Heimilisritið - 01.09.1952, Page 54
Ágætt! — — Hvað ? £g kem
snemma á morgun og lít inn. Sæll
og blessaður----------“
Hann lét fallast niður í annan
djúpa stólinn. Hann leit á hinn
stólinn hinum megin við borðið.
Tærnar á honum krepptust þægi-
lega innan í gömlu flókaskónum
— eins og litla hnátan hafði
kreppt tærnar. Gegnum hálflok-
uð, svefnþung augnalokin ímynd-
aði hann sér, að hann sæi raf-
hárnálarnar á sléttum borðfletin-
um, gullið hár, sem umlukti lítið
andlit, brún augu — hann sá
hana fyrir sér í hinum stólnum,
granna og yndislega. ,,Komdu til
mín, ástin mín,“ hvíslaði hann.
Peter hrökk upp. Svefnlaus
nóttina áður, og svo allt þetta
gat sannarlega komið manni til
að dreyjna vakandi. Þegar hann
dró gluggatjöldin til hliðar til að
opna gluggann, minntist hann
þess, að helminginn af einu
gluggatjaldinu í setustofunni
vantaði. Hann skyldi — já, alveg
áreiðanlega. Strax í fyrramálið
skyldi hann fara og láta vita af
því. Hann þyrfti ekki að ónáða
Fellows vegna slíkra smámuna.
Bara minnast á það við — við —
það var kátlegt, að hann skyldi
ekki vita, hvað hún hét, svo hann
gæti spurt eftir henni — hann
skyldi fara þangað snemma í
fyrramálið. Fimm mínútum
seinna var Peter sofnaður með
bjánalegt bros á vörunum.
FYRIR átta næsta morgun
vaknaði hann við, að einhver var
að berja — berja inni í stofunni.
Hann spratt fram úr rúminu, og
berfættur í náttfötum með úfið
hárið þaut hann inn í setustofuna.
Uppi í glugganum, með morg-
unsólina ljómandi í gullnu hár-
inu, stóð hún. Hún var á sokka-
leistunum, tyllti sér á tá og var að
setja upp gluggatjaldahring. Sigri
hrósandi hallaði hún sér aftur á
bak til að geta betur jafnað þykk-
ar fellingarnar, og kom þá auga
á hann.
Hún riðaði óttaslegin og baðaði
út höndunum. Hann hljóp til, og
taskan hennar datt niður í höfuð-
á honum, um leið og hann greip
hana í faðm sinn. *
KÍNVERJAR SEGJA . . .
Ef þig langar til að vera glaður cina stund, skaltu fá þcr í staupinu.
Ef þú vilt vera ánægður í þrjá daga, skaltu kvænast. Ef þú vilt vera
glaður og ánægður í viku, skaltu drepa svín og cta það. En ef þú vilt
vcra hamingjusamur ævilangt, skaltu gcrast garðyrkjumaður.
Volta Review.
52
HEIMILISRITIÐ