Prentarinn - 01.11.2005, Blaðsíða 22

Prentarinn - 01.11.2005, Blaðsíða 22
„Þú þarft ekki að banka. Gakktu inn.“ Eg opnaði dyrnar hálfhikandi. Hann stóð við skrifborðið í stórri skrifstofunni, vinstra megin var teikniborðið með skissum og teikningum af titilsíðum, auglýs- ingum og öðrum prentgripum, hægra megin bókahillur, þar sem við blöstu fallegar bækur með upphleyptum kjölum og skrauti. Hann brosti kankvíslega til mín. „Þú varst kvíðinn og tauga- óstyrkur í prófinu. Fannst þér ég kannski strangur kennari?“ Eg játti því. „Þú stóðst þig með prýði.“ Ég leit undrandi á hann. „Já, ég held að mér hafi tekist að gera úr þér góðan fagmann. Það var alltaf ætlunin. Þú mætir svo í útskriftarhófið í næsta mánuði.“ A þessari stundu opnuðust augu mín fyrir tilganginum með hinni öguðu kennslu. Meistarinn vildi mér aðeins vel. Hann sætti sig ekki við neitt annað en topp- árangur. Mér tókst að þakka honum fyrir mig og kveðja. I útskriftarhófinu kom svo í ljós, að ég var með fyrstu eink- unn, efstur hinna tólf nema, sem þreyttu sveinspróf í prentfræðum þetta vor. Hafsteinn Guðmundsson opn- aði mér nýjan heim í prentlist- inni. Sá tími, sem ég naut leið- sagnar hans í prentfræðum, hefur reynst mér dýrmætur í starfi mínu. Þakklátur er ég einnig fyrir að hafa átt þvi láni að fagna að njóta vináttu hans á lífsleiðinni. Meðfylgjandi minningabrot eru úr safni Braga Þórðarsonar bókaútgefanda á Akranesi og fyrrverandi prentsmiðjustjóra i Prentverki Akraness. Þau eru birt í Prentaranum með leyfi höfund- arins. Samruni erlendra félaga Sæmundur Árnason samstarf og samruni erlendra félaaa Miklar breytingar eru nú að eiga sér stað hjá grafísku félögunum á Norðurlöndum sem og annars- staðar í Evrópu, þ.e. aukið sam- starf við önnur félög. Okkar sam- starfsfélög á Norðurlöndum sem og annarsstaðar í Evrópu eru í auknum mæli að leggja niður sjálfstæða starfsemi sinna félaga og stofna ný félög með öðrum. Eða þá að nokkur félög samein- ast og stofna ný landsambönd. 1 Þýskalandi, Hollandi, Austur- ríki, Sviss, Ítalíu, Spáni, Dan- mörku, Noregi, Belgíu, Englandi, Bandaríkjunum, Kanada, Suður- Afríku, Astralíu og Nýja-Sjálandi hafa prentiðnaðarmenn gengið til samstarfs við önnur félög. Og viðræður eru í gangi í eftirtöldum löndum: Svíþjóð, Frakklandi, Póllandi, Króatíu, Ungverjalandi, Slóvakíu og Tékklandi. Hvað er það sem gerir þessar breytingar svo aðkallandi? Það er kannski þrennt sem er mest áber- andi, mikil fækkun íyrirtækja og færri atvinnutækifæri, svo og tækninýjungar sem orsaka breyt- ingar á vinnuumhverfi. Þetta þrennt þýðir fækkun félagsmanna í prentiðnaðarfélögum Með nýrri tækni þarf ekki færri grafískt menntaða starfsmenn, heldur er það áberandi að þeir hafa ekki komið inn i hin gömlu félög prentara og æ færri fara þá leið að taka sveinspróf. Frekar er það þannig að námið byggist upp á námskeiðum og sértækum starfs- menntabrautum. Fyrirtækjum hefur fækkað með samruna íyrir- tækja og prentun hefur farið til Austur-Evrópu og Asíu í auknum mæli og nú á allra síðustu tímum jafnvel til Afríku. Allt þýðir þetta að félagsmönnum fækkar jaíht og þétt í prentiðnaðarfélögunum og þau geta ekki staðið undir þeim kröfum sem félagsmenn gera til þeirra og því leita þau þeirra leiða að sameinast í stærri eining- ar, bæði til að geta betur uppfyllt þarfir félagsmanna og einnig til að standa betur að vígi í kjara- málum og verja áunninn rétt. Grafisk forbund í Danmörk hætti sjálfstæðri starfsemi íyrir nokkrum árum og hluti félagsins prentarar og prentsmiðir, fóru í H.K.privat (Félag verslunar- manna) en bókbindarar gengu í SID (Starfsgreinasambandið). Og nú á næsta ári mun norska félag- ið NGF hætta starfsemi og verða grafísk deild innan Fællesfor- bundet (Samiðn) og sænska félagið er á fúllri ferð í því að treysta sína félagsstarfsemi með því að leita samstarfs við önnur iðnaðarfélög í Svíþjóð. Þá hefúr finnska félagið ákveðið að hefja viðræður við önnur iðnaðarmannafélög um samstarf eða samruna í nýtt félag. Breska félagið GPMU hefur hætt sinni sjálfstæðu starfsemi og stofnað ásamt öðrum iðnaðar- félögum nýtt samband AMICUS. Fyrir nokkrum árum stofnaði þýska félagið ásamt 14 öðrum félögum sambandið VERDI. Hollendingar stofnuðu nýtt sam- band KIEM ásamt öðrum félög- um í fjölmiðlun. I Sviss samein- uðust félögin í nýtt samband Comedia. Sama þróun er að eiga sér stað með öðrum félögum í Evrópu. Þessi þróun hófst um svipað leyti og ákveðið var að leggja niður International Graphical Federation og stofna Union Net- work International en þar var sama þróunin yfirvofandi, fyrir- sjáanleg fækkun í okkar iðnaði. En hver er staðan hér á landi? Ef við miðum við okkur í FBM þá má segja að við höldum ennþá okkar stöðu í fjölda félagsmanna sem hefur verið nokkuð stöðugur undanfarin ár en félagsmönnum fjölgar ekki. Er sú þróun sem við sjáum að á sér stað í nágrannalöndunum eitthvað sem við þurfum að taka tillit til eða ekki? 22 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.