Prentarinn - 01.11.2005, Blaðsíða 21

Prentarinn - 01.11.2005, Blaðsíða 21
Bragi Þórðarson Hafsteinn Ég kynntist Hafsteini Guðmunds- syni veturinn 1953, þegar ég var sendur til hans ofan af Akranesi til frekara náms og undirbúnings í prentsetningu. Tækjakostur prentsmiðjunnar á Akranesi var lítill og ófullkominn og engan veginn fullnægjandi til þess að ég gæti lokið þaðan prófi. Hafsteinn var þá prentsmiðjustjóri í Hólum í Þingholtsstræti í Reykjavík. Hann stjórnaði sinni prentsmiðju af festu og öryggi og naut virð- ingar starfsmanna sinna og við- skiptavina. Allt skyldi vanda, sem unnið var í fyrirtækinu, jafnt hið smæsta sem stærsta. Enginn prentgripur mátti fara þaðan ef hann stóðst ekki gæðakröfur Hafsteins. Hann lét hiklaust endurprenta bækur ef vafi lék á fullkomnu prentverki þeirra. Samhliða því að vera prent- smiðjustjóri í prentsmiðjunni Hólum kenndi Hafsteinn um Hallbjörn Halldórsson. L —I A I Q r lUld árabil fagteikningu fyrir prent- iðnaðinn við Iðnskólann i Reykjavík. Hann hafði numið sín fræði við „Fagskolen for bog- haandverk“ í Kaupmannahöfn. Hafsteinn var strangur kennari og kröfuharður við nemendur sína, en jafnframt gerði hann miklar kröfur til sjálfs sín. Einnig starf- aði hann sem bókahönnuður og margir fegurstu prentgripir þjóð- arinnar bera handbragði hans fagurt vitni. Þjóðsagnaútgáfa hans og aðrar fagurlega útgefnar bækur voru hvatning til annarra að standa vel að útgáfum sínum. I Prentverki Akraness hafði ég búið við frjálsræði og kennslan í algjöru lágmarki. Það voru gífur- leg viðbrigði að koma í Hóla. Þar var krafist nákvæmni og vand- virkni í smáu sem stóru. Ég var vankunnandi í faginu að flestu leyti og mig skorti undirstöðu- þekkingu í vinnubrögðum. Þurfti ég að endurvinna flest þau verk- efni sem fyrir mig voru lögð. Ég lærði mikið á stuttum tíma og vandist þvi strax að verða að leggja mig allan ffam. Langur vinnudagur Vinnudagurinn var langur. Ég var i starfsnámi í prentsmiðjunni frá klukkan 8 á morgnana til klukkan 5 síðdegis. A kvöldin naut ég þeirra forréttinda að fá leiðbein- ingu og kennslu í fagteikningu á stofúborðinu hjá Hafsteini og Helgu eiginkonu hans, en þau bjuggu þá í húsi prentsmiðjunnar í Þingholtsstrætinu. Ég vaknaði upp úr klukkan sjö á morgnana, fór gangandi vestan af Ásvalla- götu upp í Þingholtsstræti, sem var rúmlega 30 mínútna gangur og aftur vestur á Ásvallagötu að loknum venjulegum vinnudegi. Eftir kvöldmat gekk ég svo aftur upp í Þingholtsstræti í fagteikn- inguna og síðan heim að lokinni kennslu á kvöldin klukkan tíu. Þetta voru ljórar ferðir á dag. Samtals átta klukkustundir í vinnu, tvær klst. í fagteikningu og tvær klst. í göngu hvem dag. Hafsteinn hafði mikinn metnað fyrir hönd nemenda sinna og gerði miklar kröfur til mín. Á kvöldin var ég stundum gersam- lega uppgefinn eftir langa vinnu- daga og miklar kröfur, sem mér þótti stundum erfitt að standa undir, en gerði mér þó ljóst hve þýðingarmikið það væri fyrir mig að fá þessa góðu kennslu. Ég var i þessu námi hluta úr vetri 1953 og 1954. Hailbjörn og munnlega prófið Sveinsprófið, sem var tvíþætt, munnlegt og verklegt, þreytti ég vorið 1954. Munnlega prófið fór fram í húsi prentarafélagsins við Hverfisgötu. Formaður próf- nefndar var Hallbjöm Halldórs- son, virðulegur maður með grátt, velhirt skegg, talinn einn besti íslenskumaður í stéttinni. Hann var strangur og kröfúharður, eins og Hafsteinn, og átti það til að fella menn ef þeir ekki stóðu sig. Flestir óttuðust mjög að fara í þetta próf. Ég var hins vegar nokkuð rólegur þegar ég var leiddur fyrir prófnefndina, sem spurði mig spjömnum úr um leturstærðir og gerðir, pappír og brot. Erfiðast þótti þó íslensku- Hafsteinn Guðmundsson. prófið, þar sem spurt var um smátt og stórt í stafsetningu og málfræði. Gekk það allt snurðu- laust og þegar Hallbjörn kvaddi mig fannst mér ég greina viður- kenningarbros í gegnum vel hirt skeggið. Seinna fékk ég að vita einkunnina sem var 9,1. Hafsteinn og verklega prófið Ég var aftur á móti ekki eins ró- legur þegar ég fór i verklega prófið, sem háð var í Hólaprenti og stóð yfir í tvo langa daga. Sannleikurinn var auðvitað sá, að þegar ég kom til Hafsteins var ég mjög vankunnandi, eins og áður sagði, og hann tók mig engum vettlingatökum. Það var hans stíll. Hann hafði í raun svipt mig sjálfstraustinu með ströngum kröfúm sínum. Nóttina fyrir prófið svaf ég lítið, fannst ég mjög vankunn- andi, tilfinning, sem ég hafði ekki þekkt áður í prófum. Ein- hvern veginn tókst mér þó að komast í gegnum fyrri daginn og ljúka verkefnunum seint um kvöldið. Eftir svefnlétta nótt var ég mættur klukkan 8 um morg- uninn, ákveðinn í að gera það sem ég gæti, minna mátti það ekki vera. Mér tókst einnig að ljúka verkefnum seinni dagsins, og var fúllkomlega uppgefinn þegar ég komst heim í risher- bergið á Ásvallagötunni seint um kvöldið. Daginn eftir boðaði Hafsteinn mig á sinn fund. Ég var óstyrkur, þegar ég bankaði á skrifstofú- dyrnar hans á efri hæðinni í Hólaprenti. PRENTARINN ■ 21

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.