Prentarinn - 01.11.2006, Side 8
Prenttæknistofnun verður
Prenttæknisvið IÐIINNAR fræðsluseturs
Á vormánuðum 2006 voru
fræðslumiðstöðvar á Hallveigar-
stíg loks sameinaðar eftir vetur-
langa markvissa vinnu fram-
kvæmdastjóra, ráðgjafa og eig-
enda. Við sameiningu fjögurra
fræðslumiðstöðva varð til ein
rekstrareining sem fékk heitið
IÐAN fræðslusetur. Innan
IÐUNNAR starfa nú fimm svið,
Byggingasvið, Hótel- og matvæla-
svið, Málm- og véltæknisvið,
Prenttæknisvið og Bílgreinasvið.
Fræðslumiðstöð bílgreina sam-
einaðist IÐUNNI í desember s.i.
og myndaði fimmta sviðið Bíl-
greinasvið. Markmið IÐUNNAR
er að reka símenntunarmiðstöð
fyrir þær iðngreinar sem að henni
standa. Sú starfsemi sem áður fór
fram innan Prenttæknistofnunar
fer nú fram á Prenttæknisviði.
Hlutverk Prenttæknisviðs
Hlutverk Prenttæknisviðs er
óbreytt frá því sem var, símennt-
un, framkvæmd sveinsprófa,
utanumhald um nemaleyfisnefndir
og starfsgreinaráð Upplýsinga- og
fjölmiðlagreina auk upplýsinga-
miðlunar til prentiðnaðarins eru
enn aðalviðfangsefni sviðsins.
Sviðsstjóri Prenttæknisviðs er
Björn M. Sigurjónsson sem áður
var framkvæmdastjóri Prenttækni-
stofnunar.
Mottó Prenttæknisviðs er að
leysa hvers manns vanda, veita
snarpa þjónustu og halda vel á
rekstri skrifstofunnar.
Aukin þjónusta með
sameiningu
Viðskiptavinir Prenttæknisviðs
munu strax finna fyrir aukinni
þjónustu IÐUNNAR fræðsluset-
urs. Boðið er upp á fleiri nám-
skeið í stjómun og rekstri auk
námskeiða fyrir leiðbeinendur í
starfsþjálfun á vinnustað. Á Prent-
Björn M. Signrjónsson
tæknisviðinu sjálfu er markmið
að bjóða upp á námskeið í öllum
greinum prentiðnaðar á hverju ári
auk annarra námskeiða sem við-
skiptavinir sviðsins telja þörf
fyrir. Það er hins vegar ástæða til
að minna á að verkefni af þessum
toga er langtímaverkefni. Fimm
fræðslumiðstöðvar verða að sterk-
ari heild sem sinnir 15.000 manna
markaði. Það tekur tíma að ná
markmiðum í rekstri og reynir
meira á hvern og einn sviðsstjóra
að hafa yfirsýn yfir verkefnin.
Þarfagreining
í nóvember og desember á hverju
ári er lögð út könnun á þörf fyrir
símenntun í prentiðngreinum af
Prenttæknisviði. Viðtakendur eru
beðnir um að svara því hvaða
námskeið þeir myndu sækja á
næstu 6-12 mánuðum og niður-
stöðumar eru hafðar til hliðsjónar
við skipulag fræðslustarfsins.
Árangur af þessu verklagi var
mjög góður á árinu 2006. Hlutfall
þeirra sem sóttu námskeið úr
prentiðnaði jókst úr 12% í 24%
og var heildarfjöldi þátttakenda á
námskeiðum Prenttæknisviðs um
240 að árinu loknu. Þetta var gert
án aukins kostnaðar og er fyrst og
fremst árangur sem næst með
skipulögðum vinnubrögðum.
Almennt var stemningin fyrir
fræðslustarfmu góð á árinu 2006
og ber að þakka öllum þeim sem
komu að þeirri vinnu þeirra fram-
lag. Það er hins vegar ástæða til
að hvetja félagsmenn til að svara
könnun á þörf fyrir símenntun í
iðnaði og hafa þannig bein áhrif á
símenntunarmöguleika sína.
Erlend samskipti
Hlutverk Prenttæknisviðs er að
fylgjast rækilega með nýjungum í
prentiðnaði á alþjóðavettvangi.
Til þess að auðvelda það verkefni
situr starfsmaður Prenttæknisviðs-
ins í stjórnum tvennra alþjóðlegra
samtaka sem láta sig símenntun í
grafískum iðnaði varða. EGIN
samtökin (European Graphical
Industry Network) eru samtök
sem stjórnendur símenntunarmið-
stöðva í Evrópu taka þátt í. Á
hverju ári koma þessir aðilar
saman og skiptast á upplýsingum,
tengslum og fróðleik og fyrir litla
eyþjóð eins og Islendinga er
ómetanlegt að hafa aðgang að
helstu menntastofnunum Evrópu í
símenntun prentiðnaðar. Þá situr
sviðsstjórinn einnig í stjórn Xplor
ísland sem eru alþjóðleg samtök á
sviði upplýsinga- og gagnavinnslu
í prentiðnaði sem hafa það að
meginmarkmiði að standa fyrir
alþjóðlegum fræðslumessum og
ráðstefnum. Til dæmis má nefna
að hefði það ekki verið fyrir
Xplor samtökin hefðu aldrei náðst
þau tengsl sem nauðsynleg voru
til að fá Ben Willmore hingað til
lands. Þá eru ótalin sambönd og
tengsl við háskóla og tækniskóla í
Danmörku, Þýskalandi, Bretlandi,
Bandaríkjunum og víðar um
heim. Öll sú vinna sem lögð er í
alþjóðleg tengsl miðar að því að
búa til farveg upplýsinga og þekk-
ingar.
Styrkir fræðslusjóðs og
Prenttæknisjóðs
Félagsmönnum í iðnaðinum
standa til boða margvíslegir kostir
í sinni símenntun. Styrkir fræðslu-
sjóðs Félags bókagerðarmanna
eru veittir til félagsmanna sem
sækja námskeið utan Prenttækni-
sviðsins en Prenttæknisjóður
styrkir þá félagsmenn sem vilja
sækja starfstengd námskeið utan
Prenttæknisviðsins. Þá geta fyrir-
tæki sem eru aðilar að Samtökum
iðnaðarins sótt um styrki til Prent-
tæknisjóðs vegna námskeiðahalds
innan sinna veggja og geta þeir
styrkir numið allt að 70% af
kostnaði námskeiðanna.
Starfið á vorönn 2007
Nýr sameiginlegur námsvísir
kemur nú út á vorönn 2007. Á
Prenttæknisviði verður boðið upp
á fjölbreytt námskeið og mark-
miðið er að allar greinar prentiðn-
aðarins fái eitthvað fyrir sinn
snúð. Sú nýbreytni verður reynd á
vorönn að steypa námskeiðum
saman í klasa þannig að í lok
janúar verður boðið upp á tveggja
daga námskeið í punktastækkun
og grávægisprentun. I lok apríl
verður boðið upp á þriggja daga
vinnustofu í prentun og miðlun
breytilegra gagna þar sem fjallað
verður um allt sem snertir breyti-
leg gögn, markaðsmál og prentun
þeirra gagna. Þar að auki verða
fjölmörg námskeið í forvinnslu,
prentun og bókbandi. Það er von
sviðsstjóra að þátttaka verði góð í
öllum viðburðum Prenttæknisviðs-
ins og að framundan sé skemmti-
leg og fróðleg önn.
Björn M. Sigurjónsson
8 ■ PRENTARINN