Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.03.2013, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 22.03.2013, Blaðsíða 44
Egg – samt ekki páskaegg Þ Það hvein í tálknunum á samstarfskonu minni síðastliðinn föstudag. Hún hafði fyrr um morguninn tilkynnt okkur, glöð í bragði, að hún ætlaði að halda partí heima hjá sér það sama kvöld. Væntanlegar voru um tuttugu vinkonur sem ætluðu að gera sér glaðan dag – eða öllu heldur kvöld og nótt. Ég leyfði mér, í mesta sakleysi, að spyrja hvað hún ætlaði sér að gera við eiginmann sinn á meðan á þessu stæði því vænta mætti ærlegs stuðs þegar tuttugu kátar konur hittust. „Það er ekkert mál, ég geymi hann bara á neðri hæðinni fyrir framan sjónvarpið,“ sagði samstarfskonan og vorkenndi karli sínum þetta ekki. Það er við aðstæður sem þessar sem tveggja hæða hús hentar einkar vel. Það var hins vegar ekki langt liðið á daginn þegar tónninn í samstarfskonunni breyttist. Hún hafði sér fyrir séð útvíkk- aðan saumaklúbb þar sem vinkonurnar fengju sér aðeins í tána eða kannski rúm- lega það, svona í miðjan kálfa. Svo yrði spjallað og hlegið – einkum hlegið. Svo saklaust var partíið hins vegar ekki. Að því komst samstarfskonan þegar hún varð þess vör að samkvæmið, sem átti að halda í hennar eigin húsi, hafði verið auglýst á Facebook sem heimakynning á kynlífs- tækjum – og það án þess að hafa samband við húsráðanda. Þessi prúða og léttlynda samstarfskona hreinlega trylltist. Þótt hún lokaði að sér á meðan hún hellti sér yfir þá eða þær sem að kynningunni ætluðu að standa dugði ekki einfaldur hurðarhleri í dyragatinu til hljóðeinangr- unar. Hún lét viðkomandi heyra það og vitaskuld endaði samtalið með því að kyn- lífstækjasýningin var skotin í kaf. Sam- starfskonan er húsfreyja á sínu heimili og ræður hvort þar skal sýna tól ástarlífsins. Það tók hún ekki í mál, að sér forspurðri, auk þess sem hún benti á að varla gæti hún boðið karlanganum upp á þetta og enn síður þremur unglingum á heimilinu. Vinkonurnar voru engu að síður velkomn- ar og partíið var haldið eftir sem áður, bara án apparatanna og píku skrækjanna sem fylgja víst vörukynningum sem þess- um, einkum ef áfengisáhrifin eru komin áleiðis upp í kálfann. Heimakynningar á kynlífstækj- um ku vera vinsælar þótt betra sé að hús- ráðendur séu með í ráðum eða hafi helst frumkvæði að þeim. Þær hafa alveg slegið út ryksugu- og pottakynningar en Tupper- ware heldur víst stöðu sinni. Sama dag og samstarfskona mín gerði kynlífskynn- inguna afturreka úr sínum húsum rakst ég á viðtal við 23 ára athafnakonu í ekki ómerkari fjölmiðli en Viðskiptablaðinu. Þrátt fyrir ungan aldur er konan komin vel á veg í viðskiptalífinu, rekur tvö fyrir- tæki, annars vegar samskiptafyrirtæki sem hjálpar fólki að finna ástina og hins vegar fyrirtæki sem selur kynlífstæki. Kynlífstækjafyrirtæki konunnar er hægt að heimsækja og þar má velja gleðiganda við hæfi en salan fer ekki síst fram í áður- nefndum heimakynningum, sem fyrir- tækið býður jafnt á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Hin unga framkvæmda- kona segir að gríðarlega mikil sala sé í kynlífstækjunum enda sé hún með sjö til tíu kynningar á viku. „Við erum aðallega með kynningar fyrir saumaklúbba, árshá- tíðir, gæsapartí, afmæli og skilnaðarpartí. Þetta eru í flestum tilvikum konur en ein- staka sinnum eru karlapartí þótt það heyri til undantekninga,“ segir athafnakonan í viðtali við blaðið. Samkvæmin sem þarna eru nefnd eru öll þekkt, afmæli, sauma- klúbbar og árshátíðir en þetta er í fyrsta sinn sem ég rek augun í þá hátíð sem þarna eru kölluð skilnaðarpartí. Fyrir- fram hefði maður haldið að skilnaður væri ekkert sérstakt fagnaðarefni en það kann að vera misskilningur. Ef til vill eru sumir orðnir svo langþreyttir á sambandi að ástæða þykir til að slá verulega í klárinn þegar því lýkur. Í kynningu kynlífsfyrirtækisins segir um heimakynningarnar: „Ertu að fara halda partý, gæsun, steggjun eða bara kósýkvöld með nokkrum velvöldum? Við komum til þín og höldum kynn- ingu á öllum okkar vörum, við mætum með lagerinn og posann svo hægt sé að versla á staðnum kynningin tekur rúman klukkutíma. Mjög skemmtilegt og mikið um hlátur.“ Ekki er að efa það að mikið er um hlátur á þessum sérstöku skemmti- og sölukynn- ingum. Af myndum að dæma á síðu fyrir- tækisins eru egg einkum til sölu og það engin páskaegg. Sum eru að sönnu eins og saklaus hænuegg að sjá en önnur eru framúrstefnulegri, nær spæleggi, „ein- staklega falleg hönnun, fellur vel í lófa sem einfaldar forleikinn og gerir hann seiðandi og spennandi,“ eins og segir í kynningu. Auk þess er boðið upp á örv- andi dropa og „einstaklega skemmti- legt paraleikfang. Pistilskrifarinn játar fúslega, miðað við mynd af því apparati, að átta sig öngvan veginn á því hvernig það að gagnast pari í ástarleik en það skrifast aðeins á fákunnáttu þess sama manns sem ekki hefur náð meiri frama í heimakynningu en að sitja eina pottakynningu. Munurinn á pottakynningunni og kynlífstækjakynningunni er hins vegar sá að hver pottur kostaði fleiri hundruð og fimmtíu þúsund, ef rétt er munað, en kyn- lífseggin og droparnir ekki nema 1500 til 19.900 krónur. Það er því líklegt að talsvert reyni á posana á kynningarfundunum, þrátt fyrir kreppu og lítinn hagvöxt. Og engu er víst logið um það sem segir á síðu fyrir- tækisins, og fyrr greinir, að mikið sé um hlátur – ef ekki skræki. Kannski missti samstarfskona mín af miklu. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i Auglýsing um sveinspróf Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í maí og júní ef næg þátttaka fæst: Í matvælagreinum í maí. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Í byggingagreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Í prentgreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Í bílgreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Í hönnunar- og handverksgreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Í snyrtigreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. maí. Í málmiðngreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur til 1. maí. Í vélvirkjun í september. Umsóknarfrestur til 1. júní. Í ljósmyndun í september – október. Umsóknarfrestur til 1. júlí. Dagsetningar prófanna verða birtar á heimasíðu okkar um leið og þær liggja fyrir. Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyrlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2013. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veang: www.idan.is og á skrifstofunni. IÐAN - fræðslusetur, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401, netfang: idan@idan.is Vegna aukinna umsvifa leitum við að starfsfólki á auglýsingadeild Fréttatímans. Við bjóðum spennandi starfsumhverfi á skemmtilegum vinnustað. Ef þú ert með metnað og brennandi áhuga á fjölmiðlun þá sendu póst á valdimar@frettatiminn.is Upplýsingar ekki veittar í síma. Starfsfólk á auglýsingadeild Fyrirtæki í Reykjavík sem starfar á sviði inn- og útutnings óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa. Viðkomandi þarf að hafa menntun sem nýtist í star (helst á sviði viðskipta), hafa reynslu af sambærilegum störfum, vera skipulagður, stundvís og hafa gott vald á ensku í rituðu og mæltu máli. Þá er það skilyrði að viðkomandi ha þekkingu og/eða reynslu á handgerðum persneskum teppum. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 843-8080 Alfacom General Trading ehf. 44 viðhorf Helgin 22.-24. mars 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.