Heimilisritið - 01.09.1952, Síða 47

Heimilisritið - 01.09.1952, Síða 47
öllum kúnstarinnar reglum. £g aetla að fá húsabyggingameistara til að sjá um það allt saman." Það birti yfir svip Daves. ,.Hæ, ég þekki einn ! Ég þekki telpuhnátu, sem er bezti innan- hússbyggingameistari í borginni. Hún er —“ Peter bandaði frá sér. ..Sparaðu fyrirhöfnina, lagsi ! Ég kæri mig ekkert um listaskóla- stelpurnar þínar. Það, sem ég vil fá, er Jiarlmannsíbúð, útbúin af f^arlmanni. Engan kögurvefnað og útsaumsdót. Ónei! Eg ætla að leita til firmans, sem Tom Berr- inger skipti við — nei, þegiðu bara með þína — þú sást sjálfur íbúð Toms. Svoleiðis nokkuð lík- ar mér. McLacy-firmað útbjó hana, og hún er prýðileg. Eg fer þangað á morgun, næ í sama ná- ungann, og svo geta þeir byrjað með sama.“ A leiðinni heim í hótelið aftur, sagði Dave: ,,Það er synd og skömm, að þú skulir hætta við ferðina. Þú ættir sannarlega að fá þér frí.“ ,,Hver segir, að ég hætti við ferðina?“ spurði Peter undrandi. ,,Ef þú heldur, að ég ætli að standa hjá og horfa á málarana, ertu ekki með öllum mjalla. Eg fer á laugardaginn. Ferðin tekur hálfan mánuð, og þegar ég kem heim, er íbúðin tilbúin. Það gengur allt eins og fingur í þum- al.“ KLUKKAN hálftíu næsta morgun ruddist Peter gegnum skóg af húsgögnum og inn um breiðar dyr, sem á stóð: ,,Hús- búnaðardeildin“. Þar sátu margir viðskiptavinir og biðu. ,,Er Fellows við ?“ spurði Peter unga stúlku með gleraugu, sem sat við skrifborð. ,,Upptekinn ! Viljið þér bíða ?“ Peter settist á bekk. Ung, grönn stúlka með ljóst hár kom inn um dyr, og á leið- inni gegnum herbergið missti hún haug af bréfmiðum, sem þyrluð- ust í allar áttir — út í yztu skot og undir stóla og bekki. Peter rauk henni til hjálpar og tíndi upp. Með hárið flögrandi um rjótt and- litið þakkaði hún honum fyrir og settist við skrifborð, sem flóði af skjölum, bréfum, sýnishornum, veggfóðursheftum, lömpum og símum. Og mitt í öllu saman stóð vasi með visinni rós. Peter leit á klukkuna, gekk að borðinu og sló til hendinni. Unga stúlkan rétti fram höndina til að bjarga öðrum lampanum og varð þá á að velta um vasanum. Vatn- ið skvettist á ljósgrá föt Peters. ,,Ég kom til að tala við Fell- ows,“ sagði Peter gramur. SEPTEMBER, 1952 45

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.