Heimilisritið - 01.09.1952, Page 22

Heimilisritið - 01.09.1952, Page 22
hann horfði framan í fölt, þreytu- legt andlit. ,,0, hann dreymdi illa,“ svar- aði hún rólega. ,,Þér hafið sjálf- ur fengið að reyna það síðustu dagana. Farið aftur í rúmið !“ ,,Líður honum betur núna ?“ „Vissulega! En farið nú aftur í rúmið ! ‘ ‘ 1 stað þess að fara, tók hann að skjögra í áttina til sonar síns. Donna stóð upp, lagði McDangal gaetilega í rúmið, breiddi ofan á hann, sneri sér síðan við og tók fast um handlegginn á Bill. ,,Eg sagði, að þér ættuð að fara í rúmið, komið nú —“ ,„Eg verð fyrst að ganga úr skugga um, að ekkert sé að hon- um. “ ,,Hvað ætlið þér að gera ? Vekja hann og spyrja, hvernig honum líði ? Eg sagði, að honum liði betur. Komið svo !“ Auðsveipur lét hann hana teyma sig aftur inn í herbergið. Sér til mikillar gremju, neyddist hann til að styðja sig þungt við handlegg hennar síðustu skrefin. Hún var bersýnilega sterkari en hún leit út fyrir að vera, og þess vegna þótti honum vanmáttur sinn ennþá meir auðmýkjandi. Hún hjálpaði honum í rúmið, og með nokkrum snöggum hand- tökum slétti hún lökin og hristi koddana, svo rúmið varð svalara og þægilegra. Hún er auðsjáan- lega ein af þeim kvenmönnum, sem allt geta, hugsaði hann beisk- ur. Þegar hún mætti augnatilliti hans, hló hún glaðlega — hann hafði víst starað grimmdarlega á hana. ,,Yður er að batna ! Yður líður betur,“ sagði hún. . ,,Ég held nú ekki! Eg er eins og bæklaður aumingi — mig verkjar í bakið, og ég held hand- leggirnir séu brotnir. Einhver hef- ur sparkað í magann á mér — mig verkjar í allan skrokkinn.“ ,,Það er af því þér hafið fengið penisilín. Leggizt nú og farið að sofa.“ ,,Hver eruð þér eiginlega?“ ,,Ég er barnabarn frú Brown. Hún sendi mig hingað, af því hún gat ekki komið sjálf. Góða nótt.“ Hún slökkti ljósið og lokaði hurðinni einbeittlega á eftir sér. En hvað það var líkt kvenfólkinu að skilja hann einan eftir til að sálast í myrkrinu ! Og hún hafði auk þess lokað hurðinni, svo fjör- brot hans trufluðu hana ekki. Barnabarn frú Brown ! Hann hafði aldrei heyrt aðra eins vit- leysu. Hann myndi sennilega liggja vakandi alla nóttina og þjást af einveru. — Eftir mínútu var hann steinsofnaður. 20 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.