Fréttatíminn - 22.03.2013, Qupperneq 26
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 4.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð frá 40.000
Höfðagaflar frá 5.000
Sjónvarpsskápar frá 25.000
Rúm 153cm frá 157.000
Púðar frá 2.900
Torino
Fjarstýringavasar frá 2.500
Hægindastólar frá 99.000
Tungusófar frá 75.400
Hornsófar frá 119.450
Sófasett frá 99.900
Mósel
AquaClean áklæði
kynningarafsláttur AquaClean áklæði er sérstaklega auðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N
Hornsófar - Tungusófar - Sófasett
Sófasett - Hornsófar - Tungusófar
Tungusófar - Sófasett - Hornsófar
Nýtt
Nýtt
Basel
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl.9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Patti verslun I Dugguvogi 2 I Sími: 557 9510 I vefsíða www.patti.is
að teljast að kjósendur Sjálfstæðisflokksins
kaupi sér einfaldlega sínar bækur sjálfir enda
hafa þeir svo sannarlega úr mörgu að velja.
Helsti hugmyndafræðingur flokksins síðustu
áratugi, Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
hefur skrifað mannhæðarháa stafla af bókum
um ýmis efni og bóksala Andríkis á vefnum
er eiginlega ígildi bókasafns fyrir sjálfstæðis-
fólk. Þar er hægt að kaupa til dæmis Áhrif
skattahækkana á hagvöxt og lífskjör og Ís-
lenskir kommúnistar – 1918-1998, eftir einmitt
Hannes Hólmstein, Uppsprettuna, eftir Ayn
Rand, Roðann í austri, Svartbók kommúnism-
ans, Búsáhaldabyltingin – Sjálfsprottin eða
skipulögð? og Þjóð í hafti – Saga verslunar-
fjötra á Íslandi 1930 – 1960. Bókmenntir sem
myndi vart hvarfla að kjósendum VG að fá svo
mikið sem að láni á bókasafni.
Svart og sykurlaust
Þeir sem fara sjaldan á kaffihús kjósa frekar
Sjálfstæðisflokkinn hvernig sem á því stendur
en ef til vill eru þessir kjósendur uppteknir við
að græða á daginn og grilla á kvöldin og hafa
því hvorki tíma né áhuga á að sitja á kaffihúsum
innan um lattélepjandi listaspírur og landeyður
sem finna ekki döngun í sér til þess að fá sér
almennilega vinnu.
Eftir því sem fólk fer oftar á kaffihús aukast
líkurnar á því að Samfylkingin verði fyrir vali
þess þegar í kjörklefann er komið. Kannski er
það ríkt í eðli hægrikrata að plotta yfir cappucc-
ino og latté auk þess sem kaffihús eru að sjálf-
sögðu kjörinn vettvangur til þess að stunda sam-
ræðustjórnmál og láta á sér bera í leiðinni.
Þótt ungir sjálfstæðismenn eigi það til að láta
opinber framlög til menningarmála og lista-
mannalaun fara í sínar fínustu og virðist hafa tak-
markaðan áhuga á því að slæpast á bókasöfnum
þarf virkilega illan hug til þess að draga af þessu
þá ályktun að kjósendur Sjálfstæðisflokksins séu
almennt grunnhyggnari en kjósendur annarra
flokka. Samt sem áður vekur óhjákvæmilega
athygli að samkvæmt könnuninni eru þeir sem
eru sammála þeirri fullyrðingu að „útlit fólks
skipti mestu máli, það sýnir hvernig viðkomandi
er“ eru líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn en
önnur framboð.
Segðu mér hvað þú borðar og...
„Jæja, þá er komið að því. Á morgun byrja ég
fyrir alvöru í megrunarkúr sem ég hlýt að kalla
íslenska kúrinn því hann felst í því að borða bara
íslenskan mat. Íslenski kúrinn byggist á því að:
a) Ég hitti meltingarlækni sem sagði mér að ís-
lenskur matur væri sá hollasti í heimi.
b) Aðeins helmingur þeirrar fæðu sem neytt
er á Íslandi er framleidd hér. Þ.e. ef maður
borðar bara það íslenska borðar maður helmingi
minna. Með því að auka svo neyslu á íslenska
matnum um 50% endar maður í 75% af
fyrri neyslu.“
Engan ætti að undra að
kjósendur sem fylkja
sér að baki leiðtoga
sem svo mælir hafi
lítinn áhuga á
erlendri matargerð
og eins og við mátti
búast vill stór hluti
kjósenda Fram-
sóknarflokksins sem
minnst af útlendum
mat vita. Þeir
sem hyggjast
kjósa fyndnu
og alþjóðlega
þenkjandi krúttin
í Bjartri framtíð
hafa aftur á móti
mikinn áhuga á
erlendri matargerð
og bíða væntanlega
spenntir eftir því að
liðsmenn Bjartrar
framtíðar reyni að opna
fyrir þeim þær evrópsku
matarkistur sem ESB
hefur yfir að ráða. Á meðan
einmitt Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson og hans fólk vill
Kannski er það ríkt í eðli hægrikrata að plotta yfir cappucino og latté auk þess sem
kaffihús eru að sjálfsögðu kjörinn vettvangur til þess að stunda samræðustjórnmál og
láta á sér bera í leiðinni.
Fólk sem fylgir Bjarna
Benediktssyni að málum
virðist forðast kaffihús.
Eðlilega kannski þar sem
þau eru full af hægrikrötum
og Evrópusinnum.
Árni Páll Árnason á vísan
stuðning kattaeigenda
en í ljósi þess að hann er
samkvæmt DV best klæddi
þingmaðurinn og svo flottur
að hann gerir „kvenþjóðina
vitlausa“ er hann mögulega
í röngum flokki þar sem
kjósendur Sjálfstæðis-
flokksins hafa tilhneigingu
til þess að dæma fólk eftir
útlitinu.
Kjósendur hans eru líklegir
til þess að eiga hund enda
verður ekki af kjarnafylgi
flokks hans tekið að það
hefur verið hundtryggt í
gegnum áratugina.
Einhverjir vilja meina að
þingflokkur Vinstri-grænna
sé gáfaðasti hópurinn
á þingi. Í það minnsta á
bókina og því engin undur
og stórmerki að fólk sem
alið er upp á bókasöfnum
og í leikhúsi fylgi mennta-
málaráðherranum Katrínu
Jakobsdóttur af einurð og
festu.
Neyslu- og lífsstílskönnun Gallup
Í Neyslu- og lífsstílskönnun Gallup eru netnotendur á aldrinum 16-75 ára
spurðir um ríflega 2000 atriði er lúta að daglegri neyslu, áhugamálum,
tómstundum, viðhorfum og eignum. Þær niðurstöður sem hér eru reif-
aðar til gamans taka mið af því hvaða framboð aðspurðir hyggjast kjósa
í kosningum til alþingis í apríl.
Nýbýlavegi 32 S:577-5773
Matur fyrir 4
3690 kr.
10,000 nyir boltar
komnir i boltalandid okkar
samlokur-pizzur-salöt
26 úttekt Helgin 22.-24. mars 2013