Fréttatíminn - 05.07.2013, Side 21
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Rjóminn er einstakur. Hann á sér fastan
sess í matargerð okkar íslendinga.
Þú nnur girnilegar og sumarlegar
uppskriftir með rjóma á gottimatinn.is
rjóminn er kominn
í nýjar umbúðir
virða öryggi íbúa að vettugi. Þrátt
fyrir að 31 hafi látist í rafmagns-
vírum Celpe, sem veitir rafmagni
um allt fylkið Pernambuco, var það
ekki fyr en eftir að David lést sem
málið fékk athygli fjölmiðla. „Davi
var vel þekktur í Brasilíu. Hann
var í vinsælli hljómsveit áður en
hann flutti til Kaliforníu. Hann var
menntaður lögfræðingur og vann
við það í Recife rúmt ár. Honum
fannst hins vegar spillingin svo
mikil að hann vildi ekki vinna við
það lengur. En hann þekkti marga
lögfræðinga sem hafa vakið athygli
á málinu hans núna.
Davi var mjög vinsæll
og átti marga vini.
Hann þekkti líka fjöl-
miðlafólk og allt hefur
þetta hjálpað til að
vekja athygli á því hvað
Celpe er að gera.“
Borgin sem Kristín
og Davi bjuggu í,
Recife, er stærsta borg
fylkisins Pernambuco
og sér Celpe um að
veita orku um allt
fylkið. Vinir og félagar
David stóðu fyrir mótmælum fyrir
framan höfuðstöðvar Celpe þann
25. júní þar sem þeir negldu niður
32 krossa á lóðinni, einn kross fyrir
hvern þann sem hafði dáið eftir að
fá í sig opna rafmagnsvíra. Einn til
viðbótar hefur dáið síðan þá. For-
eldrar David tóku þátt í mótmælun-
um og setti faðir hans niður kross
í minningu sonar síns. „Þetta voru
friðsöm mótmæli hjá okkur. Það
voru verðir sem gerðu ekki neitt
og mér fannst svo merkilegt að það
sást enginn úti í glugga hjá Celpe.
Ég heild að þeir hafi vitað upp á sig
skömmina,“ segir Kristín.
Spilling og fjöldamótmæli
Henni finnst Brasilía dásamlegt
land að mörgu leyti og segir fólkið
í Recife alveg yndislegt. Þannig
hafi nágrannar þeirra sífellt verið
að athuga með líðan hennar eftir
að Davi lést og gert það sem þeir
gátu til að aðstoða hana og færa
henni mat. Kristín er samt reið yfir
því hvernig stjórnvöld haga sér og
hversu miklu sé ábótavant. „Sjúkra-
bíllinn var endalaust lengi á leiðinni
þegar Davi dó. Það er bara þannig
þarna. Heilbrigðiskerfið er alveg
hræðilegt. Þessir opnu rafmagns-
vírar eru bara ein birtingarmynd
ástandsins.“ Þetta er ástæðan
fyrir því að hún er á báðum áttum
með að búa áfram í Brasilíu. Hún
bendir á að heimsmeistaramót
karla í knattspyrnu fer þar fram á
næsta ári og að nokkrir leikir verði
í Recife. „Nú er miklum fjármunum
eytt í að byggja upp ýmislegt í
tengslum við heimsmeistaramótið
en íbúar landsins eru látnir sitja á
hakanum. Þegar við fyrst fluttum
þangað var ég hissa á hvað fólk lét
yfir sig ganga en mér finnst fólk
núna vera að vakna. Sem betur fer.“
Mótmæli hafa verið víða um
Brasilíu að undanförnu. Það var
líkt og hækkun á strætófargjaldi
hafi verið kornið sem fyllti mælinn,
en það var hækkað úr 3.00 í 3.20
ríal en eitt ríal er um 55 krónur.
Nú leggja mótmælendur áherslu á
að þeir séu ekki bara að mótmæla
þessum „20 centum“ heldur lélegu
heilbrigðiskerfi, niðurskurði í
menntamálum, spillingu og því
hversu miklum fjármunum er varið
beint í heimsmeistaramótið. „Þetta
land er ekki í neinu ástandi til að
halda þessa keppni. En ég er ánægð
með að fólkið er byrjað að láta í sér
heyra,“ segir Kristín. Verið er að
safna undirskriftum til að krefja
hið opinbera um að láta Celpe setja
rafmagnskapla í jörð og hreinlega
banna að Celpe sé einkarekið. „Ég
vona innilega að þessu verði breytt.
Hann má ekki hafa dáið til einskis,“
segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Hann má
ekki hafa
dáið til
einskis.
Recife er strandborg í Brasilíu og þar búa um 1,5 milljón manns.Afar illa er gengið frá rafmagnsvírum hjá Celpe og má sjá opna víra víða um Recife.
viðtal 21 Helgin 5.-7. júlí 2013