Fréttatíminn - 22.03.2013, Blaðsíða 24
– fyrst og fre
mst
ódýr!
589 kr.pk.
Verð áður 1185 kr. pk.
Krónuís, súkkul. og vanillu,
5 l
Meðan birgðir endast!
FrábærT
Verð! 50%
afsláttur
v
5
lítrar
Kattelskir
leikhússgestir
kjósa VG
Sé eitthvað að marka allar þær skoðanakannanir sem hell-
ast yfir landslýð þessi dægrin mun þingheimur taka miklum
breytingum að loknum alþingiskosningunum í vor. Stuðnings-
fólk eins stjórnmálaflokks á það oft til að býsnast yfir því
hvernig nokkrum detti í hug að greiða öðrum en sínum flokki
atkvæði og klórar sér í hausnum yfir grunnhyggni náungans.
Vitaskuld hafa ótal þættir áhrif á hvernig fólk ráðstafar atkvæði
sínu; brennandi hugsjónir, gamall vani, áhrif frá foreldrum,
efnahagur og staða hvers og eins í lífinu almennt.
N
ý neyslu- og lífsstílskönnun
Capacent Gallup bendir þó til
þess að óháð öllu þessu bindi
ýmsir þættir í fari fólks það
áhugaverðum böndum sem
gefa vísbendingar um hvar það
stendur í pólitíkinni. Fráleitt er að alhæfa nokkuð
út frá þessu en niðurstöðurnar eru bráðskemmti-
legar þegar þær eru skoðaðar í pólitísku sam-
hengi. Hefði til dæmis einhverjum dottið til hug-
ar að fólk sem fer sjaldan á bókasafn er líklegra
en aðrir til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn?
Val fólks á gæludýrum getur stundum gefið
ákveðna vísbendingu um viðhorf eigandans til
lífsins og tilverunnar. Dæmigerðar staðalímyndir
í þessu sambandi eru til dæmis Vítisengillinn
sem tekur rottweiler-hundinn sinn með sér í inn-
heimtuleiðangra og hinn mátulega einfaldi en
lífsglaði metró-hnakki sem er í svo öruggur með
kynhneigð sína að hann skammast sín ekkert
fyrir að spóka sig með litla, geðstirða og geltandi
chihuahua-hundinn sinn.
Capacent-könnunin gengur ekki svo langt að
greina kjósendur eftir hundategundum en athygli
vekur að hundaeigendur eru líklegri til að kjósa
Framsóknarflokkinn, kjósa ekki eða skila auðu.
Þeir sem eiga ekki hund eru aftur á móti líklegir
til þess að kjósa Samfylkinguna.
Hér væri fróðlegt að kafa dýpra og fá að vita
hvort þarna séu eigendur smalahunda í meiri-
hluta sem gæti skýrt fylgisspekt þeirra við Fram-
sókn. Þá hefði ef til vill mátt ætla að sjálfstæðis-
menn væru upp til hópa hundaeigendur í ljósi
þess að tveir helstu páfar flokksins á síðustu
áratugum, þeir Albert Guðmundsson og Davíð
Oddsson, áttu tvo ef þekktustu hundum sam-
tímasögunnar, tíkina Lucy og hinn trygga Tanna.
Allt í hund og kött
Hundar og kettir eiga sjaldn-
ast samleið og mögulega gilda
sömu lögmál um eigendurna. Í
það minnsta í pólitísku samhengi
þar sem þeir sem eiga ketti eru mun
líklegri til að kjósa Samfylkinguna og
Vinstri-græn en aðra flokka og síst
þykir kattafólkið líklegt til þess að
greiða Framsóknarflokknum atkvæði
sitt. Þessi niðurstaða er síðan mjög
eðlileg í ljósi þess að kettir hafa haft
mikil áhrif á stjórnarsamband Sam-
fylkingar og VG en eins og kunn-
ugt er var Jóhanna Sigurðardóttir
kófsveitt við að smala köttum fram
eftir kjörtímabilinu sem nú er að
ljúka. Ríkisstjórn kattafólksins
deilir því þó ekki með kisunum að
eiga níu líf og það eina sem hún á
er að fjara út.
Annað sem bindur stuðningsfólk
stjórnarflokkanna saman er að þeir
sem nota gleraugu eru drjúgur hluti
af kjósendum flokkanna. Ekki er ólík-
legt að þetta fólk sé með hin þekktu
kynjagleraugu á nefinu en þá hlýtur
sú spurning að vakna hvort kjósendur
annarra flokka greiði atkvæði blind-
andi, hafi fulla sjón, séu búnir að fara í
laseraðgerð eða noti bara linsur?
Menningarmunur
Menningarneysla virðist einnig aðgreina
stuðningsfólk ólíkra stjórnmálaflokka
samkvæmt könnuninni og þannig er
fólk líklegra til þess að kjósa Vinstri-
græn eftir því sem það fer oftar í
leikhús. Tíðir leikhúsgestir eru
síðan ólíklegastir til þess að
kjósa Framsóknarflokkinn.
Kjósendur Sjálfstæðisflokksins
fara sjaldan á bókasafn en kjós-
endur annarra flokka en þetta
þarf vitaskuld ekki að þýða að
meðal sjálfstæðismaðurinn
sé svo menningarsnauður að
hann opni aldrei bók. Líklegra hlýtur
Ríkisstjórn
kattafólksins
deilir því þó
ekki með
kisunum að
eiga níu líf
en það eina
sem hún á
er að fjara
út.
24 úttekt Helgin 22.-24. mars 2013