Fréttatíminn - 05.07.2013, Page 56
List NorræNi meNNiNgarsjóðuriNN veitir styrk
Sextíu milljón króna styrkur til stafrænnar listar
Dagný Hulda
Erlendsdóttir
dagnyhulda@
frettatiminn.is
Norræni menningarsjóðurinn
auglýsir nú eftir umsóknum að
sextíu milljón króna styrk sem
veittur er annað hvert ár. Styrk-
urinn mun fara til verkefnis á
sviði stafrænnar listar og gilda
fyrir tímabilið 2015 til 2016.
Markmið sjóðsins með styrkn-
um er að hvetja til sköpunar á
sviði starfrænnar listar þar sem
samspil tækni og lista leiðir til
þróunar og tækifæra. Sjóðurinn leggur áherslu
á að verkefnin sýni fram á listræna nýsköpun
með áherslu á gagnvirkni og tjáskipti. Sú regla
gildir hjá sjóðnum að fólk frá þremur Norður-
löndum, hið minnsta, taki
þátt í þeim verkefnum sem
hann styrkir.
Á síðasta ári veitti
Norræni menningarsjóður-
inn þessum sama styrk
til verkefnisins Norræna
ljósið 2014 en að því standa
Vilborg Einarsdóttir og
Hlín Jóhannesdóttir, í
samstarfi við tvo finnska
listamenn.
Umsóknarfrestur rennur út 15. febrúar 2014
og nánari upplýsingar má nálgast á síðu sjóðsins
www.nordiskkulturfond.org
Framleiðendurnir Vilborg Einarsdóttir og Hlín Jóhannesdóttir hlutu sama
styrk í fyrra vegna Norræna ljóssins 2014. Ljósmynd/Hari.
Norræni menningarsjóðurinn styrkir verkefni
á sviði starfrænnar listar árin 2015-2016.
Það eru ekki
aðeins for-
réttindi að
geta notið
listarinnar
og þess sem
hún gefur
manni, held-
ur getur hún
einnig verið
fyrirtaks fjár-
festing.
meNNiNg sumarsýNiNg í miðbæ reykjavíkur
Níu listamenn á sumar-
sýningu Tveggja hrafna
Listhúsið Tveir hrafnar opnar í dag sumarsýningu á verkum níu íslenskra listamanna sem allir
eiga það sameiginlegt að hafa heillað eigendur listhússins, þau Höllu Jóhönnu Magnúsdóttur
og Ágúst Skúlason. Sýningin mun standa yfir til loka sumars en opnunin verður í dag á milli
klukkan 17 og 19 og eru allir velkomnir.
v ið hérna hjá Tveimur hröfnum eigum í samstarfi við sex lista-menn, þau Davíð Örn Halldórs-
son, Hallgrím Helgason, Huldu Hákon,
Húbert Nóa Jóhannesson, Jón Óskar og
Steinunni Þórarinsdóttur. Á sumarsýn-
ingunni verða verk frá þeim auk verka
eftir Erró, Kristján Davíðsson og Óla G.
Jóhannsson,“ segir Ágúst Skúlason sem
er eigandi listhússins ásamt konu sinni,
Höllu Jóhönnu Magnúsdóttur. „Kristján
lést fyrir skömmu síðan en Óli fyrir
tveimur árum. Við þekktum þá báða vel,
þótti mjög vænt um þá merkismenn og
langar með þessu að heiðra minningu
þeirra en þeir sýndu saman í Listasafni
Akureyrar árið 2001.“ Ágúst segir lista-
menn sýningarinnar eiga það sameigin-
legt að vera í miklum metum hjá þeim
hjónum. „Við leggjum mikið upp úr því
að starfa með góðum listamönnum og
erum alsæl með það fólk sem við eigum
í samvinnu við.“
Að sögn Ágústs eru listamennirnir
breiður hópur fólks á öllum aldri. Yngst-
ur þeirra er Davíð Örn Halldórsson sem
er þrjátíu og sex ára en fyrr á þessu
ári var hann tilnefndur til skandinav-
ísku Carnegie listaverðlaunanna sem
veitt eru annað hvert ár. „Hann verður
fulltrúi Íslands, ásamt Einari Garibaldi
Eiríkssyni, á sýningu verðlaunanna sem
opnar í haust í Stokkhólmi í Svíþjóð.“
Ágúst og Halla hafa lengi verið mikið
áhugafólk um myndlist og hafa sjálf
safnað verkum í gegnum árin. Þau hafa
kynnt og miðlað listaverkum ýmissa
listamanna til fyrirtækja, stofnana og
einstaklinga. „Það er gaman að sjá hvað
fólk er áhugasamt um myndlistina.
Það eru ekki aðeins forréttindi að geta
notið listarinnar og þess sem hún gefur
manni, heldur getur hún einnig verið
fyrirtaks fjárfesting,“ segir Ágúst. List-
húsið Tveir hrafnar annast einnig endur-
sölu á völdum verkum auk þess að veita
ráðgjöf við kaup á myndlist.
Galleríið er staðsett að Baldursgötu
12, gegnt veitingastaðnum Þremur
frökkum og er opið frá klukkan 11 til
17 miðvikudaga til föstudaga en frá 13
til 16 á laugardögum og utan þess tíma
eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar
má nálgast á vef listhússins www.tveir-
hrafnar.is
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Halla Jóhanna Magnúsdóttir og Ágúst Skúlason opna sumarsýningu í dag klukkan 17:00 í listhúsi sínu, Tveimur hröfnum og
eru allir velkomnir. Mynd/Hari.
56 menning Helgin 5.-7. júlí 2013