Fréttatíminn - 22.03.2013, Qupperneq 32
Ég efaðist
lengi um hæfi-
leika mína
og var ekkert
alveg viss um
að ég ætti að
vera að standa
í þessu
G réta Karen Grétarsdóttir hefur komið sér fyrir í há-borg dægurmenningarinnar, Los Angeles, þar sem hún
ætlar að hasla sér völl sem tónlistar-
kona. Hún samdi lagið Nothing og lét
tónlistarmyndband með því á YouTube
þar sem það hefur fallið í frjóan jarðveg.
„Ég samdi lagið mest allt sjálf en fékk
vin minn sem heitir Daniel Capellaro
til þess að hjálpa mér að klára nokkrar
línur í textanum.“
Lagið hefur verið spilað rúmlega
64.000 sinnum og áhrifafólk í tónlistar-
bransanum er farið að sýna söngkon-
unni áhuga.
„Héðan er bara allt fínt að frétta,“
segir Gréta Karen og hljómar eins og
Fréttatíminn hafi vakið hana þegar hún
svarar símanum klukkan 10 að morgni
í borg englanna. „Nei, nei. Ég var alveg
vöknuð. Ég ligg bara uppi í rúmu,“ segir
söngkonan og hrekkur í gírinn. „Ég
henti bara þessu myndbandi upp og
það er búið að skoða það alveg helling,“
segir Gréta og neitar því ekki að lagið
hefur vakið athygli á réttum stöðum án
þess að hún vilji fara náið í þá sálma.
„Jú,jú. Fólk er alveg búið að hafa sam-
band við mig en þetta er ekkert sem
ég má tala um að svo stöddu en mér er
óhætt að segja að viðbrögðin hafi verið
mjög góð.“
Gréta segist aðspurð ætla að leyfa
Nothing að standa á netinu í einhvern
tíma áður en hún fylgir því eftir með
Gréta Karen setur hornin
undir sig í Los Angeles
Gréta Karen Grétarsdóttir seldi allar eigur sínar á Íslandi fyrir nokkrum misserum og hélt til Los Angeles
staðráðin í að koma sér þar á framfæri sem söngkona. Hjólin eru farin að snúast og hún setti lag sitt Nothing
inn á YouTube nýlega og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og lagið hefur verið skoðað rúmlega 64.000
sinnum á vefnum. Gréta Karen er dóttir Grétars Örvarssonar og tónlistin kraumar því í blóðinu. Og stúlkan
ætlar sér að slá í gegn í Los Angeles, enda hrútur sem setur undir sig hornin og lætur ekkert stöðva sig.
fleiri lögum. „Ég ætla að leyfa þessu að-
eins að vera en fer svo að gera fleiri lög.
Þau koma bara þegar þau koma og það
verður örugglega á næstu mánuðum.“
Efaðist um hæfileikana
Gréta segist hafa, eins og oft áður, verið
full efasemda um hvort hún væri á
réttri braut þegar vinkona hennar hvatti
hana eindregið til þess að koma laginu
á framfæri, setja það á YouTube og sjá
hverjar viðtökurnar yrðu.
„Ég efaðist lengi um hæfileika mína
og var ekkert alveg viss um að ég ætti
að vera að standa í þessu þannig að vin-
kona mín sagði þér að drífa í að setja
lagið á YouTube. Hún sagði svo eitt-
Framhald á næstu opnu
Gréta Karen ákvað
einn daginn að kasta
öllu frá sér og hélt til
Los Angeles til þess
að sigra heiminn.
Ljósmyndir/Darri Ingólfs-
son og Michelle Darlene.
32 viðtal Helgin 22.-24. mars 2013