Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.03.2013, Qupperneq 16

Fréttatíminn - 22.03.2013, Qupperneq 16
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. V Verðtrygging lána, hugsanlegt afnám henn-ar og almenn skuldaniðurfelling verða án efa meðal helstu mála kosningabaráttunnar sem fram undan er fyrir komandi þingkosn-ingar. Stefnumörkun stjórnmálaflokkanna liggur fyrir. Hjá sumum er langt gengið í kosningaloforðum, að ekki sé sagt glanna- lega – vaktar upp væntingar sem erfitt verður að standa við og lítt hugsað til kostn- aðar sem lenda mun á skatt- greiðendum og eigendum lífeyrisréttinda. Verðtrygg- ing er fráleitt gallalaus en hún kom til sem neyðarráð- stöfun gegn verðbólgubruna spari- og lánsfjár. Verðbólgan er vandinn, verðtryggingin er afleiðingin. Agaleysi hér- lendis veldur meiri verðbólgu en í viðmiðunarríkjum okkar. Verðbólga á Íslandi er háð sömu efnahagslegu lögmálum og annars staðar. Á þessu vekur Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, athygli um leið og hann bendir á að í löndunum í kringum okkur sé meiri samfélagsagi, agi í hagstjórn, ríkisfjár- málum og á vinnumarkaði. Þar gefi hvorki stjórnvöld né aðilar vinnumarkaðar sig ósk- hyggju á vald og víki kerfisbundið frá hinu skynsamlega. Vegna verðbólgu minnkar árangur í atvinnulífinu, óvissa leiðir til verri ákvarðana, kaupmáttur og lífskjör verða verri en ella. Heimilin gjalda verðbólgunn- ar. Fólk veit ekki hvar það stendur og áætl- anir bregðast. Vilhjálmur varar við því að reynt sé að kynna fólki að afnám verðtryggingar lána sé töfralausn við vanda sem verðbólgan veldur: „Stundum er fólki talin trú um að hægt sé að afnema verðtrygginguna en halda vöxtunum sem eru á verðtryggðu lánunum. Það er blekking,“ segir hann og bætir við: „Besta leiðin til að lækka fjár- magnskostnað er lág verðbólga.“ Vextir munu elta verðbólguna og verð- tryggð lán eru eitt lánsform af mörgum. „Það að mörg heimili rísa ekki undir skuld- um hefur ekkert með verðtrygginguna sem slíka að gera,“ segir framkvæmdastjórinn. „Í fjölmörgum löndum þar sem mikil vand- ræði eru vegna skuldugra heimila er engin verðtrygging en samt missir fólk húsin sín. Vandinn er almennt þríþættur. Fasteignir voru keyptar á alltof háu verði sem síðan lækkaði verulega, fólk skuldsetti sig of mikið og tekjur lækkuðu m.a. vegna minni vinnu eða atvinnuleysis.“ Leiðin út úr vandanum, og það snýr að starfi stjórn málamanna, er að skapa atvinnulífinu skilyrði svo fleiri og betri störf verði til svo tryggja megi tekjur heimilanna. Til viðbótar þarf að beita skattalegum aðgerðum og loks að lækka skuldir eða fella niður hjá þeim verst settu, þar sem kröfur er hvort sem er tapaðar – og gera fólki þannig kleift að byrja upp á nýtt. Dr. Ásgeir Jónsson, lektor við Háskóla Íslands, talar á svipuðum nótum þegar hann greinir umræðuna um afnám verð- tryggingar hér á landi. Hann bendir raunar á að frá árinu 2008 séu flest lán sem veitt hafa verið óverðtryggð. Við fyrstu sýn ætti afnám verðtryggingar og að snúa verð- tryggðum lánum á breytilega nafnvexti því ekki að vera tiltökumál – en tvennt stórt hangi á spýtunni. Í fyrsta lagi muni lánaskiptin, vegna stöðu stærsta lánveit- andans, Íbúða lánasjóðs, valda gríðarlegum kostnaði fyrir ríkissjóð. Í annan stað séu íslensk hús næðis lán ekki aðeins verðtryggð heldur einnig með jafngreiðsluskilmálum til allt að 40 ára. Greiðslubyrðin er því færð langt fram í tímann enda hækkar höfuðstóll lánsins að nafnvirði vegna verðbóta fyrri hluta lánstímans. Þessi fasteignafjármögn- un jafnar greiðslubyrði til mjög langs tíma á móti því að greiðslubyrði óverðtryggðra lána er mun hærri enda er höfuðstóll þeirra greiddur hraðar niður. Ásgeir bendir á að stór hluti íslenskra heimila ráði ekki við þá hækkun á greiðslu- byrði sem nafnvextir bæru með sér. Málið snúist því í raun um afskriftir, niðurfærslu útistandandi lána fremur en breytt lána- form framtíðar. „Hvað sem fólki finnst um réttmæti slíkrar niðurfærslu er ljóst að kostnaðurinn vegna hennar fellur á skatt- greiðendur,“ segir hann um leið og hann bendir á að þar sé um stórar upphæðir að ræða, kostnaðurinn við að færa höfuðstól verðtryggðra lána aftur til ársins 2008 gæti verið 350-400 milljarðar króna. Af þessum lánum eru 57 prósent veitt af Íbúðalána- sjóði, með ábyrgð ríkisins, en 15 prósent eru frá lífeyrissjóðum. „Almenn niður- færsla verðtryggðra lána er því í raun bein tekjufærsla frá þeim skattgreiðendum og lífeyrisþegum sem ekki hafa náð að skuld- setja sig nægilega til þess að hljóta slíka leiðréttingu.“ Þessi kostnaður hverfur ekki með hókus- pókus pólitík heldur greiðist með hærri sköttum og/eða lægri lífeyri. Glannaleg hókus-pókus loforð Ávísun á hærri skatta og lægri lífeyri Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Sjónhverfingamennirnir Verðmyndum hlutabréfanna var hand- stýrt af ákærðu Sigurjóni, Ívari, Júlíusi og Sindra og fjárfestar, kröfuhafar, stjórnvöld og samfélagið í heild blekkt. Sérstakur saksóknari gaf út ákæru á hendur fyrrverandi yfirmönnum í Lands- bankanum. Nú? Þá er þetta allt í lagi Þetta var í gangi áður en ég byrjaði í bankanum. Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi forstjóri Landsbankans, varð fyrir miklum vonbrigðum með ákæru sérstaks saksóknara á hendur honum fyrir markaðsmisnotkun. Nú? Þá er þetta allt í lagi Ég ætla ekki að svara því. Ég er löngu hætt í pólitík. Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra, hefur ekkert að segja um áhrifin sem Kárahnjúkavirkjun hafði á lífríkið í Lagarfljóti. Pottþétt miðað við höfðatölu Við erum sennilega að fara að slá met í vanhæfni og lítill sómi af þessu þingi okkar sem ég batt svo miklar vonir til að yrði þingið sem endurvann traust og trúnað þjóðar. Birgitta Jónsdóttir, þingkona Hreyfingarinnar, er reið yfir meðferðinni sem stjórnarskrárfrumvarpið fær á þingi. Bakþankar og bömmerar Í eðlilegu árferði hefði ég póstað Bakþönkunum mínum núna. Mér hefur hins vegar verið meinað að skrifa fleiri Bakþanka fyrir Fréttablaðið. Kolbeinn Proppé, blaðamaður á Fréttablaðinu, upplýsti í netheimum að honum hefði verið vikið til hliðar í pistlaskrifum á blaðinu. Óstöðugir ærðust og stóra bakþankamálið hélt áfram að vinda upp á sig. Hjúkk, er okkur þá borgið? Ísland verður aldrei aftur upp- eldisstaður fyrir milljarða- mæringa. Athafnamaðurinn Karl Wernersson færði þjóðinni góðar fréttir í viðtali við Bloomberg. Kommar enn á kreiki Mín upplifun er að þessi femínismi sem hefur orðið ofan á í íslensku samfélagi hafi hvorki með kvenfrelsi né jafnrétti að gera, heldur sé bara venju- legur gamall vinstri sósíalistaboðskapur. Það er bara mín upplifun, ég hef skrifað um þetta áður. Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður, tók þátt í málfundi um femínsima hjá Heimdalli. Honum leiddist ekki en heyrði fátt nýtt. Femínistar eru frá Venus, lögmenn frá Mars Ég sé ekki að við getum fundið sameiginlegan umræðugrundvöll þegar kemur að kvenfrelsis- málum. Femínistinn og baráttukonan ódeiga, Hildur Lilliendahl, mætti Brynjari Níelssyni hjá Heimdellingum. Henni fannst lögmaðurinn illa undirbúinn og vita fátt og sá ekki fram á að þau finndu samræðugrundvöll.  Vikan sem Var 16 viðhorf Helgin 22.-24. mars 2013 VERKSÝN Námskeið í undirbúningi viðhaldsframkvæmda fyrir húsfélög Verksýn ehf. býður forsvarsmönnum húsfélaga til námskeiðs í undirbúningi viðhaldsframkvæmda. Á námskeiðinu, sem tekur eina kvöldstund, verður farið yr ferli viðhaldsframkvæmda á ölbýlishúsum. Námskeið verða haldin á þriðjudagskvöldum í mars og apríl, í húsakynnum Verksýnar ehf. að Síðumúla 1 í Reykjavík. Námskeiðin eru opin öllum stjórnarmönnum húsfélaga, þeim og húsfélögunum að kostnaðarlausu. Áhugasamir geta skráð sig á námskeið með tölvupósti á netfangið verksyn@verksyn.is eða í síma 517-6300. Verksýn ehf. er ráðgjafarfyrirtæki sem sérhær sig í viðhaldi og endurnýjun fasteigna. Fyrirtækið hefur sinnt ölda verkefna fyrir einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög. Hjá Verksýn starfa sérfræðingar með áratuga reynslu í mannvirkjagerð og viðhaldi fasteigna. Verksýn ehf l Síðumúla 1 l 108 Reykjavík l www.verksyn.is Glæsilegt smurbrauð fyrir fundinn í fyrirtækinu eða veisluna heima. MATARSNEIÐAR, SNITTUR & SAMLOKUR www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is S. 599 6660 FYRSTA SVANSVOTTAÐA VEITINGAHÚSIÐ Á ÍSLANDI Fermingargjöfin fæst í Líflandi Lífland hefur að bjóða frábærar gjafir fyrir æsku landsins. Vandaðar og notadrjúgar flíkur með klassísku sniði. Fatnaður fyrir unga hestamenn, beisli, hnakkar og aukahlutir í úrvali. Lífland verslun Akureyri | Lónsbakka 601 Akureyri | sími 540 1150 Lífland verslun Reykjavík | Lynghálsi 3 110 Reykjavík | sími 540 1125 www.lifland.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.