Prentarinn - 01.11.2005, Blaðsíða 11
Varst þú eini Islendingurinn
þarna?
Það var strákur þarna sem heitir
Heimir en hann var á þriðja ári
þegar ég var á fyrsta ári. Ég hitti
hann ekki mikið þá en við erum
góðir vinir í dag. Einhverjir komu
og voru eitt ár eða svo og hættu af
einhverjum ástæðum en Heimir
stóð sig mjög vel og það var
mikið talað um hann í skólanum
og það er honum að þakka að
íslendingar eru þarna i miklu áliti.
Og varstu þá þarna allt í allt í
þrjú ár?
Ég var miklu lengur í London.
Bjó þar í næstum sex ár. Ég
ætlaði að koma heim eftir námið
en fékk enga vinnu á Islandi. Ég
sótti um á fullt af stöðum, í
flestum prentsmiðjum, en það var
eiginlega enginn sem svaraði
mér. Ég fékk svo vinnu hjá RR
Donnelley Financial sem var ein
stærsta prentsmiðjan í heiminum,
allavega á þeim tíma og ég var
þarna í deild sem hét RR Donn-
elley Financial og var í City of
London, fjármálaiiverfinu, og var
að þjónusta banka og fyrirtæki
sem voru í stórum yfirtökum og
skuldabréfaútgáfum o.s.frv.
Ég var framleiðslustjóri þar,
einn af fjórum. Við fengum fyrir-
tæki til að prenta fyrir okkur og
fórum þar inn sem framleiðslu-
stjórar og fylgdum verkunum eftir.
Þetta þurfti oftar en ekki að stand-
ast mjög stranga tímaáætlun vegna
þess að í þessum fyrirtækjum
þurftu allir hluthafar að fá sömu
upplýsingar á sama tíma og það
skipti mjög miklu máli, auðvitað,
að allt væri rétt og á réttum tíma.
Það má segja að við tækjum þessi
prentfyrirtæki yfir meðan á þessu
stóð og verkin voru að fara í gegn,
enda greiddum við þeim vel fyrir.
Ég var þama í tvö ár og þetta
var mjög skemmtilegt. Ég ferðað-
ist líka út um allan heim og fór
þá meðal annars í fyrsta skipti til
Hong Kong. Svo fer ég í skóla
aftur, með góðri aðstoð fyrirtæk-
isins og tók þar mastersgráðu í
rekstrarhagfræði, MBA. Það tók
tæp tvö ár og þetta nám var alveg
ótengt prentinu þannig, þetta var
bara bissniss.
Svo kemurðu heim?
Eftir þetta allt saman ákveð ég
það að koma bara heim og fékk
bara
/
100 o
d
O
d
Birgir Jónsson prentari og forstjóri Iceland Express.
próf í Printing Management. Þama
kom reynslan úr prentinu sér mjög
vel. Þetta gekk út á framleiðslu-
stýringu, millistjómun; ekkert ólíkt
og viðskiptafræði er hér.
Og hvað tók þetta nám langan
tíma?
3 ár. Þetta var mjög fínn skóli
og ekkert hægt nema gott um
hann að segja.
Ener
Jakob Viðar Cuðmundsson
Það er óhcett að segja að það
hafi mikið vatn runnið til sjávar
hjá Birgi Jónssyni frá því að
hann hœtti sem prentari i Odda
jyrir um það bil tiu árum. Hann
er i dag forstjóri Iceland Express.
Eg settist niður með Birgi og bað
hann að segja mér hvað hefði á
daga hans drifið undanfarin tiu
ár eða svo.
Byrjaðir þú sem aðstoðarmaður í
Ódda?
Nei, í rauninni ekki. Að vísu
byrjaði ég að vinna aðstoðarstörf
en ég réð mig þarna til þess að
fara á samning. Auðvitað byrjaði
maður á því að þrífa og burðast
með eitthvert drasl. Ég er
hugsanlega versti prentari sem
kerfið hefur skilað af sér. Ég held
að ég hafi verið einstaklega lé-
legur prentari og ég held að mér
hafi tekist að eyðileggja svona 70
prósent af öllum djobbum sem ég
kom nálægt. Ég var frægur niðri
á pappírslager fyrir það að ég var
alltaf að fá meiri pappír.
Þú tekur sveinsprófið '95.
Vannstu eitthvað við prentverk
eftirþað?
Nei, það get ég varla sagt.
Kanske einhverja mánuði en
þetta var svolítið þannig að mér
fannst þetta frekar leiðinlegt, sem
kannske var út af því hvað ég var
lélegur í þessu. Mér fannst ég
verða að finna mér einhverja leið
út úr þessu.
Og leiðin út var að fara í
skóla?
Já.
Hvernig nám var þetta?
Þetta var svona blanda af prent-
tæknifræði, viðskiptafræði og
rekstrarfræði og ég tek þama B.A.
PRENTARINN ■ 11