Prentarinn - 01.11.2005, Blaðsíða 19

Prentarinn - 01.11.2005, Blaðsíða 19
band sem atvinnu, þá sinnti hann töluvert ýmsum verkum í tengsl- um við það fag. Hann gekk í Handverksmannafélagið 1870 og fékkst við að yfirfara reikninga þess, ásamt Agli Jónssyni og síð- ar Brynjólfi Oddssyni og Krist- jáni O. Þorgrímssyni. Einnig var Jón lengi prófdómari. Hann var og kosinn heiðursfélagi Iðnaðar- mannafélagsins 1882. Þegar Jón Borgfirðingur flutti frá Akureyri 1865, hafði Frið- björn Steinsson rekið þar bók- bandsstofu í 6 ár ásamt bóksölu. Friðbjöm hafði komið til Akur- eyrar árið 1850 með foreldrum sínum írá Hólum í Öxnadal. Þegar prentun hófst á Akureyri 1853 var Friðbjöm 14 ára. Akveðið hafði verið að taka dreng, prentaranum til aðstoðar og sem jafnframt skyldi nema prentlist. Buðu sig fram tveir drengir; Ólafur Ólafsson frá Fjöllum í Kelduhverfi, 20 ára, og Friðbjörn. Skyldi námstíminn vera 5 ár og var Friðbjöm valinn vegna þess hann bauðst fyrir lægri laun og þótti auk þess vera á heppilegri aldri. En Ólafur hóf í þess stað bókbandsnám hjá Grími Laxdal. Friðbjörn var kauplaust til reynslu, fram á vor 1853, og áfram um tvö ár til viðbótar, en þá hætti hann og annar drengur var ráðinn í hans stað. Ekki er alveg ljóst hvar Friðbjörn lærði bókband, en veturinn 1858-59 var hann í kennslu hjá Vigfusi Sigurðssyni, sem þá hafði hús- næði hjá foður Friðbjamar. Hvort sem það var öll kennslan sem Friðbjörn fékk eða ekki, sem nokkuð áreiðanlega var ekki, þá fékk hann sveinsbréf 25. apríl 1859. Þann dag voru þeir saman komnir, auk Friðbjarnar, Jón Borgfirðingur, Grímur Laxdal, Vigfús Sigurðsson og Sveinn Skúlason ritstjóri, til að afhenda honum sveinsbréfið, með þessum upphafsorðum: „Kære ven. Boghandler og Mestersven!“ En frá því sama ári taldi Friðbjöm starfsemi sína sem bókbindari, bóksali og bókaútgefandi, en fyrsta bókin sem hann átti þátt í útgáfu á var Veðurspá Benedikts spámanns. Sálmabók innbundin af Friðbirni Steinssyni, í Saffian-skinn, áriö 1863. Bókbandsmerki Friðbjarnar á fremra spjaldi sálmabókarinnar. Friðbjörn hafði bókband og bóksölu að aðalatvinnu, og hefur verið vel liðtækur bókbindari. Hann fékk hrós fyrir bókband á iðnaðarsýningu á Oddeyri og jaíhffamt heiðurspening úr bronsi á iðnaðarsýningunni í Reykjavík 1883. Friðbjörn Steinsson kenndi nokkrum mönnum bókband og má þar helst taka Aðalstein son hans. Aðalsteinn Eyfjörð Frið- bjamarson var fæddur 1862 og var byrjaður í námi 1877. Starf- aði hann hjá föður sínum eftir námið en 1880 sigldi hann til Kaupmannahafnar og kom aftur árið eftir. Hefur hann haldið þangað til að mennta sig frekar í faginu. Haustið 1883 settistAðal- steinn að á Seyðisfirði sem bók- bindari og bóksali. Hafði hann þar starfsemi sína í barnaskóla- húsinu á Seyðisfjarðaröldu. En vegna lasleika föður síns hélt hann aftur til Akureyrar í júní- byrjun 1885 og tók þá við rekstri bókbandsstofunnar og bóksölunn- ar. Aðalsteinn fékk 2. verðlaun fyrir bókband á sýningu á Odd- eyri sumarið 1890, þar sem sýndur var lifandi peningur, smíðisgripir og hannyrðir. Verð- launin fékk hann í flokki smíðis- gripa. Aðalsteinn var mjög dug- legur handverksmaður, en hann lést úr inflúensu sumarið 1894, aðeins 32 ára. Friðbjörn tók þá aftur við rekstri vinnustofunnar og bóksölunnar, en verslunina seldi hann Sigurði Sigurðssyni árið 1911. Halldór Pétursson, fyrrum bóndi og bókbindari i Viðigerði og síðan húsmaður á Fornustöð- um, fluttist til Akureyrar 1878. Hann var vinnumaður og bók- bindari hjá Friðbirni frá 1884 til um 1890. Halldór hafði lengi verið brjóstveikur er hann lést 1894, um sextugt, úr sama in- flúensu-faraldrinum og Aðal- steinn Friðbjarnarson og var þá skráður niðurseta. Hann var einstakur reglumaður, mjög vandaður og áreiðanlegur. Magnús Jónsson var vinnumaður hjá Friðbirni 1887-96 og síðan bókbindari i mörg ár. Friðbjörn Steinsson gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á Akur- eyri. Hann sat í bæjarstjóm um 30 ár, í byggingamefnd í mörg ár, sóknarnefndarmaður, meðhjálpari o. fl. Fyrsta Goodtemplararegla landsins var stofnuð á heimili Friðbjamar 1884, en áður hafði hann stofnað bindindisfélag í bænum. Hann var í stjórn Gránu- félagsins, bókavörður Amtsbóka- safnsins, stofnandi handiðnaðar- mannafélagsins, framfarafélags- ins, jarðræktarfélagsins og iðn- aðarmannafélagsins. Hann var heiðursfélagi Stórstúku íslands og Bóksalafélagsins og Dannebrogs- maður. Friðbjörn var því við margt riðinn, enda vel gáfaður maður, þótt ekki hafi hann notið þeirrar menntunar í æsku er sam- boðin var honum. Friðbjörn hélt starfskröftum fram að 70 ára aldri, en þá fór hann að tapa sjón og varð blindur. Hann lést 1918. Briddsmót FBM 2005 FBM hélt sitt árlega briddsmót (tvímenning) þann 13. nóvem- ber, 10 pör mættu til leiks og spilað var á 5 borðum. Sigur- vegarar mótsins urðu þeir Rúnar Gunnarsson og Haraldur Ingason með 136 stig. I öðru sæti, Albert Þorsteinsson og Bragi Björnsson 130 stig og í þriðja sæti þeir Guðmundur Sigurjónsson og Baldur Bjart- mars með 123 stig. Keppnis- stjóri var Guðmundur Aldan. F.v. Baldur Bjartmars, Guðmundur Sigurjónsson, Rúnar Gunnarsson, Haraldur Ingason, Albert Þorsteinsson og Bragi Björnsson. PRENTARINN ■ 19

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.