Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 28

Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 28
M atthías Vilhjálmsson er 26 ára atvinnu- maður í fótbolta sem spilar nú með norska úrvalsdeildarliðinu IK Start. Hann skoraði fyrsta mark sitt í norsku úrvalsdeildinni í fyrsta leik liðs- ins síðastliðinn sunnudag þegar Start fór með sigur af hólmi. „Það er fínt að byrja með sigri,“ segir Matthías. Líf hans sjálfs hófst síður en svo með sigri. Blóðmóðir hans, Unnur Munda Friðriksdóttir, lést fyrir skömmu, 46 ára að aldri. Banamein hennar var hjarta- áfall sem orsakaðist af áratuga löngu stríði hennar við áfengis- og vímuefna- fíkn. Hann fór ungur til ömmu sinnar og afa sem ólu hann upp til þriggja ára aldurs þegar hann flutti alfarið til pabba síns, Vilhjálms Matthíassonar, og stjúp- móður, Ásdísar Birnu Pálsdóttur sem gekk honum umsvifalaust í móður stað. Þau eiga saman einn son, Hákon Atla, sem er sex árum yngri en Matthías. Vil- hjálmur átti að auki annað barn af fyrra sambandi. Blóðmóðir hans, Unnur Munda, átti auk Matthíasar tvö yngri börn. Áfengisfíknin er sjúkdómur sem hefur tekið mikinn toll af móðurfjöl- skyldu Matthíasar. Móðurbróðir hans lést úr sama sjúkdómi og systir hans, sem og móðuramma og -afi Matth- íasar. Þó svo að Matthías hafi ekki verið í miklu sambandi við móðurfjöl- skyldu sína í gegnum tíðina vissi hann vel af fíkniefnavanda móður sinnar sem honum fannst erfitt að skilja sem barn. „Ég skildi ekki hvernig hægt var að gera sjálfum sér þetta og fjölskyld- unni sinni. En ég veit í dag að þetta er sjúkdómur sem fólk þarf að fá hjálp til að ráða við,“ segir Matthías. „Mér mun hins vegar alltaf þykja erfitt að skilja hvernig fólk getur yfirgefið börnin sín,“ segir hann. Aldrei hræddur við fjölskyldusjúk- dóminn Bernska Matthíasar og unglingsárin einkenndust af heilbrigði og dugnaði. Hann sýndi fljótt mikla hæfileika í fótbolta og vissi ekkert skemmtilegra en að sparka bolta. „Ég var eiginlega alltaf með boltann við lappirnar,“ segir Matthías og hlær. „Ég var örugglega ekkert spennandi unglingur, það eina sem ég hugsaði um var fótbolti og að borða rétt,“ segir hann. Hann er þakklátur fyrir að hafa fengið að alast upp úti á landi. „Það var frábær lífsreynsla að alast upp á Ísafirði, ekkert stress og stutt í allt sem mann langaði til að gera. Ég mæli með því að fólk ali börnin sín upp úti á landi,“ bætir hann við. Matthías var mjög andsnúinn áfengi og vímuefnum sem barn og unglingur og bragðaði fyrst áfengi eftir tvítugt. Hann segir ástæðuna fyrir því ekki þá Ég skildi ekki hvernig hægt var að gera sjálfum sér þetta og fjölskyldunni sinni. En ég veit í dag að þetta er sjúkdómur sem fólk þarf að fá hjálp til að ráða við. Slapp undan fjölskyldubölinu og gerðist atvinnumaður í fótbolta FH-ingurinn frækni, Matti Vill, spilar nú sem atvinnumaður í fótbolta í norsku úrvalsdeildinni. Hann fæddist hins vegar ekki með silfurskeið í munninum heldur hefur lagt mikið á sig til þess að ná svona langt. Hann ólst upp í litlu sem engu sambandi við móður sína sem lést nýverið úr ofneyslu áfengis- og fíkniefna líkt og bróðir hennar og foreldrar einnig. að hann hafi verið hræddur um að fjölskyldusjúkdómurinn byggi í honum. „Ég var svo sem aldrei hræddur um að þetta myndi henda mig. Ég var bara algerlega á móti því að drekka,“ segir hann. Hann hvetur ungmenni til þess að láta áfengi eiga sig eins lengi og mögu- legt er. „Því lengur sem fólk sleppir því að fá sér í glas, því betra fyrir líkama þess og þroska,“ segir hann. Matthías segir að það hafi hjálp- að sér mikið á unglingsárunum hversu fótboltinn var sterkt áhuga- mál. „Ef foreldrar vilja stuðla að því að börn þeirra lifi heilbrigðu lífi og haldi sig frá áfengi og vímuefnum verður að hjálpa þeim að finna sér áhugamál, hvaða áhugamál sem er, og aðstoða þau við að stunda það. Þá á ég ekki endilega bara við fót- bolta eða aðrar íþróttir, í rauninni hvað sem er, svo lengi sem börnin hafa gaman af því,“ segir hann. Hann segist sjálfur hafa verið heila- þveginn af því að ná langt í fótbolt- anum og það hafi hjálpað honum í lífinu að gefast aldrei upp á því. „Ég Villi-Matta-Villa-Matta-Vill Matthías og Rakel skírðu frumburðinn Vilhjálm í höf- uðið á afa sínum. Á Ísafirði eru skemmtilegar nafna- hefðir sem eru ekki fyrir alla að skilja. Flestir þekkja þing- manninn fyrrverandi, Adda Kitta Gau, sem heitir í raun Guðjón Arnar Kristjánsson. Sá er kallaður Addi og er sonur manns sem kallaður var Kitti Gau. Þannig heitir hann Addi Kitta Gau. Matthías er kallaður Matti Vill. Pabbi hans er kallaður Villi Matta Vill. Því væri ekki ólíkt Ísfirðingum að kalla Matthías: Matti Villa Matta Vill. Og því fjögurra ára son Matthíasar, Vilhjálm Atla, Villi Matta Villa Matta Vill. Matthías hlær þegar hann er spurður að því hvort sonur hans sé kallaður Villi Matta Villa Matta Vill. „Jú, ætli það ekki. Ég ákvað allavega að halda í hefðina og skíra í höfuðið á pabba. Ég mun ekki vera með neina pressu á strákinn minn þegar að því kemur að halda þessu áfram. Mér fannst Vil- hjálmur bara fallegt nafn,“ segir hann. Matthías segir soninn, Vilhjálm Atla, efnilegan með boltann. „Ég passa mig á því að vera ekki að þröngva neinu upp á hann en það virðist sem hann sé með meðfæddan fótboltaáhuga í sér.“ Ljósmynd/Kristin Søvik 28 viðtal Helgin 22.-24. mars 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.