Heimilisritið - 01.09.1952, Qupperneq 19
FRÚ BROWN og McDangal
brostu hvort til annars, án þess
hann sæi. Hann var aS hugsa um,
hversu þreytancli það myndi
verða, ef Endertonmæðgurnar
tækju á ný upp baráttuna fyrir
vellíðan hans og hamingju. Hann
óttaðist engan veginn, aS þeim
yrði neitt ágengt — hann hafði
varizt of mörgum árásum til þess,
en það var engu að síður þreyt-
andi, og hann var önnum kafinn
maður.
Ekki svo að skilja, að Bill fyrir-
liti kvenfólk eða hjónabandið, en
hann hafði bara engan áhuga á
þessu hvoru tveggja. Hann var
mjög ungur, er hann kvæntist
móður McDangals, og hún dó
tveimur árum síðar, þegar dreng-
urinn var ársgamall. ÞaS hafði
öllu fremur veriS eins og aS leika
pabba og mömmu en hjónaband
— auk þess var svo langt síðan,
að hann hafði næstum gleymt
því. Sérhver maður hefur rétt til
að hafa sína eigin skoðun, og Bill
hafði nú einu sinni enga löngun
til að kvænast aftur.
McDangal var sömu skoðunar.
Arin, sem faðir hans hafði verið
í stríðinu, hafði hann dvalið hjá
Ethel frænku — gæðakonu, sem
hafði reynzt honum vel. En hann
mundi enn, hversu feginn hann
hafði verið, þegar hann kvaddi
hana og sneri aftur til pipar-
sveinalífsins. Kvenfólk var þreyt-
andi — allar nema frú Brown.
Hún var ætíð í góðu skapi og gott
að leita til hennar, þegar eitthvað
bjátaði á.
En þegar á bjátaði fyrir alvöru,
var frú Brown ekki viS til að
hjálpa þeim.
NOKKRUM dögum eftir að
súkkulaðikakan var gefin þeim,
og EndertonmæSgurnar höfðu
hafið nýja árás, vöknuðu Bill og
McDangal morgun einn skjálf-
andi af hitasótt og svo veikir, að
þeir gátu varla hreyft sig. Þegar
læknirinn kom, lýsti hann því yf-
ir, að þeir hefðu inflúensu.
,,ÞiS verðið að liggja í að
minnsta kosti viku, báðir tveir,“
sagði hann við Bill. ,,Ef spítalarn-
ir væru ekki yfirfullir af inflú-
ensusjúklingum, myndi ég hafa
lagt ykkur inn. ÞaS er ógerlegt
að fá hjúkrunarkonu. ÞekkiS þið
ekki einhvern kvenmann, sem
getur annazt um ykkur ?“
,,ViS getum séð um okkur sjálf-
ir,“ sagði Bill veikri röddu.
,,Eg held nú ekki! Hvernig er
það með kvenfólkið í íbúðinni
hérna andspænis ?“
,,Ég vil heldur deyja ! ViS vilj-
um báðir heldur deyja ! Getið þér
ekki náð í frú Brown ? Símanúm-
erið hennar stendur á blaðinu við
SEPTEMBER, 1952
17