Jón Jónsson, Hinrik Stefánsson, Hrefna Stef- ánsdóttir, Kristín Helgadóttir, Kristján S. Kristjánsson, Marinó Önundarson, Marsveinn Lúðvíks- son, Oddgeir Þór Gunnarsson, Ólafur H. Theódórsson, Páll Heimir Pálsson, Pétur Marel Gestsson, Reynir S. Hreinsson, Sigrún Karlsdóttir, Sigurður Val- geirsson, Stefán Ólafsson. Varamenn: Entil H. Valgeirs- son, Gunnar R. Guðjónsson, Hrafnhildur Ólafsdóttir, Kolbeinn G. Bergsteinsson, Svanur Jóhann- esson, Trausti Finnbogason. Á starfsárinu varð sú breyting að Kolbeinn G. Bergsteinsson fór til annarra starfa og sagði af sér í trúnaðarráði. Frá síðasta aðalfundi hafa verið haldnir 4 fúndir í trún- aðarráði þar sem fjallað hefúr verið um ýmis mál félagsins. TRÚNAÐARMENN Þann 15. október 2002 hófst nýtt tveggja ára kjörtímabil trún- aðarmanna á vinnustöðum. Því PRENTARINN ■ 1 1

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.