Prentarinn - 01.11.2005, Blaðsíða 16
fyrirtækið og vonaðist til að þær
viðræður leiddu til jákvæðrar
niðurstöðu um heildarsamning
sem virðir rétt launafólks.
Skýrsla UNI „Wal-Mart-væð-
ingin í heiminum: Viðbrögð
UNI“ var lögð fram á þinginu.
Þing UNI Commerce sem var í
kjölfar UNI þingsins samþykkti
að fara í herferð til að fá Wal-
Mart til að breyta afstöðu sinni
gegn verkalýðsfélögum í Norður-
Ameríku og hætta láglaunastefnu
og niðurbroti á réttindum verka-
fólks. Ef þessi stefna nær fram að
ganga er hætt við að hún verði
fyrirmynd annarra í alþjóðavæð-
ingunni. Eins dags mótmæli á
næsta ári og skipulagning atriða í
Rússlandi, Indlandi, Mexíkó og
Kóreu er meðal þeirra verkefna
sem koma fram í áætluninni.
Stækkum verkalýðsfélögin
til að ná félagslegu og
fjárhagslegu réttlæti
„Brot gegn réttindum eins verka-
mans er brot gegn réttindum
allra,“ sagði Franz Treml frá
Ver.di í Þýskalandi. Þingið hlýddi
á erindi um þá vinnu sem lögð
hefur verið í að skipuleggja
verkamenn í fyrirtækjum og
löndum sem hafa verið meðvitað
gegn verkalýðsfélögum.
Frá þýska Telekom farsímafyrir-
tækinu T-mobile og Quebecor til
Group 4 Securicors í USA Wack-
enhut, hafa aðildarfélög UNI unn-
ið saman til að berjast gegn að-
gerðum svokallaðra union-busters
(aðilar sem koma í veg fyrir að
fólk velji það að vera í verkalýðs-
félagi). Chi Gomez sem er fulltrúi
verkafólks í Quebecor í Banda-
ríkjunum sagði ffá vinnu þar sem
starfsmenn skipulögðu vinnustaði
sína. Hún skýrði svo frá: „Okkar
reynsla sannar að alheimsverka-
lýðsfélag virkar. I Quebecor
höfum við tengt saman fulltrúa
starfsmanna í fyrirtækjunum við
alheimsverkalýðsfélagið og starfs-
menn í öðrum löndum.“
Jafnvel í löndum eins og Dan-
mörku og Svíþjóð þar sem hefð
hefur verið fyrir vinsamlegum
samskiptum milli verkalýðsfélaga
og atvinnurekenda skýrðu fulltrúar
ffá því að erfiðleikar væru að fær-
ast í aukana. „Það blæs vindur
breytinga á Norðurlöndum," sagði
| 16 ■ PRENTARINN
Kent Petersen ffá FSU í Dan-
mörku, þar sem hann skýrði ífá
breyttri hegðun fyrirtækja gagnvart
verkalýðsfélögum.
Þessi stefna kemur skýrast
fram hjá fyrirtækjum sem eru að
færa störf milli landa á láglauna-
svæði og úthýsa verkefnum, þetta
snertir öll lönd og etur launþeg-
um saman um störf.
Fulltrúi Amicus í Bretlandi
hvatti UNI og aðildarfélög þess til
að taka virka afstöðu í þeim ógn-
unum sem felast í því að störf séu
færð á milli landa. „Við verðum
að ná jafhvægi í samstöðu á
alþjóðavísu og að verja verkafólk
fyrir því að missa störf sín,“ sagði
hann við þingið og varaði við:
„Það er engin ffamtíð í að veija
aðeins störfin." Mannsæmandi
vinna fyrir allt verkafólk á að vera
takmarkið og eina leiðin til þess er
að fara inn á vinnustaðina hvar
sem þeir eru og skipuleggja fólk.
„Okkar styrkur liggur í okkar
félagsmönnum, ekki pólitískri
stöðu,“ sagði Tony Dubbins ffá
Amicus í Bretlandi. „Við þurfum
að skipuleggja vinnuafl dagsins í
dag og það er ekki eins og það
var fyrir 20 árum síðan." Þátttaka
kvenna og ungs fólks er lykil-
atriði til að viðhalda og auka
sfyrk hreyfingarinnar, það kom
ffam í máli margra þátttakenda.
Bindum enda á tvöfalt
siðgæði fyrirtækja
Þátttakendur kröfðust þess að tvö-
falt siðgæði fyrirtækja tæki enda
og ekki yrði lengur sýnt umburðar-
lyndi gagnvart fyrirtækjum sem
telja sig geta hegðað sér siðsam-
lega á heimaslóðum en hegða sér
síðan líkt og Wal-Mart þegar til
annarra landa er komið. Aætlun
var samþykkt sem hefur það að
leiðarljósi að mynda jákvæðara
viðhorf gagnvart verkalýðsfélög-
um í alþjóðaviðskiptum. Það á
jafnt við um stefhu alþjóðafjár-
málastofnana og að gera samninga
við Qölþjóðafyrirtæki. UNI mun
setja kastljós á samfélagsskyldu
fyrirtækja á alþjóðavísu.
Valdið liggur einnig í að
fjárfesta ekki
Þingið gerði að sinni stefnuyfir-
lýsingu sem felst í að íjárfesta
ekki í fyrirtækjum sem eru andsnú-
in verkalýðshreyfingunni og hvetur
alla til að selja hlutabréf í Wal-
Mart til að mótmæla neikvæðni
fyrirtækisins gagnvart verkalýðsfé-
lögum og láglaunastefhu þess i
Norður-Ameriku. Fram kom að
félög í Danmörku og Svíþjóð hafi
nú þegar selt öll hlutabréf sem
félög og lífeyrissjóðir á þeirra veg-
um áttu í Wal-Mart.
Kröfuganga bóka-
gerðarmanna við Schawk
U.þ.b. 100 þátttakendur frá verka-
lýðsfélögum í prentiðnaði sýndu
félögum sínum samstöðu og fóru í
kröfugöngu fyrir utan alþjóðafyrir-
tækið Schawk til að knýja fyrir-
tækið til samningaviðræðna við
stéttarfélög í prentiðnaði í USA.
Gangan fór fram undir vökulum
augum lögreglunnar í Chicago
þegar verkalýðssöngvar ffá mörg-
um löndum ómuðu í hópnum.
Fyrirtækið, sem er í forvinnslu
hefur barist gegn því að starfsmenn
séu í stéttarfélögum, sem er réttur
hvers og eins, og hefur fært starf-
semi þar sem starfsmenn eru í stétt-
arfélagi á staði þar sem starfsfólk er
ekki í félögum gagngert til að koma
í veg fyrir að starfsfólk geti verið
aðilar að verkalýðsfélögum. Þeir
hafa jafhframt sagt upp helmingi af
starfsfólki sínu sem er aðilar að
stéttarfélögum og öllum starfs-
mönnum frá Puerto Rico og Afríku
sem eiga aðild að stéttarfélagi.
Þetta er aðeins sýnishorn af
þeim vanda sem verkalýðshreyf-
ingin stendur frammi fyrir gagn-
vart alþjóðafyrirtækjum s.s.
Quebecor o.fl.
Stöðvum misnotkun á
starfsfólki Wal-Mart
Fyrrverandi fegurðardrottning
Ameríku, Carolyn Sapp, ávarpaði
þingið fyrir hönd UFCW í USA og
sagði frá málaferlum, sem eru þau
stærstu í sögu Bandarikjanna, um
mismunun í launum og stöðuveit-
ingum gagnvart 1,5 milljónum
kvenkyns starfsmanna fyrirtækis-
ins.
Stefnubreyting þarf að
verða til að vernda
póstþjónustu
Vítt og breitt um heiminn hafa
stjórnvöld unnið að því að einka-
væða póstþjónustu. Þingið skorar
á félög að hafa með sér náið
samstarf til að standa vörð um
réttindi félagsmanna við þessar
breytingar.
Nauðsynlegt að tryggja
rétt launafólks á
heimsvísu
Þingið fordæmdi í ályktun mann-
réttindabrot í Belarus, Kólombíu,
Kosta Ríka, Gvatemala og Nepal.
Einnig var samþykkt ályktun sem
fjallaði um mannréttindabrot í
Burma og flutt var af aðalritara
Alþýðusambands Burma.
Lýðræði er „meira en
kosningar"
Jesse Jackson ávarpaði þingið og
lagði áherslu á að lýðræði væri
meira en að hafa rétt til að kjósa.
Fólk þarf að hafa möguleika á að
taka þátt í þjóðfélaginu - þar á
meðal rétt til að skipuleggja sig í
verkalýðsfélögum og gera
sameiginlega lágmarkssamninga.
Endið viðskiptabannið
á Kúbu
Þingið ályktaði að Bandaríkin
ættu að binda enda á 44 ára við-
skiptabann á Kúbu. Þrátt fyrir 11
samþykktir Sameinuðu þjóðanna
gegn viðskiptabanninu hefur
USA haldið því áfram. Viðskipta-
bannið hefur eyðilagt efhahag
Kúbu og haft gríðarleg áhrif á
verkafólk þar og þjóðfélagið,
kom fram í ályktuninni.
Kosningar:
Tvíeykið endurkosið
Undir lok þingsins kusu þátttak-
endur þá Philip Jennings aðal-
ritara UNl og Joe Hansen forseta
UNI að nýju sem leiðtoga sam-
takanna næstu fimm árin.
Nagasaki 2010
Næsta þing UNI verður haldið í
hinni sögulegu borg Nagasaki árið
2010. Öldum saman var Nagasaki
eina borgin í Japan sem var opin n
útlendingum. Hún varð fyrir
annarri atómsprengjunni sem
varpað var fyrir 60 árum síðan.
ltarlegri skýrslu er að fmna hjá
FBM og á vefsíðu UNI
www. un ion-network. org