Prentarinn - 01.04.2003, Blaðsíða 8

Prentarinn - 01.04.2003, Blaðsíða 8
Við matarborðið, talið frá vinstri, Margrét Ásta Jónsdóttir, Guðmundur Hjörtur Einarsson, Jóhann Petersen, Hafdís Hlöðversdóttir, Berglind Hafþórsdóttir, Rósmundur Magnússon, Hólmar Þórhallsson og Emil H. Björnsson. Starfsmannafélagiö Prisma Prentco / prentsmiðjunni Prísma Prentco vinna 14 manns í heild með eigendum, starfs- mannafélagið hjá okkur er ungt og vinnur þannig að einhver kemur með tillögu, hún er rædd og svo er hún framkvæmd. Á síðasta ári voru fyrstu skrefin tekin. Með óreglulegu millibili var haft bjórkvöld en svo fór þetta af stað. 10. maí var ákveðið að hafa grill eftir vinnu og að sjálfsögðu þarf fólk eitt- hvað til að renna matnum niður með. Lukkaðist þetta mjög vel, einn af okkur hafði myndavél með sér í vinnuna og eru þetta einu myndirnar sem til eru af þessum gleðskap okkar. Sumarið gekk í garð og fólk fer í sumarfrí en þegar haustið var komið á almanakinu þá varð það til þess að við höfðum bjórkvöld. Fyrstu helgina í október átti að vera árshátíð starfs- mannafélagsins en við frestuðum því um eina helgi og örkuðum ásamt Hér er skemmtilegt, Hafdís Hlöðversdóttir og G. Hjörtur okkar mökum á Broadway Einarsson. Hjörtur Haraldsson fékk það hlutverk að grilla í mannskapinn. þar sem Viva Latino skemmtidagskrá var. Eigendur Prisma Prentco buðu svo starfs- mönnum og mökum á jólahlaðborð rétt fyrir jól á A. Hansen. Þetta var gott byrjunarár fyrir okkur en nú er næsta byrjað PRENTCO og ekki var liðið mikið á nýtt ár þegar við fórum eftir vinnu í keilu í Keiluhöllinni. Var mjög góð mæting og spil- að var á þremur brautum. Svo er það síð- asta sem við gerðum það var að hafa þorrablót með tiheyrandi mat og drykk í lok þorra og okkur fannst þetta misgott. Nú er sólin að hækka á lofti og ekki er búið að setja neina dagsetningu fyrir hvað verður næst. 8 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.