Fréttatíminn - 22.03.2013, Page 76
Í takt við tÍmann Sindri ÁStmarSSon
Fær ekki nógu stóra skó á Íslandi
Sindri Ástmarsson er 24 ára dagskrárstjóri á útvarpsstöðinni Flass.
Sindri hefur verið plötusnúður í tíu ár og hætti í menntaskóla til að
einbeita sér að útvarpsstöðinni árið 2007. Hann heldur með Fram
og Arsenal og elskar Sushisamba.
Staðalbúnaður
Ég er ekki með mjög dýran
fatasmekk. Undanfarið hef ég
verið mikið í lituðum gallabux-
um og kannski skemmtilegum
bol við. Og oft í þunnri gollu. Ég
geng oftast bara í úlpu en þegar
maður er að flýta sér á maður til
að fara út í Flass-flíspeysunni.
Þá skammar kærastan mig. Ég
uppgötvaði loksins Converse-
skó í fyrra og nú get ég varla
gengið í öðru. Eina vandamálið
er að ég nota skó númer 47
og það er ekki hægt að fá svo
stóra Converse-skó á Íslandi.
Ég kaupi þá því í útlöndum. Ég
kaupi líka föt úti. Maður gefur
sér aldrei tíma til að versla föt
nema í útlöndum.
Hugbúnaður
Þegar maður er plötusnúður
sækir maður ekki endilega í þá
skemmtistaði þar sem er mesti
hávaðinn þegar maður fer sjálf-
ur út að skemmta sér. Við vin-
irnir viljum fara á staði þar sem
við getum setið og núna förum
við oftast á Vegamót og English
Pub. Ég er með kort í World
Class en mætti vera duglegri
að mæta þangað. Ég gef mér
ekki mikinn tíma til að horfa á
sjónvarp, en ég vel þætti fram
yfir bíómyndir. Suits eru í upp-
áhaldi og eftir að ég fékk Netflix
tók ég „næntís“ sjónvarpsþátta
nostalgíu. Ég er náttúrlega af
Friends-kynslóðinni og hef
örugglega séð alla þá þætti oftar
en heilbrigt getur talist. Annars
horfi ég alltaf líka á fótbolta. Ég
held með Arsenal og Fram og
hef því ekki haft miklu að fagna
undanfarin ár.
Vélbúnaður
Ég frelsaðist fyrir tveimur árum
og á nú Macbook Pro, iPhone,
iPad og er með Apple TV. Það
varð allt miklu þægilegra við
þetta. Ég treysti aldrei á tölvur
fyrr en ég fékk mér Apple.
Gömlu tölvurnar tóku oft upp
á því að frjósa þegar ég var að
spila en það hefur ekki enn
gerst, 7, 9, 13. Aðal appið er
TuneIn en í því getur maður
hlustað á útvarpsstöðvar um
allan heim. Svo er ég bara með
þetta klassíska, Facebook, In-
stagram og Twitter.
Aukabúnaður
Ég er mjög hrifinn af ítölskum
mat og elda mikið af pasta og
svoleiðis réttum. Á mínu heimili
elda ég töluvert meira en kær-
astan. Við strákarnir förum oft
út að borða og það er eiginlega
hálf kjánalegt hvað vinahópur-
inn fer oft á Sushisamba. Ég
er formaður markaðsdeildar í
Heimdalli og hef verið þokka-
lega virkur í Heimdallarstarf-
inu síðan ég var fimmtán ára.
Aðal áhugamál mín eru fótbolti
og tónlistin og svo finnst mér
mjög gaman að ferðast. Síðasta
sumar heimsótti ég aðalborg-
irnar í Austur-Evrópu og það var
frábært. Þar getur maður verið
á fimm stjörnu hóteli en borgað
það sama og á tveggja stjörnu
hóteli annars staðar. Ég er líka
rosalegur London-fíkill, mér
finnst það æðisleg borg. Þegar
ég fer á bar panta ég mér Jager í
Redbull. Mér finnst líka gaman
að smakka góða bjóra og ef ég
rekst á einhverja sem ég hef
ekki séð áður freistast ég oftast
til að smakka.
NIÐUR BREKKU FER
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
30-50% 30%
af skíðum, skíðabúnaði,
brettum og brettabúnaði
af skíða- og
brettafatnaði
Skíði og bretti í glæsibæ – Bretti í kringlunni
GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is
t ónskáldið Anna Þorvaldsdóttir hlaut hæsta styrk tónlistarsjóðsins Kraums þegar úthlutað var úr honum í gær. Styrkur Önnu nemur tveim-
ur milljónum króna. Styrkinn fær Anna til að hljóðrita
ný verk til útgáfu í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands
og í flutningi CAPUT. Í kjölfar útgáfu nýrrar plötu nýtir
Anna sér hluta styrksins til að kynna plötuna og verkin
erlendis í samvinnu við kynningarfyrirtæki og erlendar
umboðsskrifstofur.
Kraumur úthlutaði í gær 10,4 milljónum króna til
listamanna og verkefna sem eiga sér stað hér heima og
að heiman árið 2013. Alls hlutu sextán verkefni styrk en
sjóðnum bárust 146 umsóknir að þessu sinni.
Hljómsveitin Bloodgroup hlaut einnar milljón króna
stuðning vegna tónleikaferðar um Evrópu og til Banda-
ríkjanna. Sömu upphæð hljóta einnig Skúli Sverrisson
og Óskar Guðjónsson sem í samstarfi við Mengi munu
kynna plötuna The Box Tree ytra.
Meðal annarra styrkþega eru Retro Stefson, Samúel J.
Samúelsson Big Band, Angist, Hamrahlíðarkórinn, múm,
Rauðasandur Festival, Stelpur Rokka! og KAMMER-
Tónlistarhátíð. Járnbraut fær styrk en um er að ræða
skapandi húsnæði þar sem má finna m.a. Nolo, Oyama,
Úsland Útgáfuna og fleiri.
tónliSt kraumur úthlutar Styrkjum
Anna Þorvaldsdóttir
hlaut hæsta styrkinn
Anna Þorvalds-
dóttir hlaut
tveggja milljóna
styrk frá Kraumi
í gær.
Sindri fær skammir
hjá kærustunni
þegar hann fer út í
Flass-flíspeysunni.
Ljósmynd/Hari
76 dægurmál Helgin 22.-24. mars 2013