Verktækni - 01.03.2001, Page 20

Verktækni - 01.03.2001, Page 20
Hvað er upplýsingatækniiðnaður? Skilgreining á upplýsingatækniiðnaði get- ur verið erfið, sérstaklega í Ijósi þess að starfsgreinin er í svo örri framþróun. Til dæmis hefur upplýsingatækniiðnaðurinn þá sérstöðu að geta tekið sér bólfestu án fyrirvara innan fyrirtækja í hefðbundnum greinum atvinnulífsins. í því felst nýsköp- unarmáttur en í leiðinni skilgreiningar- vandi. í tölfræðilegri úttekt sem gerð var árið 1998 að tilstuðlan Norræna ráðherraráðs- ins var upplýsingatækniiðnaður skil- greindur sem fyrirtæki sem vinna við framleiðslu í upplýsingatækni annars veg- ar og hins vegar við þjónustu í upplýs- ingatækni. Til UT-framleiðslu teljast þau fyrirtæki sem vinna við framleiðslu á tölv- um, símtækjum, sjónvarps- og útvarps- tækjum. Til þjónustuhlutans teljast heild- sölufyrirtæki með tölvur og hugbúnað, skrifstofuvélar, heimilistæki, útvarps- og sjónvarpstæki. Einnig teljast til UT-þjón- ustu fyrirtæki sem veita síma- og fjar- skiptaþjónustu. Síðast en ekki síst er hugbúnaðargerð og ráðgjöf varðandi vél- og hugbúnað talin til upplýsingatækni- þjónustu. Flest fyrirtæki innan Samtaka iðnaðarins samkvæmt þessari skilgrein- ingu starfa við hugbúnaðargerð og ráð- gjöf. Veltan: Á árinu 1999 velti UT-iðnaðurinn hér á landi rúmum 52 milljörðum króna. Veltan var mest í heildsötunni eða rúmir 23 milljarðar. í síma- og fjarskiptaþjón- ustu var veltan tæpir 15,5 milljarðar og í hugbúnaðargerð og ráðgjöf rúmir 13 millj- arðar sem var um 77% aukning milli ára. Starfsmenn: Árið 1999 störfuðu 4.500 manns við UT-iðnað, fimm hundruð fleiri en á árinu á undan sem var 12,5% fjölg- un. Fjölgunin var nær öll í hugbúnaðar- gerð og ráðgjöf eða rúmlega 400 störf. í heild störfuðu þar um 2.200 manns árið 1999. Heimild: Vefur Samtaka iðnaðarins og Samtaka íslenskra hugbúnaðarframleið- enda: http://www.ut.is/ 20

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.