Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 10
tryggingamiðstöðin Hagnaður 2,6 milljarðar
TM á markað fyrir sumarið
tM verður skráð í Kauphöll fyrir sum-
arið, eða á svipuðum tíma
og VÍS, eins og fram kom
í Fréttatímanum síðastlið-
inn föstudag. Með tilkomu
tryggingafélaganna á
hlutabréfamarkaðinn bæt-
ist við fjárfestingamögu-
leiki sem ekki er fyrir á
innlendum hlutabréfa-
markaði. Ársreikningur
Tryggingamiðstöðvar-
innar, TM, var birtur fyrr í
vikunni. Hagnaður ársins
nam 2,6 milljörðum króna
en hagnaður fyrir skatta
var 3 milljarðar og þar af
námu fjárfestingartekjur 2
milljörðum króna. Iðgjalda-
tekjur námu 11,6 milljörð-
um króna sem er aukning
um 5,3% frá síðasta ári.
Eignir félagsins námu 27,4
milljörðum króna í árslok
2012 og eigið fé var 10,2
milljarðar króna.
„Undirliggjandi vátrygg-
ingarekstur skilaði mjög
góðum niðurstöðu,“ segir
Greining Íslandsbanka, „og
er samsetta hlutfall félags-
ins (tjón og kostnaður á
móti iðgjöldum) 88,5% sem
er verulega góður árangur
og þá er ekki einungis
horft á innlend tryggingar-
félög í samanburði. Árið
2011 nam hlutfallið 92,5%
og þótti þá mjög gott. Því
er ljóst að tryggingarleg
rekstrarniðurstaða TM
stendur mjög styrkum
fótum.“ -jh
F lestir stjórnendur telja að-stæður í atvinnulífinu vera slæmar en þeim fjölgar
sem búast við að þær verði betri
eftir sex mánuði. Framboð starfs-
fólks er nægt en helst vottar fyrir
skorti á starfsfólki í samgöngum,
ferðaþjónustu og sérhæfðri þjón-
ustu. Í heild gera stjórnendur ráð
fyrir óbreyttum starfsmannafjölda
næstu sex mánuði en að fjárfest-
ingar á þessu ári verði minni en á
árinu 2012. Verðbólguvæntingar
stjórnenda eru óbreyttar, 4% næstu
12 mánuði og 5% eftir tvö ár og
búist er við áframhaldandi veik-
ingu krónunnar. Þetta eru helstu
niðurstöður könnunar á stöðu og
framtíðarhorfum stærstu fyrir-
tækja, sem gerð var síðari hluta
febrúar og byrjun mars 2013, að
því er fram kemur á síðu Samtaka
atvinnulífsins.
Nú telja 60% aðstæður vera
slæmar en hlutfallið var 68% í
síðustu könnun sem gerð var í lok
síðastliðins árs. Rúmur þriðjungur
telur að þær séu hvorki góðar né
slæmar en 3% að þær séu góðar.
Mat stjórnenda á aðstæðum eftir
sex mánuði er jákvæðara og hefur
breyst til hins betra undanfarna
mánuði. Nú telja 28% að aðstæður
batni en 14% að þær versni, en
langflestir (58%) telja að þær verði
óbreyttar. Hlutfallslega flestir sjá
fram á bata í fjármálaþjónustu en
fæstir í sjávarútvegi og iðnaði.
Heldur meiri bjartsýni gætir meðal
minni fyrirtækja en lítill munur
er á útflutningsfyrirtækjum og
öðrum.
Almennt er ekki skortur á starfs-
fólki að mati stjórnenda. Þó telja
12% þeirra skort vera á starfsfólki
og gætir hans einkum í samgöng-
um og ferðaþjónustu og sérhæfðri
þjónustu. Starfsfólk fyrirtækjanna
í könnuninni telur um 33 þúsund.
Þegar svör stjórnenda eru vegin
saman með starfsmannafjölda
fyrirtækjanna fæst sú niðurstaða
að starfsmannafjöldi þeirra muni
standa í stað á næstu sex mán-
uðum. Þetta er heldur jákvæðari
niðurstaða en í síðustu könnun þar
sem fram komu vísbendingar um
fækkun starfsfólks.
Tæplega helmingur stjórnenda
býst við að hagnaður, sem hlutfall
af veltu, á þessu ári verði svipaður
og á síðasta ári, og jafnmargir að
hann aukist og hann minnki. Horf-
urnar eru bestar í samgöngum og
ferðaþjónustu en lakastar í iðnaði
og sjávarútvegi og þar af leiðandi
mun lakari á landsbyggðinni en á
höfuðborgarsvæðinu. Horfurnar
eru lakari hjá útflutningsfyrirtækj-
um en öðrum.
Flestir stjórnendur búast við
svipaðri eftirspurn á innanlands-
markaði á næstu sex mánuðum og
verið hefur undanfarið. Horfur um
eftirspurn á erlendum mörkuðum
á næstu sex mánuðum eru svip-
aðar og á innanlandsmarkaði.
Fjárfestingar munu dragast
saman á árinu samkvæmt þessari
könnun. 22% stjórnenda sér fram
á auknar fjárfestingar, 30% að þær
minnki og tæpur helmingur býst
við að þær verði svipaðar og árið
2012. Mest aukning fjárfestinga er
áformuð í samgöngum og ferða-
þjónustu og byggingarstarfsemi
og veitum, en horfur eru á miklum
samdrætti fjárfestinga í sjávarút-
vegi og iðnaði.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Minnkandi fjárfest-
ingar og óbreyttur
starfsmannafjöldi
Mat stjórnenda á aðstæðum eftir sex mánuði er jákvæðara og
hefur breyst til hins betra undanfarna mánuði.
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
RV
03/13
BIOTECH pappírinn frá Papernet er frábær nýjung sem kemur í veg fyrir ólykt á salernum,
hindrar stíflur í klósettum, heldur frárennslislögnum hreinum og hraðar niðurbroti í rotþróm.
Vistvænar rekstrarvörur
- fyrir þig og umhverfið
Engin
ólykt
Engar
stíflur í
klósetti
Engar
stíflur í
frárennslislögnum
WHY
CHOOSE?
1
2
3
4
5
ELIMINATES
UNPLEASANT ODOURS
Rooms don't smell.
No mess.
Higher quality service.
AVOIDS
BLOCKAGES
No mechanical operation.
Makes routine cleaning easier.
Toilets are more hygienic.
ELIMINATES
PURGING OPERATIONS
Keeps pipes and septic tanks clean.
Savings on maintenance costs.
SAFEGUARDS
THE ENVIRONMENT
Cleaner waste water.
Completely biodegradable.
DERMATOLOGICALLY
TESTED
Does not irritate the skin.
Safe to use on intimate
and mucous parts of the body.
Absolutely safe.
D
E
R
M
A
TE
ST • DERMA TEST D
E
R
M
A TEST • DERMA
TE
ST
DERMA
TEST
Papernet uses
BATP technology,
ABSOLUTELY EXCLUSIVE
IN EUROPE
THE PRODUCT
RANGE
Interfold
Roll
n° n° cm cm n° n°/cm material
Superior Handtowel V Folded Flushy407572 White 2 Wave 210 22 21 210x15 20x2/260 Virgin pulp
n° n° cm cm n° n°/cm material
Superior Interfold Toilet Paper407571 White 2 Wave 224 11 21 224x40 20x2/260 Virgin pulp
Superior Toilet Paper Roll407576 White 2 Honey Comb 28,8 250 11,5 9,6 10,3 4,6 8x8 33/227 Recycled
n° m n° cm cm cm cm n° n°/cm material
Superior Toilet Paper Roll407575 White 2 Micro 19,8 180 11 9,5 10,2 4,5 24x4 12x2/258 Virgin pulp
n° m n° cm cm cm cm n° n°/cm material
Superior Mini Jumbo Toilet Paper 407574 White 2 Micro 140 459 30,5 9,5 19,5 6 12x1 48/243 Virgin pulp
Superior Maxi Jumbo Toilet Paper 407573 White 2 Micro 247,1 810 30,5 9,5 27 6 6x1 48/243 Virgin pulp
Superior Toilet Paper Roll407570 White 2 Micro 27,5 250 11 9,5 12,4 4,5 8x6 14x2/258 Virgin pulp
n° m n° cm cm cm cm n° n°/cm material
Superior Toilet Paper Single Wrap407569 White 2 Micro 18,15 165 11 9,5 10 4,5 12x8 12x2/258 Virgin pulp
n° m n° cm cm cm cm n° n°/cm material
n° m n° cm cm cm cm n° n°/cm material
Superior Mini Jumbo Toilet Paper407568 White 2 Micro 150 405 37 9,5 19,5 7,6 12x1 24x2/258 Virgin pulp
n° m n° cm cm cm cm n° n°/cm material
Superior Maxi Jumbo Toilet Paper407567 White 2 Micro 300 811 37 9,5 27 7,6 6x1 24x2/258 Virgin pulp
Án þess að
nota BIOTECH
Eftir 10 daga
með BIOTECH
Eftir 30 daga
með BIOTECH
PÁSKATILBOÐ
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Opið laugardaga til kl.16
FULLT VERÐ
109.900
99.900
www.grillbudin.is
13,2
kw/h
ÞETTA ER AÐEINS BROT
AF ÞEIM VÖRUM SEM
ERU Á TILBOÐI
FULLT VERÐ
59.900
49.900
12,8
kw/h
FULLT VERÐ
54.900
39.900
Hannað fyrir
Ísland
10 ára reynsla
á Íslandi
Tryggingarleg
rekstrarniðurstaða
TM stendur mjög
styrkum fótum.
FramtíðarHorFur stjórnendur 400
stærstu Fyrirtækjanna
Nú telja 60% stjórnenda stærstu fyrirtækjanna aðstæður vera slæmar en hlutfallið
var 68% í síðustu könnun sem gerð var í lok síðastliðins árs.
10 viðskipti Helgin 22.-24. mars 2013