Fréttatíminn - 22.03.2013, Side 12
Kynferðisbrotamenn ekki
sjálfir fórnarlömb sem börn
Þeir sem brjóta
kynferðislega gegn
börnum hafa í
fæstum tilfellum
sjálfir orðið fyrir
kynferðisbroti í
bernsku ólíkt því
sem haldið hefur
verið fram. Þetta
kemur fram í nýrri
rannsókn á hæsta-
réttardómum frá
1920. Í langflestum
tilvikum eru það
ókunnugir karl-
menn sem brjóta
gegn drengjum.
Stúlkurnar þekki
hins vegar þann sem
brýtur gegn þeim.
A
far sjaldgæft er að
gerendur kynferðis-
brota gegn börnum
hafi sjálfir orðið
fyrir kynferðisbroti
í bernsku, samkvæmt nýrri rann-
sókn Svölu Ísfeld Ólafsdóttur,
dósents við lagadeild Háskól-
ans í Reykjavík og Ásrúnar Evu
Harðardóttur lögfræðings. Voru
allir dómar Hæstaréttar, sem fallið
hafa í kynferðisbrotamálum gegn
börnum, rannsakaðir frá stofnun
réttarins árið 1920 til dagsins í dag.
Niðurstöðurnar verða kynntar á
málþingi um kynferðisbrot gegn
drengjum sem haldið verður í HR í
dag, föstudag, klukkan 13.
Þar kemur einnig í ljós að í lang-
flestum tilvikum eru það ókunn-
ugir karlmenn sem brjóta gegn
drengjum. Stúlkurnar þekki hins
vegar þann sem brýtur gegn þeim.
Fréttatíminn sagði í síðustu viku
frá rannsókn á kynferðisbrotadóm-
um gegn börnum og fullorðnum í
héraðsdómum undanfarin tíu ár.
Rannsókn Svölu nær því yfir hærra
dómstig og lengra tímabil.
166 gerendur en aðeins fjórir
þeirra fórnarlömb
Kynferðisbrotadómarnir á tíma-
bilinu voru 173 talsins og enduðu
allir nema sextán með sakfellingu.
Í 16 dómum var ákærði sýknaður.
Gerendurnir voru 166 og höfðu
einungis fjórir þeirra orðið fyrir
kynferðisbroti í bernsku. „Þetta er
þvert á það sem reglulega er haldið
fram, að eitt megineinkenni þeirra
sem fremja kynferðisbrot gegn
börnum sé að þeir hafi sjálfir verið
þolendur slíks ofbeldis í æsku,“
segir Svala.
Svala segir athyglivert að í dómi
frá 1994 komi sú fullyrðing fram í
skýrslu sálfræðings, sem fenginn
hafði verið til að gera sálfræðipróf
á ákærða í ljósi þess að hann hafði
verið misnotaður 14 ára gamall af
Steingrími Njálssyni, að „rann-
sóknir á kynferðisbrotamönnum
sýni, að meiri hluti þeirra hafi orðið
fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku“.
Rannsókn á dómum Hæstaréttar
styður ekki þessa fullyrðingu.
Allir gerendurnir eru karlkyns
og nánast undantekningalaust einir
að verki. „Einungis í 5 málum voru
gerendur fleiri en einn. Flestir voru
þeir 4 saman í dómi frá árinu 1992.
Í því máli var maður sakfelldur
fyrir að nauðga 14 ára stúlku og
aðrir þrír fyrir hlutdeild í því broti
með því meðal annars að halda
stúlkunni á meðan og handleika
kynfæri sín meðan á þessu stóð,“
segir Svala.
Hún bendir á að aldursdreifing
meðal gerenda sé mikil, sá yngsti
er 15 ára, en við það aldursmark
miðast sakhæfi fólks og sá elsti
er á tíræðisaldri, en hann hafði
misnotað barnabarn sitt. Meðal-
aldur gerenda er 36 ár, en flestir
gerendur eru á aldursbilinu 26-30
ára. „Til samanburðar má nefna að
meðalaldur gerenda er brjóta gegn
drengjum er örlítið hærri eða 40 ár
Þvottavél
WM 14S464DN
Vindur upp í 1400 sn./mín.
Mjög hljóðlát.
Tækifærisverð:
163.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 199.900 kr.)
Kolalaus mótor
Orkuflokkur
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Megineinkenni þeirra sem brjóta gegn börnum
Hver er sá veruleiki sem dómar Hæstaréttar spegla? Eftirfarandi megineinkenni
mátti finna hjá þeim sem hlotið hafa dóm í Hæstarétti fyrir kynferðisbrot gegn barni:
• Karlmaður á aldrinum 26-30 ára.
• Í hjónabandi eða sambúð
• Í launaðri vinnu
• Með hreinan sakaferil
• Líkur á því að hann hafi verið undir áfengisáhrifum þegar hann framdi brotið.
• Þolandinn er stúlka á aldrinum 7-12 ára sem gerandinn þekkir.
og algengasti aldur þar er 44 ár,“
bendir Svala á. Fjórtán gerendur,
eða rúm 8 prósent, voru enn börn
er þeir brutu af sér, 15, 16 eða 17
ára.
Ókunnugir karlar brjóta á
drengjum
Niðurstöður rannsóknarinnar
sýndu að gerandi og þolandi þekkj-
ast í meirihluta tilvika eða í um 70%
þeirra og í um fjórðungi málanna er
gerandi innan fjölskyldu barnsins.
„Í þeim hópi voru feður og stjúp-
feður oftast gerendur eða samtals
í tilfellum 13% þolenda,“ bendir
Svala á. „Til samanburðar má nefna
að þegar drengir voru skoðaðir
sérstaklega var aðeins í einu til-
viki um ættingja að ræða, en það
var móðurbróðir geranda. Þar eru
ókunnugir gerendur í meirihluta.“
Í sex dómum kynntust gerandi
og þolandi í gegnum internetið,
en þolendurnir voru 11 stúlkur á
aldrinum 12-17 ára. Sá sem hafði
brotið gegn flestum börnum hafði
brotið gegn 13 börnum, þar af tólf
drengjum.
Upplýsingar var að finna um
sakaferil allra gerendanna nema
átta. Rúmlega helmingur þeirra
hafði hreint sakavottorð. Af þeim
gerendum sem áttu sakaferil að
baki höfðu 16% eingöngu gengist
undir greiðslu sektar. Af þeim 48
gerendum sem áður höfðu verið
dæmdir til refsingar höfðu aðeins
níu verið dæmdir fyrir kynferðis-
Drengir glíma við reiði í
kjölfar kynferðisbrots,
auk þess sem margir
eru hræddir um að
félagar þeirra komist
að misnotkuninni, sem
tengist skömminni og
sektarkenndinni sem
heldur þeim í heljar-
greipum, auk hræðsl-
unnar við það að vera
stimplaður „hommi“.
Ljósmynd/Getty
Framhald á næstu opnu
12 úttekt Helgin 22.-24. mars 2013