Fréttatíminn - 15.11.2013, Blaðsíða 23
fannst hvað erfiðast að horfa upp á
manninn sinn. „Hann hafði fengið
mikla áverka á brisið og var mjög
óglatt þegar hann var með vírana
í munninum. Mér leið illa að horfa
upp á það og það voru þeir dagar
sem ég var hvað næst því að beygja
af. Síðan voru aðrir dagar þar sem
ég keyrði alsæl frá Landspítal-
anum, eftir að hann var kominn
með teygjur í munninn og talventil
og ég náði að tala við hann. Þá sá
ég glitta í persónuleikann aftur og
stríðnina sem einkennir hann. Ég
hugsaði þá á leiðinni heim hvað
ég væri glöð því ég gat talað við
manninn minn,“ segir Katrín og
hlær.
Sér glasið hálf fullt
Þrátt fyrir erfiðleikana, eða
kannski vegna þeirra, eru hjónin
mun glaðværari en ég hefði ætlað
og líta björtum augum til fram-
tíðar. „Það þýðir ekkert annað. Ég
held að það hjálpi manni helling,“
segir Eyþór. Katrín greindist með
brjóstakrabbamein í mars og
hún segir jákvæðnina sannarlega
hafa hjálpað sér í gegn um tíðina.
„Þegar ég veiktist þá ákvað ég að
horfa á glasið hálf fullt. Þannig er
maður að velja auðveldu leiðina í
gegn um erfiðleikana. Staðan er
sú sama en þegar maður einblínir
á það góða er miklu auðveldara að
vera í stöðunni.“
Katrín segir óvissu vera það
allra erfiðasta. „Þegar maður veit
hvað er í gangi og hver niður-
staðan er getur maður bægt frá sér
kvíðanum og tekist á við stöðuna.
Ég fór á leitarstöð Krabbameins-
félagsins eftir að ég fann ber í
brjóstinu. Ég var það heppin að
þetta sást vel og hefði því ekki get-
að farið fram hjá mér lengi. Ég fór
auðvitað á leitarstöðina til að fá að
vita að þetta væri ekkert alvarlegt.
Þegar ég settist aftur út í bíl var
búið að finna annan hnút, taka sýni
úr honum og stækkuðum eitli, og
ég taldi nokkuð augljóst að þetta
væri ekki bara eitthvað saklaust.
Viku seinna fékk ég staðfest að ég
væri með krabbamein. Þá þurfti
að athuga hvort það væri búið að
breiðast út. Strax þegar ég var
komin með greiningu var ég laus
við óvissuna og gat gert áætlanir
og unnið úr þeim upplýsingum
sem voru komnar.“
Á sama tíma á spítala
Hún segir að Eyþór hafi verið
kletturinn hennar eftir að hún
greindist. „Ég fór í lyfjameðferð
og fékk síðasta skammtinn í júlí.
Í byrjun ágúst fór ég í fleygskurð
og fimm dögum eftir það lendir
hann í slysinu. Innan við viku eftir
slysið kom síðan í ljós að ég þyrfti
að fara í brjóstnám. Við lágum því
um tíma bæði inni á spítala.“ Eyþór
tekur fram til aðgreiningar: „Ekki
samt á sama spítalanum.“ Þau líta
brosandi hvort á annað. Katrín fór
síðan í brjóstnám og brjóstaupp-
byggingu í september. Ég spyr
Eyþór hvernig honum hefði liðið
þegar konan hans var greind með
brjóstakrabbamein. „Þetta tók auð-
vitað á. Ég missti mömmu mína úr
krabbameini. En Katrín varð strax
Kosningaskrifstofa Ármúla 7 » thorbjorghelga.is » thorbjorghelga
Þorbjörg
Helga
1. sæti Reykjavík
Horfðu
fram á
veginn með
Þorbjörgu
Helgu í
fyrsta sæti
Í góðum rekstri eru greiddar niður skuldir
en í slæmum rekstri eykst skuldasöfnun.
Yfirstandandi kjörtímabil hefur reynst Reyk-
víkingum dýrt. Fjölskylda í Reykjavík greiðir
í dag 440 þúsund kr. hærri gjöld árlega en fyrir
fjórum árum. Samt sem áður hafa nettó vaxta-
berandi skuldir aukist um 17 milljarða kr.
Leiðir til lausna:
» Við þurfum að hætta að eyða um efni fram
og stöðva skuldasöfnun.
» Við þurfum að forgangsraða og stöðva
flatan niðurskurð.
» Við þurfum að auka atvinnutækifæri með
því að minnka umfang í rekstri borgarinnar.
» Við þurfum að auka tekjur borgarinnar með
auknu lóðaframboði og aukinni ferðaþjónustu.
Ég vil koma á breytingum í borginni og óska
eftir stuðningi ykkar í fyrsta sætið í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á laugardaginn.
Þegar ég veiktist þá
ákvað ég að horfa
á glasið hálf fullt.
Þannig er maður
að velja auðveldu
leiðina í gegn um
erfiðleikana. Framhald á næstu opnu
viðtal 23 Helgin 15.-17. nóvember 2013