Fréttatíminn - 22.03.2013, Blaðsíða 52
52 bílar Helgin 22.-24. mars 2013
ReynsluakstuR toyota RaV4 – fjóRða kynslóð
KOMDU O
G PRÓFAÐ
U
NÝR FOR
D FIESTA
SNILLDAR
BÍLL
FRÁ
FRÁ
FORD FIESTA
2.490.000 KR.
28.979 KR./MáN*
ford.is
Ford Fiesta Trend 5 dyra, 1,0i bensín 65 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,3 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 99 g/km., fær frítt í stæði í Reykjavík í 90 mín. í senn.
Miðað er við grænan óverðtryggðan bílasamning til 7 ára og uppítökubíl / útborgun að verðmæti 760.000 kr. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Hlutfallstala kostnaðar 10,64%.
Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
*
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Aukin þjónusta Bíldshöfða 6: Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
FordFiestafrumshálfsíða.indd 1 21.02.2013 13:21:59
RAV-inn gerði mig að bíladellukellingu
Fjórða kynslóð Toyota RAV4 er nú komin á markað og er sannarlega bíll
fyrir íslenskar fjölskyldur í íslenskum aðstæðum, fallegur, rúmgóður, fjór-
hjóladrifinn og góður í akstri.
f yrir fáeinum vikum breyttist ég í algjöra bíladellukellingu. Íslenskum bílablaðamönnum var
boðið til Spánar að prófa fjórðu kynslóð
Toyota RAV4 sem verið var að frumsýna.
Spennandi. Fínt að fara til Spánar svona
um miðjan vetur. Og ekkert leiðinlegt að
fá að rúnta um sveitir Katalóníu svona á
fyrstu dögum vorsins, möndlutrén voru
komin í blóma og bændur voru farnir að
huga að vínökrum sínum.
Ég fékk afnot af beinskiptum bensínbíl
með tveggja lítra vél, og valdi beinskipt
inguna því ætlunin var að aka einungis
utanbæjar. Ég hefði valið mér sjálfskiptan
ef ég hefði verið að aka í borg, þar sem
sífellt er verið að hægja á og gefa í og
stoppa á ljósum.
Rúnturinn fyrri daginn var um þrír
tímar. Það er mjög langt síðan ég hef ver
ið ein í þrjá tíma. Ég naut þess svo, að ég
kveikti ekki einu sinni á tónlistinni sem
Toyota hafði hlaðið inn á minniskubb og
hægt var að hlusta á í fínum hljómtækj
um bílsins.
„Sport Mode“-ið virkar!
Ég keyrði mjög varlega til að byrja með.
Ég þurfti að sjálfsögðu að kynnast bíln
um aðeins og vegunum, sem og leiðsögu
konunni í leiðsögukerfinu sem Toyota
hefur þróað og býður upp á sem aukabún
að í bílnum. (Ég skírði leiðsögukonuna
Gwendolyn því hún hljómaði þannig.)
Þegar ég var komin með öryggi fór
ég aðeins að verða hugaðri. Ég hætti að
hægja jafnmikið á í beygjum (sem voru
ófáar) og gaf vel í á hraðbrautunum sem
komu inn á milli og kom bílnum vel yfir
160 km hraða.
Bíllinn var skemmtilegur í akstri.
Mér fannst hann samt ekki liggja alveg
nógu vel í beygjunum. Það kom á daginn
(fattaði það ekki fyrr en í kennslustund
Toyota síðdegis fyrri daginn) að með því
að ýta á einn takka virkjaði ég svokallað
„Sport Mode“ sem gerði það að verkum
(sem útskýrt var í löngu og tæknilegu
máli) að bíllinn nánast sigraðist á mið
flóttaaflinu (eða þannig skildi ég það) og
næði mun krappari beygjum. Viti menn,
ég prófaði það á degi tvö og þvílíkur
munur! Ég var orðin eins og atvinnubíl
stjóri í torfærukeppni (nema á malbiki)
og tók beygjurnar á fullu spani alveg
hægri vinstri án þess að finnast ég vera
að velta bílnum í hvert skipti. Svei mér,
þetta „sport mode“ svínvirkaði.
Ég var orðin svo örugg með mig (var
kárni mín fyrri daginn stafaði ekki síst
af sögum kollega minna um rússneska
vini þeirra sem hefðu velt 18 bílum í einni
prufukeyrslunni eitt árið) að ég meira að
segja kveikti á tónlistinni. Af slöppuð og
brosandi út að eyrum, með nýju sólgler
augun sem ég hafði keypt í einu svei
taapótekinu (því íslenska myrkrið hafði
þurrkað sólina úr minni mínu) krúsaði ég
um sveitirnar.
Ég villtist bara þrisvar og það var
Gwendolyn að kenna í öll skiptin. Hún
er ansi slöpp í katalónskunni, greyið, og
bar nöfn á götum og kennileitum fram
snarvitlaust. Í eitt skiptið lék ég mér að því
að óhlýðnast. Það var þegar ég var á leið
heim á hótelið eftir fyrri daginn og beygði
til vinstri í stað hægri á síðasta hring
torginu í því skyni að fá smá nasasjón af
Sitges, strandbænum fagra skammt frá
Barcelona. Grey Gwendolyn fór alveg á
taugum og létti mikið þegar ég loks rataði
aftur inn á þá leið sem henni var gert að
hjálpa mér að fylgja.
Lengri og rennilegri
Fyrir utan hótelið var öllum fjórum kyn
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is
Allar línur í nýja RAV-inum eru orðnar mun straumlínu-
lagaðri, gluggalínan hækkar aftur eins og er í tísku núna,
ljósaumbúnaðurinn var nútímalegri og ljósin, bæði að
framan og aftan, öll stærri og þar af leiðandi sýnilegri.
Ljósmyndir/Sigríður Dögg Auðunsdóttir
slóðum RAV4 stillt upp og var mjög áhuga
vert að sjá hvernig tískan í bílahönnun
hefur breyst. Nýjasta týpan var áber
andi fallegust. Allar línur mun straum
línulagaðri, gluggalínan hækkaði aftur
eins og þykir svo flott núna (sem reyndar
kemur niður á útsýni barna úr aftursæti),
ljósaumbúnaðurinn var nútímalegri og
ljósin, bæði að framan og aftan, öll stærri
og þar af leiðandi sýnilegri. Innréttingin
er einnig falleg og vel hugsuð. Aftursætin
leggjast flöt og skottið er stærra en í for
veranum enda bíllinn nokkuð lengri. Vara
dekkið fer nú í hólf í skottinu í stað þess að
vera hengt aftan á og batnar útlit bílsins til
mikilla muna við það eitt.
Upplifun mín af reynsluakstrinum var
öll mjög jákvæð og myndi ég fyllilega
mæla með hinum nýja RAV4 fyrir íslensk
ar fjölskyldur í íslenskum aðstæðum. Hið
eina sem ég hefði viljað bæta við hann eru
tvö aukasæti í skottinu en samkvæmt upp
lýsingum frá Toyota er ekki gert ráð fyrir
að framleiða RAV4 í 7 manna útgáfu, því
miður.