Fréttatíminn - 05.07.2013, Qupperneq 14
Borgartún 1 Fákafen 1 Hæðasmári
www.lifandimarkadur.is
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
Veldu gæði á góðu verði.
Bættu heilsuna fyrir þig og þína.
HEILSUSPRENGJA
Yfir 200 tegundir!
25%
afsláttur af
öllum NOW
vítamínum
20%
afsláttur
af völdum
lágkolvetna
matvörum
25%
afsláttur
!H
ei
ls
u
sp
re
n
g
ja
n
e
r
fr
á
fi
m
m
tu
d
. 4
. j
ú
lí
t
il
7
. j
ú
lí
2
01
3
20%
afsláttur
!
Eldri borgarar eru ekki einsleitur hópur með einsleitar þarfir
Aldraðir eiga framtíðina fyrir sér
É g ætla ekki að kalla pabba minn eldri borgara. Hann er ekki nema 66 ára og á því ár í að verða „löglegt gamal-
menni,“ eins og sagt er. Hann býr á Reykhól-
um og ég í Reykjavík. Ég er eina barnið hans
og hjá mér býr eina barnabarnið hans, hún
Lovísa mín. Við reynum að heim-
sækja hann og hann okkur en það er
ekki alveg nógu oft.
Ég hef alltaf verið ánægð með
hvað pabbi er duglegur að nýta sér
tæknina. Spjallforritið MSN var ekki
fyrr komið til sögunnar en pabbi
var kominn með það og skyndilega
vorum við pabbi farin að spjalla
saman kvöldlangt á netinu um heima
og geima. Allt í einu vorum við farin
að deila meiri hluta af lífi okkar með
hvort öðru, þökk sé samskiptamiðli á
Netinu. Á sínum tíma ritstýrði hann
vef fréttablaðsins Bæjarins besta
á Ísafirði og komst ekki hjá því að
tileinka sér nýja tæknimöguleika og þess
nýtur hann sannarlega í dag. 66 ára gamall
sér hann um einn virkasta og auðvitað lang-
besta héraðsvef landsins, Reykhólavefinn. Ég
man enn hvað mér fannst skondið þegar við
pabbi byrjuðum að tala saman í gegn um sms
í símanum. En það eru ekki bara unglingar
sem senda sms og hanga á Facebook. Pabbi
er auðvitað á Facebook og einn daginn fékk
hann þá stórgóðu hugmynd að spjalla við
Lovísu mína í gegn um Skype. Hún segir
honum hvað hún gerði á leikskólanum þann
daginn, sýnir honum myndir sem hún hefur
teiknað og gerir jafnvel nokkrar jógaæfingar
fyrir afa. Afi sýnir Lovísu gretturnar sínar,
boltann sem hún lék sér með síðast þegar
hún var í heimsókn og barnabarnið fylgist vel
með hversu sítt skeggið hans afa er á hverjum
tíma.
Þegar ég hringdi í formann Landsambands
eldri borgara vegna umfjöllunar hér í Frétta-
tímanum kom í ljós að hún býr í Reykhóla-
hreppi og er vinkona pabba míns. Svona
er nú heimurinn lítill. En við ræddum um
tölvur og aldraða og hún sagðist þekkja afa
og ömmur sem búa fjarri barnabörnunum
en nýta sér nýjustu tækni og lesa kvöldsögur
fyrir börnin í gegn um Skype, þar sem þau
eru með eina bók og barnið með aðra eins
bók. Þannig deila þau einstökum stundum
sem annars yrðu kannski aldrei til, fylgjast
með barnabörnunum stækka og þroskast, og
börnin halda einstökum tengslum við ömmur
og afa. Já, gamalt fólk getur nefnilega alveg
lært á tölvu.
Á nýlegu framtíðarþingi um farsæla öldrun
ræddu fundarmenn um að mikilvægt sé að
breyta viðhorfi samfélagsins til aldraðra,
minnka neikvæðni og efla skilning á því að
þeir eru hópur fjölbreyttra einstaklinga.
Þá var einnig rætt, bæði í gamni og alvöru,
um að búa til nýja staðalmynd fyrir „gamla
fólkið“ með því að „færa það úr baðstofunni
og inn á Sushi-barinn“. Ég hef sjálf fallið í
þá hugsanagildru að tala um „gamalt fólk“
eins og einsleitan hóp en það er auðvitað jafn
fjarstæðukennt og að ætla öllum unglingum
að vera eins. Á fundinum komu aldraðir
þeirri upplifun sinni á framfæri að þeir séu
gleymdur hópur sem ekki sé spurður álits
á einu eða neinu og til marks um það þá eru
þeir sjaldnast með þegar gerðar eru skoðana-
kannanir um allt milli himins og jarðar. Síðan
eru sumir eldri borgarar hreinlega einmana,
lokast af félagslega og eiga erfitt með að
brjótast úr úr þeim vítahring. Stungið var upp
á stefnumótasíðu fyrir aldraða sem ég held
að sé hin besta hugmynd. Amma getur þá
sett inn einkamálaauglýsingu og einhver afi
í rómantískum hugleiðingum, já eða önnur
amma, finnur sér félaga til að skjótast með til
Kanarí og líka til að gera allt það hversdags-
lega sem gefur lífinu gildi. Eða eins og einn
fundarmaðurinn sagði: „Aldraðir eiga líka
framtíðina fyrir sér.“
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
9
milljarða króna krefur Sunshine
Press Productions, rekstarfélag
fyrirtækjanna WikiLeaks og DataCell,
Valitor um í skaðabætur fyrir að
hafa lokað á greiðslur til WikiLeaks.
Vikan í tölum
600
manns skráðu sig til leiks í óbyggðahlaupið
RacingThePlanet: Iceland 2013 en aðeins
helmingur þeirra komst að. Hlaupið hefst 4.
ágúst og farnir verða 250 kílómetrar á sjö
dögum, frá Kerlingarfjöllum í Bláa lónið.
39
milljónir króna
fékk Árni Páll
Árnason,
formaður
Samfylk
ingarinn ar,
greidd ar
frá Íbúða
lánasjóði
fyrir
lögfræði
ráðgjöf á
árunum
2004
2008.
765
eintök hafa selst af nýjustu plötu
Sigur Rósar, Kveik, hér á landi síðan
hún kom út á þjóðhátíðardaginn.
12.198
bílaleigubílar eru í notkun á
Íslandi og hafa aldrei verið fleiri.
Ríflega þrjú þúsund hafa bæst í
flotann í ár.
14 viðhorf Helgin 5.7. júlí 2013