Grænlandsvinurinn - 01.12.1954, Side 13
Desember 1954
GRÆNLANDSVÍNURINN
9
þetta svæði het áður Tröllabotn. Norðmenn kalla þetta
nú reyndar Norskahafið.
Jan Mayen hét Nýja land. Scoresbysund — Það
stendur við fjörðinn Öllumlengri. Svæðið frá Öllum
lengri og norður með strönd Grænlands er það svæði
sem í íslenzkum sögum var kallað Grænlandsóbyggðir.
Þá kalla Danir sundið milli Islands og Grænlands:
Danmarksstrædet, en það er enn í dag kallað Græn-
landshaf, á íslenzku og allt suður fyrir Hvarf. Þar sem
Angmagssalik hcitir í dag (sem er grænlenzka og þýð-
ir: Loðnuveiðistaður) voru Krosseyjar sem íslenzkar
sögur tala um. Rétt austur af þeim eru hin svoköll-
uðu Jónsmið, sem íslenzkir togaramenn kalla.
Norður af Krosseyjum (Angmagssalik) rísa upj)
hæstu tindar Hvítsérks en svo mun jökulbungan þaðan
og norður undir Öllumlengri (Scoresbysund) hafa ver-
ið kölluð. Þessa tinda kalla Danir í dag: Monnt Forel
og Gunnbjörnsfjeld. (Á þessu korti er Gunnbjörnsfjeld
ranglega staðfært, það er miklu sunnar). Þessir tindar
eru það sem í íslenzkum sögum er átt við þegar talað
er um Gunnbjarnarsker, því þeir rísa fyrst úr hafi scm
sker þegar sigld er Eiríksstcfna til Grænlands.
Langt fyrir sunnan Krosseyjar (Angmagssalik) lágu
Finnsbúðir eða þar suður af sem Tinginiarmiut (Fugla-
flói) er á. þessu korti.
Við suðursporð Grænlands kalla Danir Kap Farvel
en það er það svæði sem á íslcnzku heitir Hvarf enn í
dag. (Þessu staðarheiti hafa danskir fræðimenn viljað
finna stað á tveimur öðrum stöðum).
Eystri byggð lá á svæðinu frá Berufirði, rétt fyrir
austan Hvarf og vestur undir Mikley (Nunarssuit) (þar
sem skagar lengst til vesturs fyrir norðan Julianeháb
(Hvalvík) á þessu korti). Narssarssuan (þ. e. Stóra
slétta er í Eiríksfirði rétt upp af Stokkanesi, sem svo hét
til forna. Þar er syðsti flugvöllur Bandaríkjamanna á
Grænlandi.
Svæðið kringum Ivigtut (Hcyvík) var kallað Mið-
firðir. Þar fyrir norðan hét Vestri óbyggð norður und-
ir Fiskenæsset á kortinu en um það bil byrjaði Vestri-
byggð og nokkuð norður fyrir Godtháb (á grl. Núk
þ. e. Nes á íslenzku). Eftir það var strönd Grænlands í
fornöld kölluð Norðurseta.
Eyjan Disko heitir Bjarney á islenzku.
Hafið fyrir vestan Grænland hét Suðurbotu þar scm
Danir kalla Davisstrædet en Norðurbotn þar sem þcir
kalla nú Baffins Bugt. '
Baffin island heitir Helluland á íslenzku.
Alrede í flere ár har grönlandske kvinder ;haft stemme-
ret til de grönlandske rád. Men vejledning er endnu
stærkt pákrevet.
(Er þetta H. G. A. sem er „vcjlederen?").
Usle rönner og utætte Træskure tjener til bolig for
adskillige börnefamilier. Et hus sem dette i Kanga-
miut er trods nytiden stadig mange af i byerne. Tu-
berkulosen har haft gode vilkár her, hvor mange menn-
esker er stuvet samen í smá, uhygiejniske rum.