Fréttatíminn - 15.11.2013, Blaðsíða 46
KRAFTAVERK
VIÐ VERKJUM
PEROZIN KÆLIKREMIÐ
PEROZIN
kælikremið
virkar mjög
vel á:
Dregur
strax úr
verkjum!
Inniheldur m.a.
Arnica Montana,
myntu, rósmarín
og engifer.
PEROZIN fær bestu meðmæli
frá Kírópraktorstofu Íslands
„Það kemur viðskiptavinum okkar alltaf
á óvart hversu hratt og lengi PEROZIN
kremið virkar.“
• Verki í liðamótum
• Pirring í fótum
• Gigtarverki
t.d. slit- og liðagigt
• Vöðvabólgur
• Bakverki
• Tognanir
• Íþróttaáverka
PEROZIN fæst í helstu apótekum - Innflutt af Iceprakt ehf. - www.iceprakt.is - iceprakt@iceprakt.is
Þekktu
túpuna
Jakobína
Jónsdóttir
Grunnpakki kvenna
NOW er breið lína hágæða fæðubótarefna sem er án allra óæskilegra
aukefna, svo sem litar-, bragð- og rotvarnarefna og ódýrra uppfylliefna.
w
w
w
.n
o
w
fo
o
d
s.is
www.facebook.com/nowfoodsiceland
G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i
Í grunnpakka NOW eru hágæða
fjölvítamín með steinefnum, D3
vítamín og omega-3 fiskolía en það
eru þau lykil næringarefni sem eru
líkamanum nauðsynleg til að starfa
eðlilega og viðhalda heilbrigði.
þetta eru jú tvö einvígi sem standa
samanlagt í 180 mínútur og það
þarf að fara vel yfir hvað sé rétt að
gera. Það þarf að spila taktískt,
við byrjum á heimavelli og þurfum
að ná góðum úrslitum til að fara
með til Zagreb. Það er ekki gott að
byrja illa og fara þangað með tap á
bakinu. Þá þurfum við að reyna að
vinna það upp og til þess þyrftum
við að opna okkur varnarlega.“
Hefur ekki skorað í þremur
leikjum í röð
Þú ert búinn að raða inn mörkum
með landsliðinu en undanfarnar
vikur hafa hlutirnir ekki fallið
fyrir þig með Ajax. Þú hefur ekki
skorað í síðustu þremur leikjum
og aðeins eitt mark í síðustu sex.
Er þetta áhyggjuefni?
„Nei, nei. Það koma alltaf tíma-
bil hjá framherjum þar sem þeir
skora ekki í nokkrum leikjum í
röð. Sem betur fer hefur það ekki
gerst oft hjá mér. Í síðustu leikjum
hef ég líka verið að spila úti á kanti
sem hefur kannski eitthvað að
segja.“
Það virkar einmitt á mann eins
og þeir kunni ekki að nota þig, eða
að leikstíll Ajax henti þér jafnvel
ekki. Í landsleikjunum er spilað
upp á styrkleika þína en hjá Ajax,
til að mynda í Meistaradeildar-
leiknum við Celtic um daginn, þá
small þetta einhvern veginn ekki
nógu vel. Kannastu við þetta?
„Það er náttúrlega spiluð öðru-
vísi taktík úti. Þar er líka mikið af
nýjum leikmönnum sem hafa verið
að koma upp og það er ákveðið
púsluspil að leyfa ungu strákunum
að sanna sig. Þá færðu alltaf eitt-
hvað minna af boltum. Hér heima
vita allir hvað maður gerir, við
höfum spilað svo lengi saman að
það kunna allir inn á hvern annan
og vita hvað hver getur.“
Hvaða vitleysa er það að láta þig
spila úti á kanti?
„Ég er í raun og veru ekkert
ósáttur við það. Það er bara fínt.
Þá er ég alla vega í hlaupaformi
fyrir leikina tvo,“ segir hann í
léttum tón.
Vonum að það verði ekki
brjálað veður
Íslendingar hafa verið afar upp-
teknir af því hvernig veður verður
á leikdag. Og með réttu enda er
það síður en svo venja að fótbolti
sé spilaður
á Laugar-
dals-
velli
rúm-
um
mánuði
fyrir jól.
Kol-
beinn og félagar hafa líka pælt í
veðurspánni og vona að besta eins
og aðrir.
„Vonandi verður gott veður.
Núna er ég að horfa út um
gluggann og það er blankalogn
og fallegt veður en það er ekki
útlit fyrir að svo gott veður verði á
föstudag. Við vonum bara að það
verði ekki brjálað veður svo það
verði vesen að spila, þetta kemur
jafnt niður á báðum liðum hvort
eð er.“
Andri bróðir og Eiður Smári
fyrirmyndirnar
Eftir frábæran árangur lands-
liðsins er Kolbeinn fyrirmynd fjöl-
margra ungra íþróttakrakka hér
á landi. Hann er ungur að árum,
aðeins 23 ára, og því er ekki langt
um liðið síðan hann var sjálfur
strákur og átti sér sínar fyrir-
myndir.
„Að sjálfsögðu átti ég mér alltaf
fyrirmyndir. Það var náttúrlega
alltaf Andri bróðir minn sem
spilaði frammi erlendis, með KR
og landsliðinu. Ég leit mikið upp til
hans. Og svo auðvitað maðurinn
sem spilar með mér frammi hjá
landsliðinu núna, Eiður Smári. Ég
var alltaf að horfa á hann.“
Kolbeinn segir aðspurður að sé
frábært að spila með Eiði Smára
Guðjohnsen í landsliðinu, hann sé
frábær leikmaður sem nýtist liðinu
einstaklega vel. Nú er Eiður hins
vegar orðinn 35 ára og ekki víst
hversu lengi krafta hans mun njóta
við. Kolbeinn vonar að það verði
enn um sinn.
„Hann er bara að yngjast ef eitt-
hvað er. Hann er ennþá léttur á
sér og ferskur og finnst gaman
að spila með landsliðinu. Ef það
er gaman þá er engin ástæða til
að hætta. Ég vona að hann haldi
áfram eins lengi og hann getur.“
Langar að spila í sterkari deild
Hvað með framtíðina hjá sjálfum
þér? Við munum vonandi sjá þig
með landsliðinu um ókomin ár en
hvað með Ajax? Sérðu fyrir þér
að vera þar til frambúðar eða ertu
farinn að horfa annað?
„Auðvitað vill maður alltaf ná
lengra. Ég er búinn að vera í sex
ár í Hollandi og þetta er góð deild,
sérstaklega fyrir unga leikmann
til að koma sér á kortið. En ég
væri hins vegar alveg til í að stíga
skrefið á næstu árum og fara í eina
af sterkustu deildunum; ensku,
þýsku, ítölsku eða spænsku.
Kannski aðallega þá ensku. Hún er
náttúrlega vinsælasta deild heims.
Það væri ekki amalegt að komast
þangað.“
Það þarf að spila taktískt, við byrjum á
heimavelli og þurfum að ná góðum úrslitum
til að fara með til Zagreb. Það er ekki gott að
byrja illa og fara þangað með tap á bakinu.
Fjölskylda Kolbeins á Bakarameistarann.
Hann stillti sér upp fyrir ljósmyndara Frétta-
tímans þegar U21 árs liðið fór á EM árið 2011.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Kolbeinn
leikur með
Ajax í Hol-
landi. Hann
hefur ekki
skorað í
þremur síð-
ustu leikjum
liðsins.
46 landsleikurinn Helgin 15.-17. nóvember 2013