Heimilisritið - 01.09.1952, Page 15

Heimilisritið - 01.09.1952, Page 15
Oft rekst ég á fólk, sem eyÖir kröftum sínum í óþarfa árekstra, einkum við sjálft sig. Það er upp- fullt af ertni, óvild, afbrýði og öfund. Sæll er sá, er gengur lífs- götuna án þessara óþörfu byrða — er e\hi bráðlyndur, tiltekta- samur, óþolinmóður og uppstökk- ur. Það er undravert, hve heil- næm áhrif slíkt hefur á taugakerf- ið, hve mikil orka losnar á þenn- an hátt til nytsamra starfa. Ég dáist að dóttur minni fyrir það, að hún stekkur aldrei upp á nef sér við litlu drengina sína tvo, sem ekki geta verið kyrrir eitt andartak. Hún segir: ,,Mér þykir skemmtilegra, að þeir skuli vera fjörugir og alltaf á þeytingi út og inn, heldur en ef þeir væru ef til vill veiklaðir og leiðinlegir." Einu sinni varð henni það á að setja frá sér málningardós þann- ig, að minnsti drengurinn náði til hennar og hvolfdi öllu úr henni á gólfið. Það eina, sem ég heyrði hana þá segja, var, að hún hefði sjálf átt að hafa vit á því að setja ekki dósina þar sem barnið næði í hana. Vegna þess, að hún tek- ur hlutina alltaf rólega, ganga húsverkin eins og leikur; og hún hefur orku afgangs til að leika tennis, synda og taka að sér fé- lagsleg störf. Nei, ef við viljum hafa rólegar taugar, verður að bannfæra gremju, afbrýðisemi og öfund. A öllum vinnustöðum rekst mað- ur á öfundsjúkt fólk, sem eyðir meiri tíma í að finna leiðir til að halda duglegri vinnufélögum niðri, heldur en í það að tileinka sér þekkingu og störf, sem gerir það sjálft fremra. Hvílík orka, sem þetta fólk sóar, og hvílíkt tjón taugum þess! Ég hef séð fólk eyðileggja heilsu sína alger- lega með slíkri öfund. Það er einhver mesta bölvun lífsins nú á dögum og ein helzta orsökun taugaveiklunar, að við vinnum svo ,,spennt“. Vinur minn byggði sér einu sinni kofa uppi í fjalli. Gamall fjallbúi kom þangað og fylgdist með starfi hans. Dag nokkurn, þegar vinur minn var að saga af öllum kröft- um, tók fjallbúinn eftir því, að maðurinn sagaði alveg eins og allir aðrir bæjarmenn, hann tók á af öllu afli, til þess að komast í gegnum tréð. ,,Þegar ég saga, þá bara.saga ég,“ sagði sá gamli. Við öll, sem höfum þandar taugar, gætum sjálf læknað okk- ur að mestu, ef við lærðum að ,,bara saga“. Við verðum að læra að fást við eitt í einu og vinna róleg að því. Ég hef oft sagt við ritara minn, að ef hún gæti séð í einni hrúgu öll bréfin, sem hún þyrfti að skrifa næstu 10 ár, myndi hana SEPTEMBER, 1952 13

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.