Verktækni - 01.03.2001, Blaðsíða 30
CMMI # Mán. PM Gallar Kostnaður
1 29.8 593.5 61 5,440,000
2 18.5 143.0 12 1,311,000
3 15.2 79.5 7 728,000
Tafla 1.0 Rifkinsgreining á upplýsingagrunni SEI
Aukning 1->2 2->3 3->4 4->5
Framleiðniaukning 40-50% 20-30% 10-15% 5-10%
Aukin vörugæði 50-55% 30-35% 5-10% 1-5%
Tafla 2.0 Vænt vörugæði og framleiðni m.t.t trepa í CMM
Mælingar
CMMI mælingar eru tvenns konar, ann-
ars vegar innri mæling, sem notuð er til
að meta ávinning af endurbótum og
grundvalla nýja endurbótaáætlun og hins
vegar ytra mat sem framkvæmt er af
þriðja aðila til að gefa tilvonandi sam-
starfsaðilum vísbendingar um innra
ástand á framleiðsluferlum viðkomandi
fyrirtækis. Mælingarnar geta verið mis
umfangsmiklar en þær fara allar þannig
fram að ástandið á CMMI ferlum er met-
ið á formlegan vel skilgreindan hátt. At-
hugað er hvort að grundvallarmarkmið-
um sé náð og eru niðurstöður settar fram
tölulega gagnvart hverju ferh. I'annig má
greina hvort verklag innan ferils sé óskil-
greint, skilgreint að hluta eða að íullu
skilgreint. Mælingin bendir á hvaða lerla
þarf að endurbæta og hvaða verkhði inn-
an þeirra. Tölulegum niðurstöðum um
stöðu ferlanna má varpa yfir á þrepahk-
an til að skýra heildarástandið innan fyr-
irtadtisins. Til að komast upp á el'ri þrep
er nauðsynlegt að ferh á neðri þrepum
séu að fullu upjd'yllt.
Endurbætur
Endurbótaáætlun |iarf ekki nauðsynlega
að byggja á þrepauppbroti CMMI heldur
eru þrepin fyrst og fremst leiðbeinandi.
Aherslur fyrirtaíkja geta að einhverju
leiti verið óhkar og endurbætur þurfa að
endursjtegla slíkan áherslumun. Endur-
bótaáætlun grundvallast fyrst og fremst á
markmiðum viðkomandi fyrirtækis.
Ekki er forsenda fyrir notkun líkansins
sú að stefnt sé að vottun. Markmiðin
gætu til að mynda verið j>au að auka
framleiðni, auka arðsemi, auka vörugæði
eða öryggi svo dæmi sé tekið. Líkanið
aðstoðar fyrirtaddn við að ná skilgreind-
um markmiðum og hámarka ávinning af
endurbótum.
Reynsla af notkun
Taíla 1.0 sýnir niðurstöður rannsókn-
ar sem byggir á verkefnagrunni2 SEI og
fór fram á vegum sjálfstæðs ráðgjafar-
fyrirtækis (Rifkin). Bornir voru sam-
an forritunar- og prófanafasar nokk-
urra verk<;fna innan fyrirtækja á ólíku
þrepi í CMMI. Niðurstöður sýndu að
framleiðni og gæði margfölduðust eftir
J)ví sem fyrirtækin stóðu ofar á CMMI.
Taíla 2.0. Byggir á gagnagrunni SEI
og sýnir væntan ávinning við að flytjasl
á milli jtrepa í CMMI. Mesta ávinnings
má vænta þegar fyrirtækin eru að
vinna að grundvallar endurbótum t.d.
á j>repi eitt eða tvö. Sömu rannsóknir
sýna einnig að gera megi ráð fyrir 27
mánuðum í að komast úr j>rej)i eitt yfir
á þrej) tvö og 18 mánuðum að ílytjast á
úr þrepi tvö yfir á J)rep þrjú3.
Samantekt
Líkanið er |>róað til að leggja grunn að
endurbótum í hugbúnaðarframleiðslu.
Það hefur verið notað um allan heim
með miklum árangri. Sem dæmi um
notkun á CMIVII voru skráðar í gagna-
banka SEI í janúar síðastliðnum, nið-
urstöður úr 1798 mælingum á 1380
slofnunum og mæld voru 7393 verk-
efni. Þetta er |>ó ekki ta;mandi listi yfir
})á sem notuðu líkanið til mælinga í
<leseinber 2000 j>ar sem ekki er nauð-
synlegt að skrá slíkar ujjjilýsingar í
grunninum.
Styrkur CMMI felst í nákvæmri grein-
ingu á stöðu fyrirtækja, bæði vanda-
málum þeirra og styrkleikum. Styrkur-
inn felst einnig í CMMI leiðbeiningum
(e. Roa<lmaj)) sem styður við mark-
miðasetningu og endurbótaferlið.
Síðast en ekki síst er mikilvægt að ár-
angursmat, samanburður á milli fyrir-
tækja og framvinduupplýsingar eru
byggðar á tiilulegum niðurstöðum úr
mælingum.
Dæmi uin CMMI notendur á Islandi er
Hugbúnaðarsvið Nýherja. Fyrirtækið
tók líkanið í notkun um mitt síðasta ár
og byggir nú innra eixlurbótastarf á
CMMI ferli sem er liyggt upp á eftirfar-
andi hátt:
Skref I. CMMI mæling
Skref 2. Endurbótaáætlun sem byggir
á CMMI
Skref 3. Framkvæmd endurbóta
Skref 4. Farið aftur í skref eitt.
Vonandi eru lesendur einhvers vísari
um CMMI líkanið en leita má nánari
upplýsinga lijá hugbúnaðarsviði Ný-
herja.
Tilvísanir
www.sei.cmu.eilu
1 SEI er þróunar- og rannsóknarsetur
sem var stofnsett árið 1984, er fjár-
magnað af bandaríska ríkinu og
starfar náið með varnarmálastofnun
Bandaríkjanna, skammstafað DoD.
2 Gagnagrunnur SEI inniheldur giign
frá fyrirtækjum um allan heim sem
framkvæmt hafa innri eða ytri CMMI
mælingu og upplýsingar um einstök
verkefni. Upplýsingarnar eru notaðar
til að meta ástand á markaði og gera
samanburðarrannsóknir.
3 Industry average
Elín Kristjana Sighvatsdóttir,
Gœðastjóri Hugbúnaðarsviðs Nýherja,
líorgartúni 37,
105 Reykjavík.
eks@nyherji. is