Heimilisritið - 01.09.1952, Page 39

Heimilisritið - 01.09.1952, Page 39
og starði niður á hann. Hann í- mvndaði sér, að þar lægi bund- inn fangi, og hræðilegt gleðióp hans bergmálaði frá hvelfingunni, eins og draugshljóð úr öðrum heimi. Þá var það, að Paul, sem ekki kunni skil á brjálsemi frænda síns, gerði skyssu, sem hafði miklar þjáningar í för með sér fyrir hann. Hann reyndi að neyða Martin með valdi, hann ætlaði að bera hann heim. Þá réðist hinn brjálaði maður á hann með öllum þeim ofsa og því afli, sem vitfirríngin léði honum, og þeir ultu báðir á steingólfinu. Það er enginn vafi á því, að Paul hefur misst meðvitundina um stund, og á eftir mundi hann það eitt, að er hann rankaði við sér, fann hann krumlur brjálaða mannsins á kverkum sér, og að hann var því næst dreginn á hand- leggjunum eftir gólfinu, þangað sem hið skelfilega pyndingartæki, er nefndist járn-jómfrúin, stóð. Ef til vill hefur hann nú tekið að renna grun í fyrirætlun brjálaða mannsins. Hann skildi, að Mart- in hafði gersamlega misst vitið, og að ekkert annað en krafta- verk gæti forðað honum frá dauða og frænda hans frá hryllilegu ó- dæðisverki. Þetta lamaði hann svo algerlega að hann gat hvorki gefið frá sér 'hljóð né hreyft sig. Hann féll í yfirlið og Martin gat farið með hann eins og honum þóknaðist.------ Þegar Paul Uhland kom aftur til sjálfs sín, var hann bundinn á höndum og fótum, og það svo rammlega, að hann gat ekki einu sinni snúið höfðinu til hliðar. Gersamlega óvitandi um, hvað fyrir hann hefði komið, hélt hann í fyrstu, að hann væri bundfnn við bekkinn í svartholinu, en dauf ljósglæta, sem féll inn um rifu, sýndi honum brátt hvar hann var staddur, og nú vissi hann, að hann var lokaður inni í því skelfi- lega pyndingartæki, sem nefnt var járn-jómfrúin, og að hann myndi bíða hinn hryllilegasta dauðdaga, ef ekki bærist hjálp á næstunni. Hann þekkti járn-jómfrúna vel, því Martin hafði áður sýnt honum hana. Hún var í líkingu við kvenmann að lögun; fimm fet í þvermál og ríflega tíu feta há. Með því að styðja á fjöður mátti opna framhliðina eins og hurð, þessi hurð var sett löpgum oddhvössum stálrýtingum, sem sneru inn, og voru í hæð við augu, hjarta og lungu fórnar- lambsins. Hurðin var um tonn að þyngd, og þegar búið var að opna hana, var hægt að loka henni með sigurverki, en svo hægt að rr.aður greindi ekki hreyf- inguna. Hægt en örugglega var þá sá, sem þar stóð bundinn, SEPTEMBER, 1952 37

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.