Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 20
Um Sheryl Sandberg og kynjahallann
Stúlkur eru ekki „frekar“ heldur sýna leiðtogahæfileika
Í vikunni horfði ég á viðtal í 60 Minutes við eina af áhrifamestu konum í viðskiptaheiminum, Sheryl Sand
berg, næstráðanda í Facebook veldinu
og fyrrum stjórnanda hjá Google. Hún
sendi á dögunum frá sér bókina Lean
In þar sem hún gefur konum ráð um
hvernig þær geti brotið sér leið
í gegnum glerþakið í hinum
karllæga viðskiptaheimi þar
sem einungis 21 kona á móti 479
körlum stýra 500 stærstu fyrir
tækjum Bandaríkjanna. Hlutfall
ið á Íslandi er ekki mikið skárra.
Samkvæmt nýjasta tekjublaði
Frjálsrar verslunar eru tíu kon
ur á lista yfir 100 hæstlaunuðu
framkvæmdastjóra landsins og
þar af eru einungis tvær í 30
efstu sætunum.
Sheryl er ein fárra yfirlýstra
femínista í valdastöðu í viðskiptaheim
inum. Megininntak bókar hennar er
hvatning til kvenna um að gera það
sem í þeirra valdi stendur til að gera
sig sýnilegri í viðskiptaheiminum. Þær
þurfi sjálfar að leggja sig fram við að
grípa þau tækifæri sem bjóðast, líkt og
karlarnir gera, þær þurfi að „halla sér
fram“ (e. Lean In) í stað þess að halla
sér aftur í stólunum við stjórnarborð
fyrirtækisins og þaðan er titill bókar
innar kominn.
Hún tekur fram að það sé alls ekki á
ábyrgð kvenna einna að leiðrétta kynja
halla samfélagsins, æði margt sé ekki á
þeirra könnu, en þær verði að gera allt
sem í þeirra valdi stendur til þess að
auka hlut kvenna í stjórnunarstöðum.
Eitt af því áhugaverðasta sem fram
kom hjá Sandberg í viðtalinu var lýsing
hennar á því hvernig konur og karlar
bregðast á ólíkan hátt við hrósi og
byggir hún þær á eigin stjórnenda
reynslu. „Konur þakka velgengni
sína því að þær hafi lagt hart að sér,
þær hafi verið heppnar og að þær hafi
fengið hjálp frá öðrum. Karlar þakka
velgengni sína – sama á hvaða sviðum
hún er – eigin verðleikum,“ segir Sand
berg.
Hún bendir á að það séu ekki aðeins
karlarnir sem haldi aftur af konum,
þær geri það einnig sjálfar. „Þær halla
sér aftur,“ segir Sandberg í viðtalinu.
Hún segir að konur noti afsakanir sem
komi í veg fyrir að þær sækist eftir
auknum frama sem hún hefur aldrei
heyrt karla nota. Þær hafi nóg á sinni
könnu, séu enn að læra í núverandi
starfi eða að þær ætli sér að eignast
börn einhvern tímann.
Hún segir að viðhorf samfélagsins
til kvenna þurfi að breytast og það
þurfi að styðja við stúlkur strax í frum
bernsku. „Í stað þess að segja við stúlk
ur að þær séu frekar eða stjórnsamar á
að hrósa þeim fyrir leiðtogahæfileika.“
Sjálf fékk hún að heyra að hún væri
frek og stjórnsöm, allt frá bernsku og
til dagsins í dag. Hún þekkir margar
konur í stjórnunarstöðum sem hafa
sömu reynslu.
Við þekkjum öll þessa umræðu, hún
hefur margoft komið upp. Það sem er
áhugavert í þetta skiptið er að nú stígur
fram ein valdamesta kona heims og
segir sér það kappsmál að hvetja kon
ur til að leggja sig sjálfar fram eins
framarlega og þeim er unnt að brjótast
í gegnum glerþakið. Segjum já, þegar
okkur býðst aukin ábyrgð, hikum ekki,
það myndu karlarnir ekki gera. Semj
um um laun eins og karlar (aldrei taka
fyrsta boði, segir Sandberg). Hvetjum
hver aðra. Og stöndum saman.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
„Í stað þess að segja við stúlkur að þær séu frekar eða stjórnsamar
á að hrósa þeim fyrir leiðtogahæfileika.“
T ugir þúsunda manna hafa borið og bera
þungar byrðar af verð
tryggðum húsnæðis
lánum sínum. XG
Hægri grænir, flokkur
fólksins, vill taka á
þessum málum og
leiðrétta og endurfjá
magna þessi lán og
leggja grunn að nýrri
framtíð viðkomandi fái
flokkurinn nægilegan
stuðning í alþingis
kosningunum til þess
að geta hrint þessum áformum í
framkvæmd.
Þekkt og þrautreynd lausn
Lausnin var fundin af færustu
hagfræðingum og sérfræð
ingum heims. Bandaríkjamenn
fóru hana m.a. til þess að bjarga
bandaríska húsnæðiskerfinu og
fengu til þess sérstaka lagaheim
ild Bandaríkjaþings 3. október,
2008, eftir að kreppan skall á þar
(ensk. TARP Troubled Asset
Relief Program). Hægri grænir
vilja fara þessa sömu leið, sem
gekk svo afar vel og vilja miða við
lán tekin 1. nóvember 2007 eða
síðar, þegar MiFID (Markets in
Finacial Instruments Directive)
tilskipun ESB/EES um neyslulán
var lögleidd hér á landi, en í henni
felst bann við sölu á flóknum fjár
málaafurðum til almennings eins
og flokkurinn hefur lengi haldið
fram að verðtryggð lán væru.
Lántakar verðtryggðra lána hér
á landi vita aldrei hvað næsta
afborgun verður, hvað þá hvernig
allt lánið verður þegar upp er
staðið, því enginn veit
fyrr en eftir á hver
áhrif vísitalna og vaxta
á það verða.
Aðferðin – Einföld
og gengur upp
Hægri grænir vilja
setja á neyðarlög, sem
í fyrsta lagi afnema að
verðtryggja, afleiðu
tengja, megi venjuleg
lán til almennings og
í öðru lagi heimila
Seðlabankanum að
stofna sérstakan sjóð
innan sinna eigin veggja, sem
keypti af fjármálastofnunum
verðtryggð húsnæðislán fólks
og skuldbreytti þeim með út
gáfu nýrra skuldabréfa. Þetta
nefnist magnbundin íhlutun eða
á ensku Quantative easing. Nýju
lánin yrðu þá færð niður í nýjan
höfuðstól eða eins og lánin hefðu
verið án verðtryggingarinnar og
verði á föstum óverðtryggðum
vöxtum og til langs tíma, jafnvel
til allt að 75 ára, til þess að stilla
greiðslubyrðina við greiðsluget
una. Seðlabankinn lánaði þessum
sjóði sínum á 0,01% vöxtum og
með því að nýju bréfin bæru 7.65%
fasta vexti, þá tæki það sjóðinn 9
ár að komast í jafnvægi. Þannig
er það vaxtamunurinn og tíminn,
sem borga þetta upp og segja má
að þetta sé eins konar bókhalds
aðgerð innan Seðlabankans, en
ávinningurinn, vaxtamismunur
inn, rynni til réttra aðila, þ.e.a.s.
fólksins í landinu í stað banka,
þrotabúa og vogunarsjóða. Lánar
drottnarnir fengju gamla lánið
greitt að fullu og töpuðu engu,
Tækifæri til að skapa nýja framtíð
Leiðrétting
verðtryggðra
húsnæðislána
Kjartan Örn Kjartans-
son varaformaður
Hægri grænna, í 1. sæti
lista flokksins í Reykjavík
norður
Íslenski veitingastaðurinn við Reykjavíkurhöfn
20 viðhorf Helgin 22.-24. mars 2013