Prentarinn - 01.11.2005, Page 26
Islenskar þjóðsögur, bundnar af sex
ustu bókasafnarar landsins um
áratuga skeið og fólu henni sjálf-
val um útlit bóka sinna. Unnur
var frábær handverkskona, en auk
þess listræn og hugmyndarík,
litaði allan sinn pappír sjálf, gerði
við gamlan pappír, minnkaði
gyllingarletrið og átti fjölbreytt
úrval leturtegunda. Bækur, sem
hún batt t.d. i pergament, voru
ómetanlegir listgripir, enda var
henni oft falið að binda inn bæk-
ur, sem opinberir aðiljar ætluðu
til stórgjafa handa erlendum
höfðingjum.
Á sýningunni NORRÆNT
BÓKBAND, sem opnuð var í
Þjóðmenningarhúsinu við
Hverfisgötu hinn 10. júní sl. og
stóð þar til 19. ágúst var til sýnis
81 bók eftir bókbandslistamenn
frá flestum Norðurlöndunum. Af
þeim eru 24 í svokölluðum heið-
ursflokki, sem útvalin dómnefnd
ákvað. Þessi sýning var fyrst
opnuð í Svíþjóð 20. mars 2005
og hélt áfram ferðinni héðan og
lýkur í Oslo og Þrándheimi í
Noregi næsta vor. Þetta er frábær
listviðburður og hefur verið furðu
hljótt um hann í fjölmiðlum. Það
ber sannarlega að þakka þeim í
JAM-hópnum, sem sjálfsagt hafa
átt mikinn þátt í að fá þessa sýn-
ingu hingað og einnig þeim opin-
beru styrktaraðiljum, sem hafa
stutt þennan merkilega viðburð í
menningarlífinu.
bóklistamönnum hjá Bóklist.
Það var sannarlega mikið
gleðiefni að skoða hin mörgu og
fallegu bóklistaverk íslensku þátt-
takendanna á sýningunni. Islend-
ingar eru hlutfallslega langflestir
þátttakenda og standa öðrum
Norðurlandabúum sist að baki. I
svokölluðum heiðursflokki, þ.e.
meðal 24, sem dómnefndin taldi
„besta“ eru t.d. tveir Islendingar:
Stefán J. Sigurðsson bókbands-
meistari og kennari við Iðnskól-
arm sýnir frábæran grip, bókina
Undarlegir fiskar eftir Jóhann
Hjálmarsson, þetta er erfitt for-
mat af bók, en Stefán leysir
verkið af hendi af frábærri og
listrænni smekkvísi, og Páll
Halldórsson frá Bóklist tekst á
við svokallaða „hjólböruútgáfú"
af Njáls sögu, útg. af Halldóri
Laxness 1944 og hlýtur hann að
launum 18. sætið hjá dómnefnd-
inni en Stefán hreppir hið 9.
Svanur Jóhannesson sýndi ein-
staklega vel heppnaðan og út-
færðan listgrip: Klettabelti fjall-
konunnar, heildarsafn ljóða eftir
útivistarskáldið Jónas E. Svafár. í
útfærslunni birtist allt að því
skáldlegt næmi og litasamsetn-
ingin á pappaspjöldunum er hrein
snilld og segir margt bæði um
Svan og höfund ljóðanna. Sigur-
þór Sigurðsson sýnir framúr-
stefnulegan listgrip: Steinn, sem
syngur eftir Jón Óskar. Þetta brot
er ekki auðvelt viðureignar, en
Bœkur á sýningu hópsins í Þjóðmenningarhúsinu í okt. 2005.
listræn útfærsla nýtur sín mjög
vel í fullkomnu samræmi við frá-
bært handverk Sigurþórs.
Barnagælur eftir Jóhönnu Á.
Steingrímsdóttur í frábærri list-
túlkun Hildar Jónsdóttur er af-
burða fagur gripur, sem myndi
sóma sér vel á hvaða listsýningu
sem væri. Auk þess langar mig
að nefna hið frumlega uppátæki 6
bóklistamanna hjá Bóklist, að
taka til bands útgáfu Árna
Böðvarssonar og Bjarna Vil-
hjálmssonar á Þjóðsögum Jóns
Árnasonar og ná í senn heild-
rænum svip og þó frumlegri
fjölbreytni með þessu sniðuga
verki. Þar eru á ferðinni þau
Baldvin Viðarsson, Hinrik
Stefánsson, Guðveig Nína Guð-
mundsdóttir, Ragnar G. Einars-
son, Edda S. Sigurbjarnadóttir og
Soffia G. Ólafsdóttir. Aðrir þátt-
takendur frá Islandi í sýningunni
voru Guðlaug Friðriksdóttir,
Hjörleifur Hjörtþórsson og Sigur-
geir Orri Sigurgeirsson.
Þessi sýning í Þjóðmenningar-
húsinu verðskuldar mikið lof og
prís fýrir alla íslensku þátttakend-
urna og allflesta hina líka. Næst
þegar þessir góðu bóklistamenn
efna til sýningar á verkum sínum
ættu þeir að ráða til starfa góðan
kynningarfulltrúa, sem komið
getur því á framfæri hve merki-
legir hlutir eru hér á ferðinni.
Greinin birtist í tímaritinu
Skjöldur, nr. 52, 4. tbl. 14. árg.
2005 og er birt með góðfúslegu
leyfi greinarhöfundar og ritstjóra
þess.
26 ■ PRENTARINN