Fréttatíminn - 22.03.2013, Page 66
66 skák og bridge Helgin 22.-24. mars 2013
Skákakademían áratugur Síðan Skáklandnám íSlendinga á grænlandi hófSt
Skák er skemmtileg – á Grænlandi og í Grafarvogi
í næstu viku fer vösk sveit skáktrúboða til Ittoqqorto-ormiit á austurströnd Græn-
lands, en þetta rúmlega 400
manna þorp er trúlega afskekkt-
asta byggð norðurslóða. Næstum
þúsund kílómetrar eru í næsta bæ
– Kulusuk – og þangað er aðeins
hægt að komast flugleiðina, nema
örfáa mánuði yfir hásumarið. En
núna fer hátíð í hönd: Hin árlega
skákveisla er að hefjast og börnin
í bænum bíða spennt.
Nú eru 10 ár síðan
skáklandnám Íslend-
inga á Grænlandi hófst.
Sumarið 2003 var fyrsta
alþjóðlega skákmótið í
sögu Grænlands haldið
í Qaqortoq á Suður-
Grænlandi. Þar sigraði
enski undradrengur-
inn Luke McShane, en
meðal annarra kepp-
enda voru stórmeistarar
á borð við Friðrik Ólafs-
son, Jóhann Hjartar-
son, Ivan Sokolov og
Predrag Nikolic. Tugir
Grænlendinga á öllum
aldri tóku þátt í þessu
sögulega móti, sem og
þáverandi þingforsetar
beggja landa, þeir Hall-
dór Blöndal og Jonathan
heitinn Motzfeldt.
Árið eftir lá leiðin til
austurstrandarinnar, og þangað
hafa verið farnar fjölmargar
ferðir síðasta áratuginn. Veglegar
skákhátíðir hafa verið í Tasiilaq,
höfuðstað Austur-Grænlands,
auk þess sem öll litlu þorpin hafa
verið heimsótt, flest margsinnis.
Þannig hafa íslenskir skáktrúboð-
ar oft komið til Kulusuk, haldið
námskeið í skólanum og efnt til
fjöltefla og skákmóta fyrir börn.
Skák var næstum óþekkt á
Grænlandi þegar liðsmenn Hróks-
ins hófu starf sitt 2003. Nú er
óhætt að segja að nokkrar byggðir
séu hreinræktuð skákþorp, og
framundan eru skákferðir til
vesturstrandarinnar – sú fyrsta
var reyndar farin til Nuuk núna
í desember. Kalak, vinafélag Ís-
lands og Grænlands, hefur frá
upphafi tekið þátt í starfinu og
nú undanfarin ár hefur Skákaka-
demían komið af fullum krafti í
þetta skemmtilega og
gefandi verkefni.
Grænlensku börnin
hafa tekið skákinni
tveimur höndum og
óteljandi ánægju-
stundir orðið til yfir
taflborðinu. Mark-
miðið frá upphafi
hefur ekki eingöngu
verið að útbreiða
hina fornu og göfugu
íþrótt, heldur ekki
síður að efla sam-
skipti grannþjóð-
anna á sem flestum
sviðum. Grænland er
stórkostlegur töfra-
heimur, sem allir
ættu að kynnast!
Rimaskóli Íslands-
meistari
Skáksveit Rimaskóla
vann yfirburðasigur á
skákþRautin
Svartur leikur
og vinnur.
Svartur hefur byggt upp
ógurlegan þrýsting á
g-línunni og leggur nú til
atlögu – úr óvæntri átt.
Lalic stýrði svarta liðinu
gegn Eames.
h elgina 15.-17. mars fór fram lands-liðskeppni Bridgesambands Íslands. Keppt var um sæti í landsliðum Ís-
lands í bridge í komandi Norðurlandamóti
sem fram fer dagana 24.-26. maí á Íslandi
– nánar tiltekið á flughótelinu í Keflavík.
Keppt var í opnum flokki og kvennaflokki og
veittu tvö efstu sætin rétt til þess að keppa
í landsliði Íslands. Átta pör kepptu í hvor-
um flokki kepptu um þennan rétt. Parið Jón
Baldursson og Þorlákur Jónsson, sem hafa
verið fastamenn í opna landsliðinu, gátu ekki
keppt vegna spilamennsku í Bandaríkjunum
og voru þeir sjálfvaldir í landsliðið í opnum
flokki. Í opnum flokki unnu Bjarni H. Ein-
arsson og Aðalsteinn Jörgensen öruggan
sigur í landsliðskeppninni en meiri keppni
var um annað sætið. Lokastaða 4. efstu para
varð þannig:
1. Bjarni H. Einarsson – Aðalsteinn Jörgensen 299
2. Guðmundur Snorrason – Ragnar Hermannsson 157
3. Sveinn Rúnar Eiríksson- Þröstur Ingimarsson 152
4. Jörundur Þórðarson – Hjálmar S. Pálsson 63
Keppni um landsliðssæti í kvennaflokki var
minna spennandi. Systurnar Bryndís og
Ólöf Þorsteinsdóttir unnu sér næsta öruggt
sæti með því að hafna örugglega í tveimur
efstu sætunum ásamt makkerum sínum.
Lokastaða 4. efstu paranna varð þannig:
1. Bryndís Þorsteinsdóttir – María Haraldsdóttir 353
2. Ólöf Þorsteinsdóttir – Svala K. Pálsdóttir 328
3. Alda Guðnadóttir – Stefanía Sigurbjörnsdóttir 87
4. Anna Ívarsdóttir – Guðrún Óskarsdóttir 76
Í eftirfarandi spili í landsliðskeppninni í opn-
um flokki enduðu öll pörin, fyrir utan eitt í
4 hjörtum. Þau unnust ekki, en Bjarni H.
Einarsson og Aðalsteinn Jörgensen enduðu
í þremur gröndum á vesturhöndina og unnu
fjögur. Það var ansi dýrmætt fyrir Bjarna
og Aðalstein. Spilið var allt svona, norður
gjafari og allir á hættu:
♠DG74
♥7
♦D42
♣107653
♠103
♥G932
♦ÁK73
♣D84
♠ K65
♥ KD104
♦ G65
♣ ÁG9
♠ Á982
♥ Á865
♦ 1098
♣ K2
n
s
V a
Útspil norðurs var spaði gegn 3 gröndum
Bjarna H. Einarssonar. Hann drap spaðatíu
á kóng, spilaði hjarta á ás og tígultíu úr blind-
um. Suður setti lítið og norður fékk slaginn
á drottninguna. Hann hélt áfram spaðasókn-
inni með spaðadrottningu og Bjarni spilaði
áfram spaða í stað þess að treysta á laufsvín-
ingu. Suður fann eðlilega ekki að spila tígli
og spilaði laufi. Bjarni fékk því sína 10 slagi
og þáði verðskuldað gott skor fyrir það.
Aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykja-
víkur er í fullum gangi og búnar 4 umferðir
af 14. Sveit Lögfræðistofu Íslands er með 9
stiga forystu, sveit Málningar vermir annað
sætið og litlu munar á næstu sveitum. Staða
6 efstu sveitanna er þannig:
1. Lögfræðistofa Íslands 120
2. Málning 111
3. Chile 104
4. Garðs apótek 102
5. Grant Thornton 101
6. Guðlaugur Sveinsson 100
Spilarar í sveit Lögfræðistofu Íslands eru
Aðalsteinn Jörgensen, Bjarni H. Einarsson,
Jón Baldursson, Steinar Jónsson, Sverrir Ár-
mannsson og Þorlákur Jónsson.
Bridge karla- og kvennalandSlið á komandi norðurlandamóti
Landsliðskeppni
Lausn: 1 Bb5! Hvítur
gafst upp. Drepi drottn-
ingin biskupinn verður
hvítur mát á augabragði
og c4 er einfaldlega
svarað með Bxc4!
Íslandsmóti grunnskólasveita
um síðustu helgi. Stórveldið í
Grafarvogi var óstöðvandi, og
fengu Rimaskólakrakkarnir 34
vinninga af 36 mögulegum, 8
vinningum meira en Lauga-
lækjarskóli sem hreppti silfrið.
Hin vaska og efnilega sveit
Álfhólsskóla varð í 3. sæti.
Sigursveit Rimaskóla
skipuðu Dagur Ragnarsson,
Oliver Aron Jóhannesson, Jón
Trausti Harðarson og Nansý
Davíðsdóttir. Öll eru þau meðal
efnilegustu skákmanna lands-
ins, og ættu lesendur að leggja
nöfnin vel á minnið! Oliver og
Nansý sigruðu í öllum skákum
sínum, 9 að tölu, og fengu
þar með líka verðlaun fyrir
bestan árangur á 2. og 4. borði.
Bestum árangri á 1. borði náði
Íslandsmeistari barna, Vignir
Vatnar Stefánsson (Hörðuvalla-
skóla) sem sigraði í öllum
skákum sínum og á 3. borði fór
hinn ótrúlegi Óskar Víkingur
Davíðsson (Ölduselsskóla) á
kostum – sjö ára gamall og
vann hverja einustu skák!
Landsliðsspilararnir Bjarni H. Einarsson og Aðalsteinn Jörgensen spila gegn bræðrunum Hrólfi og
Oddi Hjaltasonum í sveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur.
Skákgleði á Grænlandi.
Landmark leiðir þig heim!
* Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Okkur er sönn ánægja að sjá um þín fasteignaviðskipti – þú hringir við seljum!
100% þjónusta = árangur*
Sími 512 4900
landmark.is
Magnús
Einarsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 897 8266
Sigurður
Samúelsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 896 2312
Sveinn
Eyland
Löggiltur
fasteignasali
Sími 690 0820
Íris Hall
Löggiltur
fasteignasali
Þórarinn
Thorarensen
Sölustjóri
Sími 770 0309
Kristberg
Snjólfsson
Sölufulltrúi
Sími 892 1931
Eggert
Maríuson
Sölufulltrúi
Sími 690 1472
Haraldur
Ómarsson
sölufulltrúi
sími 845 8286
Sigurður Fannar
Guðmundsson
Sölufulltrúi
Sími 897 5930