Verktækni - 01.03.2001, Page 3

Verktækni - 01.03.2001, Page 3
LEIOARINN Tæknidagar 2001 Tæknidagar VFl og TFI bera að þessu sinni yfirskriftina: Umhverfi - Heimili - Tækni og verða í Perlunni 26. og 27. maí n.k. Undanfarin fjögur ár hafa félögin staðið fyrir Tæknidögum sem vakið hafa verðskuldaða athygli. Að þessu sinni verður sjónum beint að samspili umhverf- is og heimilis og hvernig haígt er að heita hugviti og tækni við að leysa umhverfis- vandamál. Markmiðið með Tæknidögum VFI og TFI er að vekja athygli á störfum tækni- manna í þjóðfélaginu og auka áhuga nem- enda í grunn- og framhaldsskólum á raungreinum. Vorfundur Kvennanefndar VFÍ: Stjórnun j'rá ýmsum sjónarhornum Vorfundur Kvennanefndar VFI verður haldinn í lok aprílmánaðar. Efni fundarins verður stjórnun frá ýmsum sjónarhornum. Horfl verður á stjórnun úl frá sjónarmiðum stjórnunar- ráðgjafa og stjórnenda hjá ríkis- og einkafyrirtækjum. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar, m.a. á heimasíðu VFÍ. Suðurlandsskjálftarnir 2000 Neyðarnofnd VFI stendur fyrir ráðstefnu um Suðurlandsskjálftana á síðasta ári. Ráðstefnan verður haldin dagana 3.-4. maí. (Sjá auglýsingu á hls.27) Aðalfundur SV Aðalfundur Stéttarfélags verkfræðinga verður haldinn föstudaginn 6. apríl kl. 17:00. Fundarboð með dagskrá verður senl félögum SV. Félagsmenu eru hvattir til að fjölmenna. Samlokufundir Félagsmenn eru minntir á Samlokufund- ina sem eru að öllu jöfnu haldnir á veg- um VFI og TFl fyrsta fimmtudag livers mánaðar kl. 12:00-13:00. Þar flytja gestafyrirlesarar erindi um áhugaverð efni af ýmsu tagi. A fundunum er félags- mönnum hoðið upp á samlokur og drykki. Utanfélagsmenn geta keypt veit- ingar á vægu verði. Tölvupóstföng Félagsmenn eru minntir á að senda upplýsingar um tölvupóstfiing sín lil skrifstofunnar, audur@vfi.is eða audur@tfi.is Skilafrestur Næsta tiiluhlað Verktækni kemur út 30. apríl n.k. Þeir sein vilja koma efni í blaðið eru heðnir um að koma j>ví til rit- stjóra eigi síðar en 18. apríl. Tölvupóstföng félaganna Verkfræðingafélag Islands: vfi@vfi.is Tæknifræðingafélag Islands: tfi@tfi.is Stéttarfélag verkfræðinga: sv@sv.is Orkuveita Reykjavíkur RAFTÁKN ehf VERKFRÆÐISTOFA Glerárgötu 34 • IS-600 Akureyri Sími 464 6400 • Fax 464 64 I Hugbúnaður Þetta tölublað Verktækni er nokkru stærra en lesendur eiga að venjast. Það kemur til af ]>ví að ákveðið var að helga blaðið að nokkru leyti hugbún- aðargerð eins og sjá má á viðtölum og greinum sem er að finna aftast í blað- inu. Blaðnefnd Verktækni hefur lengi baft áhuga á gefa út a.m.k eitt „þema- blað“ á ári. Hvort kalla megi þetta blað svo hátíðlegu nafni skal ósagt lát- ið en vonandi kunna lesendur, hvort seni þeir starfa á sviði hugbúnaðar eða ekki, að meta þessa umfjöllun. Hugbúnaðariðnaðurinn varð fyrir valinu vegna þess að síðastliðið haust var stofnaður hugbúnaðarhópur inn- an VFI og mun slíkur hópur einnig vera í undirbúningi innan TFI. Þeim sem vilja fá upplýsingar um hugbún- aðarhópana er bent á að hafa sam- band við skrifstofu VFÍ/TFÍ. I viðtalinu við lngvar Kiástinsson, sem er formaður Samtaka íslenskra hugbúnaðarframleiðenda, kemur fram að á árinu 1999 voru um 2200 störf í hugbúnaðargerð og ráðgjöl' hér á landi. Sama ár voru útflutningstekj- ur greinarinnar rúmir tveir milljarðar króna og hlutfall hugbúnaðarins í þjóðartekjum fer vaxandi. Starfs- mönnum innan hugbúnaðargeirans hel'ur ekki einungis ljölgað jafnt og ]>étt, heldur hefur velta á hvern starfsmann aukist umtalsvert. 1 sama viðtali kemur einnig fram sú skoðun að innan þessarar greinar séu of margir, sem eru með litla sem enga menntun, að fá allt of há laun. - líeyndar spáir Ingvar því að þetta konii til með að breytast. Helgi Þorbergsson, dósent í tölvun- arfræði við 111, tekur í sama streng og Ingvar hvað launakjörin varðar. I við- tali við Helga kemur fram að skortur á fólki sem er menntað á þessu sviði hefur valdið því að fáir kjósa að fara í framhaldsnám og það veldur mönnum innan lláskólans verulegum áliyggj- um. Ef litið er á annað efni í blaðinu má sjá að af nógu er að taka af vettvangi félaga verkfræðinga og tæknifræðinga. Reyndar varð raunin sú að vegna ]>lássleysis varð umfjöllun um nokkra viðburði í félagsstarfinu, m.a. Sam- lokufundi um skipulagsmál og sam- keppni á fjarkskiptamarkaði, að bíða næsta blaðs. Sigrún S. Hafstein, ritstjóri. VERKTÆKIMI Engjateigi 9 ■ 105 Reykjavík Sími: 568 8510 • Simbréf: 568 9703 ■ Tölvupóstur: sigrun@vfi.is ■ sigrun@tfi.is B/að/'ð VERKTÆKNI er gefiö út af Verkfræðingafélagi íslands, Stéttarfélagi verkfræðinga og Tæknifræðingafélagi islands og er dreift ókeypis til félagsmanna. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigrún S. Hafstein. Blaönefnd: Einar H. Jónsson (TFÍ), Árni Geir Sigurðsson (SV) og Kristinn Andersen (VFÍ) auk ritstjóra. Leyfilegt er aö birta efni úr Verktækni ef heimildar er getiö. Skoöanir sem settar eru fram í blaöinu samrýmast ekki endilega viðhorfum útgefenda. Prentvinnsla: Grafik hf. ■ Aðstoð viö útgáfu: Hænir sf. Sími: 533 1850 • Fax: 533 1855 utgafa@haenir.is 3

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.