Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.11.2013, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 15.11.2013, Blaðsíða 38
þegar ég tók í spil á árum áður að stutt var í fíknina. Það varð þó aldrei vandamál. Ég er líka spennufíkill. Þarf til dæmis alltaf að fara upp í hæstu byggingar, þar sem ég kem. Eins logandi lofthræddur og ég er. Það er alveg furðulegt að hegða sér svona. Eftir að ég kom heim eftir áfallið í Austurríki þróaði ég með mér enn eina fíknina, kynlífsfíkn. Ég hafði ekkert að gefa konum, nákvæmlega ekki neitt, en svaf eigi að síður hjá þeim. Það varð ákveðin fíkn. Þetta lagaðist með tímanum og kynlífs- fíknin hefur svo sem ekki plagað mig gegnum tíðina. Samt finn ég að hún liggur undir niðri. Datt í það með Spandau Ballet Ég var edrú í tvö og hálft ár eftir meðferðina á Staðarfelli. Það var dásamlegur tími og mér leið rosa- lega vel. Síðan féll ég. Aðdragandinn að því var sá að ég var sendur til Amsterdam í Hollandi haustið 1985 að lýsa Evrópuleik hjá FH í handbolta og þaðan átti ég að fara áfram til Frakklands að lýsa æf- ingaleikjum hjá landsliðinu. Þórarinn Ragnarsson, blaðamað- ur á Mogganum, var með mér í þess- ari ferð og eftir að við höfðum farið saman út að borða fyrsta kvöldið fór ég á undan heim á hótel. Var eitt- hvað illa upplagður. Ég hafði engin áform um að fá mér í glas en af ein- hverjum ástæðum, sem ég átta mig ekki á, kom ég við á litlum dansstað á leiðinni. Fékk mér kók. Það var ekkert um að vera á staðnum, bara ein stelpa á barnum og starfsfólkið. Þar sem ég sat þarna í rólegheit- unum með kókið stormaði inn hóp- ur manna og kvenna og á þeim var mikill sláttur. Var þar komin breska poppsveitin Spandau Ballet, sem naut mikillar lýðhylli á níunda ára- tugnum, ásamt einhverjum þrjátíu aðdáendum. Þeim fannst þessi einmanalegi ná- ungi með kókið við barinn greinilega eitthvað spennandi þannig að kallað var á mig. Hvort það voru poppar- arnir sjálfir eða aðdáendurnir veit ég ekki. Nema hvað, þeir fóru að spyrja mig spjörunum úr og fannst alveg meinfyndið að ég væri frá Íslandi. Þessir menn voru greinilega á ein- hverju öðru og sterkara en áfengi og mér boðið ýmislegt án þess að tilgreint væri sérstaklega hvað það átti að vera. Ég afþakkaði það enda ekkert verið í fíkniefnum. Það var svo sem allt í lagi að hlusta á og spjalla við þetta fólk. Ég ílentist fyrir vikið á staðnum og að því kom að stíflan brast, ég pantaði tvöfaldan viskí í kók. Eftir þrjú glös dreif ég mig heim á hótel, þar sem ég hitti einhverja stelpu og bauð henni í glas á barnum. Það æxlaðist þannig að hún fór með mér upp á herbergi. Um morguninn gekk ekkert að vekja mig, þannig að Tóti gafst bara upp og fór á undan mér til Frakk- lands. Þegar ég loksins rankaði við mér áttaði ég mig á því að stelpan hafði stolið af mér öllum pening- unum. Þá hafði hún verið þarna í þeim erindagjörðum, ég alltaf jafn grunlaus. Nú voru góð ráð dýr en það varð mér til happs að Heimir Karlsson, sem síðar varð stórvinur minn, var í Rotterdam að spila fótbolta með Ex- celsior og tókst mér að ná sambandi við hann gegnum Begga Guðna. Brást Heimir hratt og örugglega við, eins og hans er von og vísa, keyrði til Amsterdam og mætti upp á hót- el ásamt Pétri Péturssyni, sem líka var atvinnumaður í Rotterdam, hjá Feyenoord. Þeir voru svo almenni- legir að lána mér peninga svo ég gæti borgað hótelreikninginn og komist áfram til Lyon í Frakklandi daginn eftir. Leystur undan verkefnum hjá RÚV Við komuna til Lyon kom í ljós að tvö hótel með sama nafni eru í borg- inni og mér tókst auðvitað að veðja á rangan hest. Þar sem ég stóð þarna í lobbíinu, búinn að átta mig á mis- tökunum en heldur að ná heilsu, stormaði þá ekki Spandau Ballet- flokkurinn inn ásamt fríðu föruneyti. Grínlaust. „Hemmi our friend, nice to see you. How are you doing?“ Á því augnabliki var ég sannfærð- ur um að ég væri kominn með deliri- um tremens. Lái mér hver sem vill! Hverjar eru líkurnar á því að rekast á sömu hljómsveitina með tveggja daga millibili – í sitthvoru landinu? Spandau Ballet reyndist vera á mik- illi þeysireið um Evrópu og svo ótrú- lega hittist á að þeir voru akkúrat á sömu leið og ég. Hremmingar mínar í Hollandi urðu til þess að ég hafði misst af fyrsta leik íslenska landsliðsins í Frakklandi og þegar ég hringdi heim á fréttastofu var mér tjáð að búið væri að leysa mig undan verk- efninu og senda annan mann út, Ragnar Örn Pétursson. Það þótti mér ömurlegt. Vissulega hafði ég runnið til á svellinu en um æfinga- leiki var að ræða og enginn stórskaði þótt ég hefði misst af fyrsta leiknum af fjórum. Nú var ég klár í slaginn. Ég fékk samband við Margréti Indriðadóttur fréttastjóra og kvaðst hún ekki hafa vitað af þessu, Kári Jónasson hefði tekið ákvörðunina. Ég féll alveg saman og Margréti þótti þetta ákaflega leitt. Það sem mér sárnaði mest var að enginn skyldi tala við mig áður en ákvörð- unin var tekin, það var ekki eins og þetta væri úrslitaleikur í heims- meistarakeppni. Fannst ég hafa brugðist öllum Ég gat ekki hugsað mér að fara á leikina, rölti þess í stað bara milli öld- urhúsa. Eftir síðasta leikinn höfðu kollegarnir uppi á mér, fulltrúar ann- arra fjölmiðla, Þórarinn Ragnarsson Mogganum, Sigmundur Ó. Steinars- son Tímanum, Gylfi Kristjánsson DV og eflaust einhverjir fleiri. Þá var ég búinn að taka ákvörðun – ég ætlaði aldrei aftur heim til Íslands. Mér fannst ég hafa brugðist öllum og þá aðallega sjálfum mér. Mig langaði ekki að detta í það og gat ekki fyrir- gefið mér það. Strákunum tókst með lagni að telja mig á að koma með sér til Amster- dam en millilenda átti þar á leiðinni heim. Þar væri miklu betra að vera. Þegar til Hollands var komið fóru þeir betur yfir málið, hvort ég vildi nú ekki bara koma með þeim alla leið heim. Það væri ekkert spennandi að vera einn og blankur í Hollandi. Ég gat fallist á það og flaug með þeim til Íslands. Þeir höfðu gert ráðstafanir til að koma mér beint inn á Vog, sáu að ég var mjög ósáttur við að hafa skrikað fótur. Sálarlífið í tætlum á Vogi Mér leið ömurlega á Vogi. Heimur- inn hafði hrunið yfir mig eftir þetta skipbrot og ég átti ekkert að gefa eða þiggja. Sálarlífið var í tætlum. Ég var bara Júdas, hafði svikið allt og alla og aðallega sjálfan mig. Minn gamli félagi Óttar Guð- mundsson var að vinna sem læknir á Vogi á þessum tíma. Hann þekkti vel til mín og freistaði þess að byggja mig upp. Ég man að Óttar skrifaði upp á töflu hvert afrekið af öðru sem honum þótti ég hafa unnið í lífinu, alls einhver 20 atriði muni ég rétt. Ég hefði orðið margfaldur Íslandsmeist- ari í fótbolta, markakóngur, lands- liðsmaður í handbolta og fótbolta, vinsæll í útvarpi og meira að segja fegurðarkóngur á Jaðri, reyndar und- ir kolvitlausum formerkjum. Ég renndi yfir listann en sá ekkert merkilegt. Fannst þetta bara hjóm. Þá sagði Óttar. „Sjáðu til Hemmi, hefði einhver hérna á Vogi náð þess- um árangri í lífinu, þó ekki væri nema broti af þessu, þá yrði hann edrú eftir dvölina hérna!“ Ég opnaði augun aðeins – en lok- aði þeim svo bara aftur. Sjálfsfyrir- litningin var svo mikil. Ég skildi ekki þessa nálgun Óttars á þessum tíma en eftir því sem ég hef með árunum orðið sáttari við sjálfan mig gengur mér betur að skilja hvað hann var að fara. Smám saman náði ég vopnum mínum í meðferðinni og eftir dvölina á Vogi var ég ágætlega stemmdur. Hélt að hann væri hættur að vinna í fjölmiðlum Þegar ég kom úr málamyndameð- ferðinni 1979 var ég látinn skrifa undir plagg á útvarpinu þess efnis að drykki ég aftur í vinnunni yrði mér sagt upp. Mér fannst það svo sem aldrei sanngjarnt, ég var ekki eini maðurinn sem átti í erfiðleikum með áfengi á þeim vinnustað, en lét mig hafa það að skrifa undir. Átti svo sem engra kosta völ. Þetta þýddi að þegar ég kom út af Vogi vorið 1985 þurfti Markús Örn Antonsson, þáverandi útvarpsstjóri, að segja mér upp. Honum var þvert um geð að framfylgja því ákvæði, það hefur hann margsagt mér, en varð eigi að síður að gera það. Ég kunni alltaf ágætlega við Markús Örn án þess þó að ná neinu sérstöku sambandi við hann. Ætli hann hafi ekki verið beittur þrýstingi í þessu máli. Þetta átti að verða öðrum víti til varnaðar. Það hefði verið fáliðað á fréttastof- unni þegar hún var í Landssímahús- inu, að sögn Sigga Sig og Jóns Múla Árnasonar, ef aðrir hefðu skrifað undir samskonar yfirlýsingu og ég. Ég fékk að klára tvo íþróttaþætti á laugardegi um vorið og kveðja hlust- endur. Það var mjög eftirminnilegt, ekki síst fyrir þær sakir að Kristinn R. Ólafsson, sem ég hafði beitt mér fyrir að yrði ráðinn fréttaritari Ríkis- útvarpsins í Madríd, kom með mikla drápu um samskipti okkar. Ótrúleg- ur maður, Kristinn. Ég fór alls ekkert ósáttur út í vorið enda var ég með mitt sæti í Sumar- gleðinni tryggt og hafði nóg að gera um sumarið. Um veturinn var ég í lausamennsku og nýtti tímann til að vinna í mínum málum og styrkja sjálfan mig. Svo tók Sumargleðin aft- ur við sumarið 1986. Ég var ekkert að hugsa um fjölmiðla. Fannst lík- legra en hitt að þeim kafla í lífi mínu væri lokið. Það var öðru nær. Eftir að ég kom heim eftir áfallið í Austurríki þróaði ég með mér enn eina fíknina, kynlífsfíkn. Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á þjónustustöðvum N1 um land allt HELGARBLAÐ Útgáfuhóf / Book launch Laugardaginn 16 nóvember · Kl. 14 -16 Gérard Lemarquis: Reykjavik Cultural Guide The country‘s entire population is contained within a single telephone directory, and every Icelander contains within his or her head a mental list of about 2,000 names that are refreshed each day by opening the newspaper, listening to the radio or meeting acquaintances at the bakery. [...] Those who wish to live without being constantly recognized have to move abroad. hverjir væru vinir mínir og hverjir ekki. Það var töluvert áfall. Margir þeirra vina, sem ég taldi að væru mér nánastir, voru þegar á reyndi alls engir vinir mínir. Voru í besta falli skemmtanafélagar. Þarna gerði ég mér grein fyrir því að ég átti alls ekki marga trúnaðarvini. Þegar allt kemur til alls er þó líklega betra að eiga fáa vini og trausta en marga og ótrygga. Sennilega er heldur ekkert gott að vera of vinmargur, því fleiri sem vinirnir verða þeim mun flóknara verður fyrir þig að koma til móts við þá og öfugt. Þessi uppgötvun hafði þau jákvæðu áhrif að allar götur síðan hef ég valið mína vini sjálfur, fram að þessu völdu þeir mig. Mér hefur orðið tíðrætt í þessari bók um aldavini mína, Berg Guðnason og Halldór Einarsson, sem aldrei hafa brugðist mér, en ég nefni líka í þessu sambandi trúnaðarvini mína Ómar Ragnarsson og Rúnar Júlíusson sem sannarlega hafa reynst mér betri en enginn. Ég kem betur að þeim síðar. Ég gerði upp við fleira en áfengið á Staðarfelli. Ég er fjölfíkill í eðli mínu og fann það til dæmis Hemmi datt í það og var leystur undan verkefnum hjá RÚV. Hermann Gunnarsson ungur að árum við ritvélina. 38 bækur Helgin 15.-17. nóvember 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.