Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.11.2013, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 15.11.2013, Blaðsíða 30
V ið þurfum yfirlýsingu heilbrigðisyfirvalda um að viðreisnin sé hafin, yfirlýsingu um að nú sé hafið stórátak til að snúa þessari neikvæðu þróun við, það er nauðsynlegt svo að þeir sem eiga í hlut skilji að það sé eitthvað á sjóndeildarhringnum,“ segir Runólfur Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga á Landspítala, um ástandið á spítalanum. Mikil fækkun hefur orðið í röðum nýrnalækna spítalans á undanförnum árum. Stöðugildin eru nú liðlega 3 en voru sex árið 2004. „Á sama tíma hafa verkefnin aukist jafnt og þétt. Sjúklingum sem njóta meðferðar vegna nýrnabilunar á lokastigi hefur fjölgað mikið, en hún felst í blóðhreinsunarmeðferð (skilun) annars vegar og ígræðslu nýra hins vegar. Sem dæmi má nefna að í ársbyrjun 2004 voru 70 ís- lenskir sjúklingar með starf- andi ígrætt nýra en nú eru þeir 152. Það hefur ekkert breyst í starfsemi deildarinnar þrátt fyrir mannekluna. Við höfum ráðið til okkar duglegan deildarlækni og það hefur hjálpað mikið. Svo reynum við að leggja enn harðar að okkur til þess að láta þetta ganga upp. Það gengur hins vegar ekki til lengdar þannig að það er ljóst að aðgerða er þörf strax,“ segir Runólfur. „Annars óttast ég að fleiri hætti,“ segir hann. „Langtímamarkmiðið er nýr spítali en það dugir ekki til, við þurfum að lifa af þangað til enda ekki ljóst hvenær nýtt sjúkrahús verður komið í gagnið. Við þurf- um aðgerðir strax sem hafa þau áhrif að allir starfsmenn spítal- ans séu tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til að snúa þróuninni við, þurfum viðreisn sem þýðir þá líka að botninum sé náð,“ segir Runólfur Áhyggjur af næstu mánuðum Sérfræðingar hafa ýmist farið í launalaust leyfi til árs eða minnk- að við sig starfshlutfall. Að sögn Runólfs eru skýringarnar þær að læknarnir telja vinnuaðstöðuna á Landspítalanum ekki boðlega og vinnuálag óhóflegt. Þá hafi starfsþróunarmöguleikar margra sérfræðilækna verið afar takmark- aðir og ekki verið hlúð nægilega að læknum eða öðru starfsfólki. „Við höfum auglýst eftir sérfræð- ingum í nýrnalækningum en eng- inn hefur sótt um,“ segir Runólfur. Hann segist hafa áhyggjur af næstu mánuðum. „Bregðast þarf við á kröftugan hátt, að minnsta kosti með yfirlýsingu um að sam- staða sé um að ráðast í stórátak. Annars óttast ég að hlutirnir fari á verri veg innan fárra mánaða, manneklan er slík. Við stöndum mjög tæpt, það er reyndar misjafnt eftir sviðum en innan lyflækninga- sviðs er ástandið þannig að ekkert má út af bregða,“ segir Runólfur. „Kannski er stærsta málið að viðurkenna opinberlega að gríðar- legt vandamál sé fyrir hendi. Það er engin lausn að fara í mála- lengingar um að fólk sé eftir sem áður að fá góða þjónustu og að við séum með þjónustu á heimsmæli- kvarða í ýmsum málaflokkum, það er fljótt að dala,“ segir hann. „Árangurinn sem ráðamenn státa sig af má rekja til fyrri tíma. Þeir verða að gera sér grein fyrir að afleiðingarnar af því ástandi sem er uppi núna koma ekki fram fyrr en síðar, t.d. hvað snertir meðferð krabbameinssjúklinga. Það sem gæti hent strax er einkum aukin tíðni mistaka í tengslum við með- ferð bráðveikra. Hitt tekur lengri tíma að koma í ljós. Yfirvöld verða að trúa okkur þegar við segjum að starfseminni hér sé verulega ábótavant. Við erum ekki að tjá okkur um þessi mál vegna pers- Lín Design Laugavegi 176 & Glerártorgi Akureyri Sími 533 2220 www.lindesign.is Jólavörurnar eru komnar Jólarúmföt Dúkar - Íslensku jólasveinarnir Íslenskhönnun Jólaskraut á jólatréð Á tæpum áratug hefur sérfræðingum í nýrnalækningum á Land- spítalanum fækkað um helming og ekki tekst að ráða í lausar stöður. Enginn sótti um þegar auglýst var fyrir skömmu. Yfirlæknir hefur verulegar áhyggjur af næstu mánuðum og vill aðgerðir strax. Hann segir að yfirvöld verði að trúa heilbrigðisstarfsfólki þegar það lýsi áhyggjum sínum af ástandinu á spítalanum. Heilbrigðiskerfi á Heljarþröm hluti7. Yfirvöld verða að trúa okkur „Það sem gæti hent strax er einkum aukin tíðni mistaka í tengslum við meðferð bráðveikra. Hitt tekur lengri tíma að koma í ljós. Yfirvöld verða að trúa okkur þegar við segjum að starfseminni hér sé verulega ábótavant,“ segir Runólfur Pálsson yfirlæknir. 30 fréttaskýring Helgin 15.-17. nóvember 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.